Morgunblaðið - 31.07.2019, Page 11

Morgunblaðið - 31.07.2019, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019 11 Snagabretti frá kr. 980 Snagar frá kr. 260 augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár L Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 MIKIÐ ÚRVAL AF SNÖGUM OG SNAGABRETTUM Stjórnendum norsk-færeyska lax- eldisfyrirtækisins Mowi var vandi á höndum. Þeir sáu að brýnt væri að bæta kælingu við slátrun, en með fiskeldið dreift á nokkra staði í Færeyjum myndi ekki vera hagkvæmt að koma upp full- komnu slát- urhúsi og kæl- ingarbúnaði í hverju sundi og firði. Thor Ice reyndist vera með lausnina: færanlegan kælibúnað sem rúmast í 20 feta gámi og hægt er að nota nánast hvar sem er. Gáminn má flytja þangað sem hans er þörf, ásamt litlu húsi þar sem laxinn er blóðgaður. Eina sem þarf er að tengja gáminn við rafmagn, og leggja slöngu niður í næstu fjöru til að dæla sjó inn á ískrapavél- arnar. Thor Ice er ungt fyrirtæki, stofnað 2002, en er í dag í fremstu röð á sviði krapakælitækni fyrir sjávarútveg og fiskeldi. Þá hefur fyrirtækið þróað fullkomna kæli- lausn fyrir kjúklingaframleiðslu, þar sem ís er skotið á fuglinn eftir slátrun svo hann kælist mun hrað- ar en með hefðbundnum aðferðum. Lokað kerfi Með því að hafa tekist að koma krapakælivél fyrir í gámi opnast ný tækifæri fyrir Thor Ice og ætti þessi lausn að henta fiskeldi víða um heim. „Í gáminum er stór tankur sem Formax smíðaði fyrir okkur, og tvær stórar vélar sem framleiða ískrapa. Gættum við þess sérstaklega við hönnunina að kerfið myndi þurfa litla orku, og hægt væri að stýra notkuninni og eiginleikum ískrapans af mikilli ná- kvæmni,“ útskýrir Þorsteinn Ingi Víglundsson, framkvæmdastjóri Thor Ice Chilling Solutions. Um lokað kerfi er að ræða þar sem gámurinn tekur inn sjó og rafmagn og dælir út ískrapa. Gám- urinn er því alveg þurr að innan og til að þrífa kælibúnaðinn nægir að setja hreinsiefni inn um vatns- inntakið og láta það fara sína leið í gegnum leiðslurnar. „Krapanum er dælt út úr gámnum ofan í plastker þar sem hann umlykur laxinn og kælir hann hratt. Þegar kar er orðið fullt er það sett upp á flutn- ingabíl og heldur fiskurinn áfram að kólna á leiðinn til vinnsluhúss- ins.“ Auðveldur í umgengni Eins og gefur að skilja bætir það gæði vörunnar að geta kælt laxinn vel strax eftir blóðgun en með þessu fyrirkomulagi er líka verið að koma í veg fyrir að úr- gangur frá slátruninni fari út í líf- ríkið næst kvíunum. „Ekkert spilli- vatn berst frá þessu skrefi í slátrunar- og vinnsluferlinu. Þegar laxinn kemur á áfangastað eru kerin síðan tæmd, fiskurinn verk- aður eins og þarf, og krapi og blóðvatn hreinsuð þar,“ segir Þor- steinn. Þrátt fyrir að það hafi sett Thor Ice þröngar skorður að verða að láta búnaðinn rúmast í 20 feta gámi segir Þorsteinn að nóg pláss sé fyrir starfsmenn að athafna sig ef eiga þarf við tækin eða sinna viðhaldi og öll umgengni tiltölulega einföld. Kælibúnaðurinn er sterk- byggður, rétt eins og gámurinn sjálfur, svo að hann þolir það vel að vera fluttur á milli staða. „Við getum síðan þjónustað búnaðinn yfir netið og hjálpað notandanum með stillingar,“ segir hann. „Og þar sem gámurinn þarf ekki mikla orku er hægt að setja hann upp nánast hvar sem er.“ Búnaðurinn rúmast í tuttugu feta gámi Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Thor Ice hefur smíðað færanlegt kælikerfi fyrir Mowi, stærsta laxeldis- fyrirtæki heims. Kerfið verður notað í Færeyjum og má flytja blóðgunarhús og kælibúnað milli eldis- svæða. Laxinn er svo sendur kældur til verkunar í öðrum landshluta. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Varkárir starfsmenn Thor Ice flytja nýja krapavél út af verkstæði fyrirtækisins, til að setja upp inni í gámi. Þorsteinn Ingi Víglundsson Þessi tölvuteikning sýnir vel hvernig krapavélunum hefur verið komið fyrir innan í mjög smáum gáminum. Afurðaverð á markaði 30. júlí 2019, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 336,71 Þorskur, slægður 355,45 Ýsa, óslægð 351,94 Ýsa, slægð 274,38 Ufsi, óslægður 114,24 Ufsi, slægður 139,46 Gullkarfi 320,95 Langa, óslægð 174,57 Langa, slægð 261,27 Keila, óslægð 70,86 Keila, slægð 84,02 Steinbítur, óslægður 186,55 Steinbítur, slægður 212,55 Skötuselur, slægður 602,00 Grálúða, slægð 105,81 Skarkoli, slægður 393,58 Þykkvalúra, slægð 530,00 Bleikja, flök 1.719,80 Gellur 1.162,00 Hlýri, óslægður 245,00 Hlýri, slægður 198,48 Lúða, slægð 710,08 Náskata, slægð 39,00 Undirmálsýsa, óslægð 103,04 Undirmálsþorskur, óslægður 181,18 Undirmálsþorskur, slægður 113,00 AFLABRÖGÐ Gullver NS lagði að bryggju á Seyð- isfirði í gærdag með fullfermi. Ís- fisktogarinn hafði þá dregið 102 tonn af blönduðum afla, þorski, ýsu, ufsa og karfa. Á Facebook-síðu Síld- arvinnslunnar sagði Rúnar L. Gunn- arsson skipstjóri að vel hefði gengið að fiska. „Það aflaðist ágætlega en túrinn var fjórir dagar höfn í höfn. Við vorum mest í Berufjarðarál, Lónsdýpi og á Papagrunni en end- uðum á Herðablaðinu í þorski. Þetta er annar túrinn eftir að skipið kom úr slipp og það hefur bara gengið vel í þeim. Við getum varla kvartað.“ Gert er ráð fyrir að Gullver haldi að nýju til veiða í kvöld. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Vel hefur gengið hjá Gullveri frá því að það kom úr slipp fyrir skemmstu. Fullfermi hjá Gullveri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.