Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 2. Á G Ú S T 2 0 1 9
Stofnað 1913 187. tölublað 107. árgangur
PARIÐ ÁTTI
SVIÐIÐ Í
GRAFARHOLTI
ER MIKIL
SVEITA-
STELPA
„ÞETTA ER
EITTHVERT
HEILUNARFORM“
FERTUG FYRIRSÆTA 22 VINSÆLT LJÓÐSKÁLD 28ÍSLANDSMEISTARAR 24
Úr 7,2% í 2%
» Hlutfall Norðurlands vestra
af íbúafjöldanum var 7,2%
1950. Með sama áframhaldi fer
það undir 2% í haust.
» Hlutfall Vestfjarða hefur far-
ið úr 7,8% í 1,9% á tímabilinu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þau tímamót eru að verða í sögu
landsins að um 80% íbúanna búa á
stórhöfuðborgarsvæðinu. Mikill að-
flutningur erlendra ríkisborgara síð-
ustu ár á þátt í þessari þróun.
Með sama áframhaldi munu tveir
af þremur íbúum landsins búa á
höfuðborgarsvæðinu, án nágranna-
sveitarfélaga, innan fárra ára. Til
samanburðar var hlutfall íbúa höfuð-
borgarsvæðisins af íbúafjölda lands-
ins um 20% fyrir rúmri öld.
Hröð íbúafjölgun mun kalla á
mikla fjárfestingu í innviðum. Má
þar nefna vegakerfið sem mun þurfa
að anna mun meiri íbúafjölda.
Samtök sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu hafa greint þróunina.
Niðurstaðan er að búferlaflutningar
frá landsbyggð skýri íbúafjölgun
svæðisins á 20. öld. Nú skýri búferla-
flutningar frá útlöndum íbúafjölg-
unina.
Með þessari íbúafjölgun breytast
íbúahlutföll í landinu. Til dæmis búa
nú álíka margir samanlagt í Kópa-
vogi og Garðabæ og búa á Vestfjörð-
um, Norðurlandi vestra, Norður-
landi eystra og Austurlandi
samanlagt. Um 55 þúsund manns
búa í þessum fjórum landshlutum.
Kallar á uppbyggingu innviða
Nær 80% búa á stórhöfuðborgarsvæðinu Aðflutningur á þátt í íbúafjölguninni
Vægi fámennustu landsfjórðunganna í íbúafjöldanum minnkar með hverju ári
MÖr íbúafjölgun á … »4
Stofnfrumumeðferð við blóðþurrð-
arheilablóðfalli hefur sýnt árangur í
Bandaríkjunum og á Bretlandi, að
því er breska blaðið The Telegraph
greinir frá. Meðferðin, sem er á til-
raunastigi, hefur fengið flýtimeð-
ferð hjá lyfjayfirvöldum í Banda-
ríkjunum svo umfangsmeiri rann-
sóknir geti hafist fyrr.
Axel F. Sigurðsson, hjartalæknir,
segir að meðferðin gæti orðið til
þess að færri sjúklingar en áður
þurfi að upplifa varanlegar afleið-
ingar heilablóðfalls, batahorfur
verði betri og fötlun í kjölfar heila-
blóðfalls sjaldgæfari. Hann segir að
verði sýnt fram á að stofnfrumu-
meðferð af þessu tagi sé gagnleg
megi líta á það sem byltingu í með-
ferð heilablóðfalls. Hann tók þó
fram að ýmiskonar frekari prófanir
þyrfti að gera til að staðfesta að
meðferðin bæri árangur og að hún
væri án teljandi áhættu fyrir sjúk-
linginn.
Þó er mikilvægt að sjúklingar
gangist undir segaleysandi meðferð
fjórum tímum eftir heilablóðfall, til
þess að koma í veg fyrir að heila-
vefur skemmist. »13
Ný meðferð við heilablóðfalli
Stofnfrumumeðferð gæti aukið batalíkur sjúklinga
Sjöundi hluti þjóðarinnar mætti á Laugardalsvöll um helgina
til að berja augum og njóta tónlistar hins heimsfræga tónlist-
armanns Ed Sheeran.
kvöldið sem margir hverjir þurftu að bíða lengi í biðröð.
Sheeran hefur fengið góðar umsagnir þeirra sem hittu hann;
sagður alþýðlegur og skemmtilegur. »29
20.000 gestir seinni tónleikanna, sem haldnir voru í gær-
kvöldi, nutu þeirra og komust klakklaust inn á Laugardalsvöll
en sama var ekki að segja um tónleikagesti á laugardags-
Ed Sheeran gladdi íslenska aðdáendur um helgina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Verðugt markmið er að öll þjón-
usta heilsugæslunnar verði gjald-
frjáls í náinni framtíð. Þetta segir
Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra. Hún fundar nú með heil-
brigðisstarfsfólki, sveitarstjórn-
armönnum og fleirum um nýja
heilbrigðisstefnu sem Alþingi sam-
þykkti í vor. Stefnan nær til ársins
2030, en á skemmri tíma áætlun,
sem gildir næstu fimm árin, er efld
þjónusta við aldraða og stefna mót-
uð um fólk með heilabilun. »6
Heilsugæsluþjón-
usta sé gjaldfrjáls
Innflutningur á fæðubótarefni
er gjarnan stöðvaður að sögn að-
stoðaryfirtollvarðar, Baldurs
Höskuldssonar. Þá uppfylla vör-
urnar ekki kröfur tollstjóra eða
innihalda óleyfileg efni.
Þá bætast sífellt hættuleg efni á
lista MAST, sem tollstjóri starfar
eftir, að sögn Zulemu Sullca
Porta, fagsviðsstjóra hjá neyt-
endavernd MAST. Sagði hún í
samtali við Morgunblaðið að
ómögulegt væri að ganga úr
skugga um að innflutningur á öll-
um hættulegum efnum í mat-
vörum væri stöðvaður, en aðal-
atriðið væri að hindra það að
efnin kæmust á markað. »13
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Matvælastofnun Stofnunin varaði ný-
lega við neyslu á tilteknu fæðubótarefni.
Fæðubótarvörur oft
stöðvaðar í tolli