Morgunblaðið - 31.07.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 31.07.2019, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019SJÓNARHÓLL Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is STIMPILPRESSUR Loftpressur af öllum stærðum og gerðum Mikið úrval af aukahlutum ARNÞÓR BIRKISSON 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 leggur bann við því að fyrirtæki geri með sér samninga eða samþykktir sem hafa að markmiði eða af þeim leiðir að samkeppni sé raskað. Undir þetta bann falla samkeppnishamlandi upplýs- ingaskipti milli fyrirtækja. Hafa ber í huga að sam- keppnislög gera ekki kröfu til þess að formlegir samn- ingar liggi fyrir um samkeppnishamlandi háttsemi. Samstilltar aðgerðir milli fyrirtækja nægja til þess að bannreglan eigi við, að því tilskildu að aðgerðirnar hafi að markmiði að raska samkeppni eða séu til þess fallnar. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að upplýsinga- skipti af ýmsu tagi milli fyrir- tækja geta haft mjög jákvæð áhrif á samkeppni og þar með hagsmuni keppinauta og neyt- enda. Aðgengi fyrirtækja að ýmiss konar upplýsingum ger- ir þeim betur kleift að taka skynsamlegar rekstrarákvarð- anir sem samrýmist vel mark- miði samkeppnislaga um hag- kvæma nýtingu framleiðslu- þátta samfélagsins. Á hinn bóginn kunna upplýsinga- skipti að gera fyrirtækjum kleift að samstilla samkeppn- ishegðun sína og/eða loka mörkuðum gagnvart öðrum keppinautum. Banni sam- keppnislaga er einkum beint að slíkum tilvikum. Úr réttarframkvæmd sam- keppnismála, bæði hérlendis og af vettvangi Evrópusam- bandsins, má sjá ýmis dæmi um upplýsingaskipti sem farið hafa í bága við framangreinda bannreglu. Hvers kyns samskipti um verð eru vitaskuld varhugaverð, eink- um framtíðaráform um verðlagningu. Það getur dugað til brots að móttaka upplýsingar frá keppinaut um verð, verðbreytingar, tilboð, afslætti og þess háttar þótt engu sé ef til vill lofað um samstillta verðhækkun eða önnur viðbrögð. Það eitt að þekkja áform keppinauta hvað þessi atriði varðar er talið hafa samkeppnishamlandi áhrif. Sama gildir um upplýsingaskipti varðandi for- sendur verðákvarðana. Sé slíkum upplýsingum deilt milli keppinauta er dregið úr þeirri óvissu sem nauðsyn- legt er að ríki milli þeirra til þess að virk samkeppni fái vel þrifist. Gerð þess markaðar sem fyrirtæki starfa á getur skipt máli við mat á því hvort upplýsingaskipti eru líkleg til að raska samkeppni eður ei. Markaðir sem einkennast af gagnsæi, samþjöppun og stöðugleika eru viðkvæmari fyrir upplýsingaskiptum. Ástæðan er sú að víðtæk upp- lýsingaskipti milli keppinauta á slík- um mörkuðum eru líklegri til að leiða af sér samstillingu milli fyrir- tækja. Við mat á því hvort skipti á til- teknum upplýsingum (hvort sem slík upplýsingaskipti eru gagnkvæm eða ekki) eru varhugaverð má hafa nokkrar þumalputtareglur í huga að því er varðar upplýsingarnar sjálfar. Að öllu jöfnu ættu fyrirtæki ekki að deila upplýsingum sem þau sjálf telja til trúnaðarupplýsinga eða við- kvæmra viðskiptaupplýsinga. Hér undir falla að sjálfsögðu upplýsingar um verð, framleiðslumagn og kostn- að af ýmsu tagi. Önnur atriði sem máli skipta eru hversu sundur- liðaðar upplýsingar eru, aldur þeirra og tíðni upplýsingaskipta. Telji fyrirtæki að tiltekin upplýs- ingaskipti séu þýðingarmikil og hafi jákvæð fremur en neikvæð áhrif á samkeppni en vafi leikur á hvort þau samrýmist ákvæði 10. gr. samkeppnislaga er sú leið fær að óska undanþágu frá banni 10. gr. með hliðsjón af ákvæði 15. gr. sam- keppnislaga. Beiðni um slíka undanþágu þarf að senda Samkeppniseftirlitinu sem getur heimilað upplýsinga- skiptin, eftir atvikum að uppfylltum málefnalegum skil- yrðum til verndar virkri samkeppni. LÖGFRÆÐI Heimir Örn Herbertsson lögmaður og sérfræðingur við lagadeild HR Upplýsingaskipti milli fyrirtækja ” Úr réttarframkvæmd samkeppnismála, bæði hérlendis og af vett- vangi Evrópusam- bandsins, má sjá ýmis dæmi um upplýsinga- skipti sem farið hafa í bága við framangreinda bannreglu. Hvers kyns samskipti um verð eru vitaskuld varhugaverð, einkum framtíðaráform um verðlagningu. FORRITIÐ Hingað til hefur það þótt kalla á mikið næmi, fimi í mannlegum sam- skiptum, stjórnunarhæfileika og áralanga reynslu að geta haft góða tilfinningu fyrir menningu vinnu- staðar. Forritið Bunch.ai styttir stjórn- endum leið og freistar þess, með hjálp gervigreindar, að greina sam- skipti starfsmanna í spjallforrit- unum Slack og MS Teams til að sjá hvar skórinn kreppir. Gervigreind kortleggur orðaval og setningar og rýnir í samtölin á vinnustaðnum byggt á nýjustu kenn- ingum og fræðum um æskilega menningu á vinnustað. Bunch skoð- ar þó aðeins það sem sagt er í opnum hópum og lætur einkaskilaboð á milli starfsmanna og samtöl við við- skiptavini í friði. Greiningin endar með einkunna- gjöf sem dreifist á nokkra undir- flokka, s.s. hvort starfsmenn eru lærdómsfúsir, hvort þeir séu óhræddir við að tjá sig, hversu vel þeim gengur að starfa saman og hvort andinn í hópnum sé góður. Í stjórnborði Bunch má sjá þró- unina skýrt og vel, nánast í raun- tíma, og koma auga á hvar hallað hefur undan fæti eða tekist að bæta árangurinn frá degi til dags eða frá viku til viku. ai@mbl.is Tölvan greinir menn- ingu vinnustaðarins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.