Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 17
að föðurafi minn, Árni Eiríksson, hafði verið einn af stofnendum þess og forystumaður um skeið. Burðarásar kaldastríðsáranna í Sjálfstæðisflokknum hverfa nú óðum á braut. Baldvin var einn þeirra og annar, Ásgeir Péturs- son, lést fyrir skömmu. Það var lærdómsríkt fyrir ungan mann á þeim tíma að kynnast þessum mönnum öllum. Þeir áttu þátt í farsælli vegferð ungs lýðveldis. Þessum gamla vini mínum þakka ég allt gamalt og gott. Styrmir Gunnarsson. Með Baldvini Tryggvasyni er genginn einstakur samferðamað- ur og góður vinur. Hann stýrði Sparisjóði Reykjavíkur og ná- grennis í tvo áratugi og vegna stjórnarsetu minnar í sjóðnum allan þann tíma kynntist ég vel mannkostum hans og fann hvern mann hann hafði að geyma. Starfsferill hans er til vitnis um að hann naut mikils trausts. Tímabil Baldvins sem fram- kvæmdastjóra Sparisjóðsins má með réttu nefna blómaskeið sjóðsins. Starfið var vandasamt og flókið og ekki á allra færi að leysa það vel af hendi. Fljótlega kom í ljós að hann var miklum hæfileikum gæddur til starfsins og alls staðar vel metinn. Hann átti að baki ríflega hálfs annars áratugar starf sem forstjóri Al- menna bókafélagsins auk hinna fjölmörgu trúnaðarstarfa sem honum höfðu verið falin á vegum Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjavíkurborg og ríkið. Öll sú reynsla reyndist honum afar vel í störfum hans fyrir sjóðinn. Hvar- vetna naut hann trausts og ótalið er hversu menningarlega hann var sinnaður og í eðli sínu hjálp- legur í hvívetna og tók öllum vel sem til hans leituðu. Samtök sparisjóða áttu hug hans og verða öll þau störf seint fullþökkuð. Baldvin var frá Ólafsfirði og var trúr uppruna sínum og æsku- slóðum. Það duldist engum sem honum kynntust hvaðan hann var og oft var á það minnst. SPRON var undir styrkri stjórn Baldvins. Þetta var sam- heldinn hópur sem bar hag sjóðs- ins fyrir brjósti. Frá upphafi var lögð áhersla á að samhugur ríkti meðal starfsmanna og sjóðnum hélst vel á góðu starfsfólki sem ílengdist í starfi. Það leiddi til þess að starfsandinn þróaðist á löngum tíma og var afar góður og metnaðarfullur. Það er ekki síst að þakka Baldvini sem var sívak- andi yfir velferð allra. Sú hefð skapaðist að SPRON veitti fjöl- mörgum samfélagsmálum og menningarmálum víðtækan stuðning svo að til fyrirmyndar var. Viðfangsefnin voru mörg ná- tengd helstu framfaramálum þjóðarinnar sem hann var í for- ystu um að leggja lið. Samskipti við Baldvin voru góð og uppbyggjandi. Hann hafði áhuga á þjóðmálum, sögu og sí- gildri menningu og bætti stöðugt við þekkingu sína á því sviði og áhugamálin voru fjölmörg. Mér er efst í huga söknuður og þakklæti þegar ég hugsa til baka til okkar langa og farsæla sam- starfs. Hann og Halldóra voru höfðingjar heim að sækja og eig- um við yndislegar minningar af þeim vinafundum. Hann var unn- andi bókmennta og tónlistar og bækur og klassísk tónlist aldrei langt undan þegar þau Halldóra voru annars vegar. Ég minnist með þakklæti í huga áratuga langrar traustrar vináttu Baldvins Tryggvasonar og þakka fyrir liðnar samveru- stundir. Við Sigríður sendum Halldóru innilegar samúðar- kveðjur svo og sonum hans, Sveinbirni og Tryggva, og fjöl- skyldunni allri. Hjalti Geir Kristjánsson.  Fleiri minningargreinar um Baldvin Tryggvason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019 ✝ RagnheiðurGuðmunds- dóttir, Ragna, fæddist á Álafossi 18 mars 1924. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Hömrum í Mosfellsbæ 2. ágúst 2019. Foreldrar henn- ar voru Guðmundur Finnbogason járn- smiður, f. 18. ágúst 1900, d. 30. maí 1987, og Lilja Magnúsdóttir, f. 6. febrúar 1898, d. 9. desember 1972. Systkini Rögnu eru Sigurlaug, f. 16. júní 1926, d. 16. september 2010, Jensína Kristín, f. 14. októ- ber 1928, d. 14. apríl 1991, Finn- bogi, f. 3. október 1930, d. 28. apríl 1978, Helga Perla, f. 3. des- ember 1939, og Hrafnhildur Petra, f. 13. ágúst 1941, d. 8. nóvember 2017. Ragna giftist Evert William Olson, Swede, f. í New York 24. október 1925, d. 29. júní 1990, sem síðan tók upp nafn föður síns. Foreldrar hans voru Karl Johann Olson og Emmy Claudia, sænskir innflytjendur. Börn Rögnu og Karls eru fjög- ber 1958, börn hennar: a) Max- ime Smári, f. 11. mars 1991 b) Eva Sóley, f. 14 mars 1997, henn- ar sonur og Alexanders Guð- laugssonar er Gabriel William. 5) Eva Karlsdóttir, f. 27. desember 1960, gift Ellert A. Ingimund- arsyni, f. 17. ágúst 1957. Þeirra synir eru a) Evert Austmann, f. 25. júní 1987, giftur Helenu Hrund Ingimundardóttur, f. 2. desember 1985, börn þeirra eru Leonard Ben, Rebekka Rós, Maron Logi og Grétar Nóel. 2) Aron Austmann, f. 28. maí 1994, sambýliskona hans er Arnfríður Ósk Jónsdóttir. Ragna og Swede giftu sig 15. febrúar 1952 og hófu búskap á Kjartansgötu, þaðan lá leiðin á Bergstaðastræti en lengst af bjuggu þau í Skaftahlíð. Ragna vann sem veður- athugunarmaður hjá Veðurstofu Íslands frá 1946-1956, en eftir því sem börnunum fjölgaði gerð- ist hún heimavinnandi húsmóðir og meðal annarra verkefna prjónaði hún lopapeysur fyrir Holton og hannaði sín eigin munstur. Seinni árin vann hún á skrif- stofu fjölskyldufyrirtækisins Ís- lenska pökkunarfélagsins fram til áttræðisaldurs. Ragna var í leikfimi hjá Báru í 40 ár. Útför Rögnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 12. ágúst 2019, klukkan 15. ur en fyrir átti Ragna einn son með Haraldi Gottfreð Kristjónssyni, f. 28. janúar 1924, d. 13. ágúst 1968. Börn hennar eru því alls fimm. 1) Kristjón Har- aldsson, f. 26 september 1945, d. 8. janúar 2011, dæt- ur hans a) Agnes Amalía, f. 19 maí 1965, börn hennar eru Haraldur Ari og Kristín Amalía. b) Ragnheiður Margrét, f. 5. apríl 1972, sonur hennar er Andri Pétur. c) Áslaug Perla, f. 4. janúar 1979, d. 27. maí 2000. 2) Karl Friðrik Karls- son, f. 11. mars 1954, giftur Sig- ríði Jóhannsdóttur, f. 19. maí 1953, börn þeirra eru: a) Vil- hjálmur, f. 3. janúar 1977 b) Birta f. 22. október 1978, hennar sonur er Elís Breiðfjörð. 3) Lilja Britta Karlsdóttir, f. 28. júní 1957, börn hennar eru a)Jóhann Haukur, f. 5. mars 1990, b) Ragna Líza, f. 8. janúar 1993, c) Elías Thor, f. 5. október 1995 d) Bjarki Gabríel, f. 22. júlí 1998. 4) Kristine Erla Olson f. 27. desem- Elsku mamma, hvað þetta hef- ur verið dýrmætt fyrir mig að fylgja þér síðasta spölinn. Svo ótrúlega þungbært og erfitt, en samt varstu svo æðrulaus og tókst á við þetta verkefni af svo ótrúlegri yfirvegun að ég get ekki annað en dáðst að þér fyrir það. Ég get bara vonað og óskað að þessi bjartsýni og gleði fylgi mér allt til enda. Ég ætla ekki að mæra þig, það er óþarfi, þú ert, varst og verður ætíð besta mamma sem hægt er að hugsa sér. Bið að heilsa mót- tökunefndinni sem án efa verður til að taka á móti þér. Elska þig. Þín dóttir Eva. Elsku hjartans Ragna mín, mín kæra tengdó, það er skrítið að kveðja þig núna þó að við viss- um öll að það myndi koma að því. Margt skemmtilegt höfum við upplifað saman og rifjað oft sam- an upp og þakka ég fyrir það, gleðigjafi sem þú varst. Það má segja að við höfum kynnst mjög vel sumarið 1980 þegar komst þú út til K-hafnar og gistir hjá okkur Evu. Ég man að ég ætlaði ekki að trúa að einhver gæti alltaf verið svona jákvæður og glaður, en núna 39 árum síðar ert þú löngu búin að sanna fyrir mér að það er eina vitið meðan við dveljum hér, það er að finna alltaf það góða glaða og fallega í öllu. Þú hélst því alveg fram í andlátið elsku Ragna mín og stöðugt gátum við rifjað upp augnablik og hluti sem glöddu okkur og við gátum hlegið að enn þá og alveg undir það síð- asta. Ég vil þakka fyrir allar okkar stundir, boð, veislur og ég veit ekki hvað. Nokkrum sinnum fór- um við í löng sumarfrí saman eft- ir að tengdapabbi hann Swede dó, blessuð sé minning hans, og strákarnir okkar Evert og Aron búa enn þá að þeim dásemdar- ferðum. Elsku Ragna, að heimsækja þig að Hömrum þar sem þú sast við borðið oft með uppsett hárið, blasti við manni ljósið sem varst, og þú tókst á móti öllum geislandi af gleði og jákvæðni. Ég kveð þig núna í bili og ég veit að Swede, Jonni og englaskarar hafa tekið á móti þér syngjandi og brosandi af gleði yfir því að hafa loksins fengið þig til sín og ég veit að guð er með þér mín kæra. Þinn ástkæri uppáhalds- tengdasonur Ellert. Það er komið að kveðjustund, elsku amma mín. Við vorum ald- eilis frábærir ferðafélagar. Við eigum góðar minningar saman síðan við fórum til Svíþjóðar að hitta Lilju og co. Þú merktir allt- af töskuna þína með bleikri slaufu. Við þurftum að millilenda í Kaupmannahöfn á leið til Sví- þjóðar og þú hélst að töskurnar færu alla leið til Svíþjóðar: „All the way“ heyrðir þú, en ég heyrði að beðið var um að sækja tösk- urnar því við áttum að tékka þær inn aftur. Þar lærði ég fyrst að ég hef alltaf rétt fyrir mér, ha ha ha. Töskurnar okkar voru stopp- aðar af öryggisgæslunni á leið- inni heim, þar sem þeir héldu lík- legast að polka gris (sleikistangir) væru dínamít. Mikið gátum við glaðst og hlegið að þeirri reynslu. Alltaf var jafn gaman að koma í pössun til þín í Stigahlíðinni þar sem þú bauðst mér nú oft upp á að horfa á Cartoon Network, ásamt öðrum fínum stöðvum. Þú komst alltaf með góðar sögur um hina og þessa leikara frá þinni tíð og þær klassísku myndir sem þú hafðir svo gaman af að horfa á. Nú ertu farin í þitt síðasta ferðalag og veit ég að þú kemst á áfangastað þrátt fyrir að þú hafir gefið mér bleiku slaufuna. Elska þig alltaf, amma mín. Aron Austmann Ellertsson. Nú þegar komið er að því að kveðja elsku ömmu er fallegt að fara yfir allar minningarnar. Ég er elsta barnabarnið og var 14 ára þegar ég fékk að kynnast henni fyrir alvöru en hafði verið í samskiptum við hana fyrstu ár ævinnar. Hún fagnaði mér elsku- lega, dró hring af fingri sér og gaf mér. Við vorum í afmæli lang- afa Guðmundar og ég gleymi aldrei hvað mér þótti mikið til þessarar glæsilegu konu koma. Amma er ein litríkasta, skemmtilegasta og óvenjulegasta manneskja sem ég hef kynnst. Það var aldrei neitt vesen, allir máttu bara vera nákvæmlega eins og þeir vildu. „It takes all kinds“ var hennar frægasta setn- ing; dæmdi aldrei neinn, en elsk- aði að segja sögur, syngja og dilla sér og var svo dásamlega ánægð með fjölskylduna. Fallega klædd, gjarnan í bleiku með lakkaðar neglur, hárið lagt og í háum hæl- um. Það glitraði allt í kringum hana og hún vakti athygli með fallegu brosi og dillandi hlátri. Algjör drottning. Sögurnar hennar ömmu voru eitt það allra skemmtilegasta, enda amma sannkölluð Reykja- víkurmær, fædd á Bergstaða- stræti, alin upp á Laugavegi og síðar á Grettisgötu 20b þar sem pabbi fæddist í risinu og langafi var með járnsmiðju í kjallar- anum. Seinna bjó ég í húsinu með son minn Harald Ara. Það var skemmtilegur tími. Amma gekk í Austó, átti dásamlegan vinahóp úr mið- bænum, m.a. afa minn, Harald Gottfreð Kristjónsson. Leiðir þeirra skildi en amma talaði alltaf fallega um afa. Hún kunni svo sannarlega að segja sögur, s.s. af því þegar hún var barnapía fyrir ameríska sendi- herrann sem bjó á Hótel Borg; þegar hún pakkaði Royal-búð- ingum í risi á Hverfisgötu; skott- aðist með rósir sem langamma Lilja ræktaði; hannaði kjóla sem „tvíbó“ í Skólastræti saumuðu á hana; sögur af sólböðum í Naut- hólsvík með barnahópinn í leigubíl; þegar hún var í sveit í Dölunum og hve pabbi hennar var mikill sjarmör með harmón- ikkuna og dansaði vel. Ég veit ekki hvað hún sagði oft söguna af því þegar pabbi var orðinn fluglæs í vöggu og ekki má gleyma sögum af Veðurstofunni þar sem hún vann þegar hún kynntist afa Swede, ástinni sinni. Hún litaði ljósmyndir fyrir fólk og prjónaði lopapeysur á nóttunni. Þau pabbi áttu einstaklega fallegt samband sem gaman var að fylgjast með. Amma var góð fyrirmynd. Hún kunni listina að vera ein og njóta eftir að hún var orðin ekkja, ferðaðist á sólar- strönd ef svo bar undir til að liggja í sólinni og lesa. Hún var í líkamsrækt í JSB, fór í splitt og spígat og hittist í boðum með stelpunum, elskaði að horfa á bíó og var með alla leikarana á hreinu. Þreyttist ekki á að tala um hvað pabbi og leikarinn Leonardo di Caprio væru líkir, bara alveg eins. Amma var ekkert feimin við að hafa hlutina eins og hún vildi. Og hún vildi kveðja. Sveif burt með blóm í hárinu, umvafin fjöl- skyldunni með Dínó sinn (Dean Martin) og söng með lögunum. Rósir í vösum frá Siggu hans Kalla frænda sem hugsaði svo fallega um hana. Amma besta, amma gull, ég gleymi þér aldrei. Takk fyrir allt sem þú gafst mér, Haraldi Ara og Kristínu Amalíu. Þín Agnes Kristjónsdóttir. Ragnheiður Guðmundsdóttir ✝ Bylgja RuthAðalsteins- dóttir fæddist í Gnúpufelli í Eyja- firði 4. október 1943. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akureyri 28. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru Aðalsteinn Ólafsson, f. 1920, d. 1994, og Þórey Bryndís Magnúsdóttir, f. 1922, d. 2008. Alsystkini hennar eru Aðalsteinn, f. 1942, d. 1942. Hermann Ægir, f.1945. Ólafur Magnús, f. 1947. Sjöfn Aðalbjörg , f. 1949. Fjóla Huld, f. 1952. Harpa Dröfn, f. 1956, og Tryggvi Gestur, f. 1957. Eiginmaður Bylgju var Sig- urður Anton Friðþjófsson, f. 1942, d. 1980, gift 1967 og skildu 1969. Synir þeirra eru Frið- þjófur Ísfeld, f. 1967. Maki Ásta Hafberg, f. 1971. Barnsmóðir Frið- þjófs er Kolbrún Gerður Kjart- ansdóttir, f. 1968. Börn Friðþjófs og Kolbrúnar eru Bjarndís Líf, f. 1985. Sigurður Anton, f. 1991. Bjartur Elí, f. 1994. Lúkas Ísfeld, f. 2004. Brynjar Aðalsteinn, f. 1969. Maki Agnes Arnardóttir, f. 1970. Börn Brynjars og Agnesar eru Marteinn, f. 1995. Nanna Rán, f. 1997. Brynjar Orri, f. 2002. Hugrún Bylgja, f. 2002. Herdís Ruth, f. 2002. Útför Bylgju fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 12. ágúst 2019, klukkan 13.30. Amma barnanna minna, fyrr- verandi tengdamóðir og vin- kona, Bylgja Ruth, hefur kvatt þennan heim. Ég kynntist Bylgju þegar ég kom inn á heimili hennar í ágúst 1984. Það er fátt fallegra en Akur- eyri í ágústmánuði en eitt af því var hún Bylgja mín. Ég man hvað ég hafði hlakkað mik- ið til að hitta þessa stórmerki- legu konu. Ég hafði kynnst syni hennar og unnið með honum í fiski á Bakkafirði um sumarið. Við vorum par og áttum von á okkar fyrsta barni. Diddi talað mikið og fallega um mömmu sína og sagði ótal sögur af henni og hversu hæfileikarík hún væri. Þau voru miklir vinir. Hann var mjög stoltur af henni. Hún var hetjan hans. Það urðu mér því engin von- brigði að kynnast Bylgju. Hún stóð sko alveg undir öllu því sem hann hafði sagt mér og rúmlega það. Við vorum mjög ólíkar en samt svo líkar. Það kom fyrir að hún var spurð hvar hún hefði falið þessa dótt- ur sína í öll þessi ár. Ég var 16 ára og var þessi fyrsta með- ganga mér sérstaklega erfið en Bylgja stóð með mér eins og hún væri móðir mín. Hún tók aldrei fram fyrir hendur mínar og þegar litla prinsessan leit dagsins ljós sýndi hún mér mikið traust, fulla virðingu og fylgdist með úr fjarlægð. Bylgja hafði sagt skilið við föður drengja sinna þegar þeir voru mjög ungir vegna mikillar óreglu hans og drykkju. Hún vildi ekki ala drengina sína upp við slíkar aðstæður heldur valdi að vinna hörðum höndum og veita þeim öryggi og kærleika. Ömmubörn hennar fengu síðar að kynnast þeim kærleika sem hún bjó yfir og munu þau búa að því alla tíð. Bylgja var alltaf svo róleg og yfirveguð og það er það sem börn laðast að. Þess vegna var það þannig að þegar hún var nálægt þá sáu þau ekki sólina fyrir henni. Hún varð hetjan þeirra. Við áttum fallega og góða vináttu, draumaráðn- ingar og bollalestur var eitt- hvað sem við gátum gleymt okkur í löngum stundum. Þegar við fjölskyldan bjuggum ekki á Akureyri þá urðu símtöl okkar þau lengstu sem sögur fóru af. Eftir að við Diddi skildum slitnaði ekki strengurinn á milli okkar Bylgju. Ég kveð Bylgju með söknuði í hjarta þó söknuður minn sé ekkert á við það sem börnin minna upplifa á þessari stundu. Takk Bylgja Ruth fyrir allt sem þú gafst mér og börnum mínum. Kolbrún. Bylgja Ruth Aðalsteinsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍNBORG ÁSA INGVARSDÓTTIR, Víðigerði 21, Grindavík, lést mánudaginn 5. ágúst. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 16. ágúst klukkan 14. Guðjón Einarsson Ingvar Guðjónsson Steinunn Óskarsdóttir Einar Guðjónsson Ástrún Jónasdóttir Leifur Guðjónsson Guðrún María Brynjólfsdóttir Ingólfur Guðjónsson Guðbjörg Þórisdóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, AÐALBJÖRG ANNA JÓNSDÓTTIR, Abba, frá Lindarbrekku, Varmahlíð, Skagafirði, lést 26. júlí á gjörgæsludeild FSA. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Steinunn Helga Hallsdóttir Gunnar Randver Ágústsson Jónas Jón Hallsson Inga Hanna Dagbjartsdóttir Hafdís Hallsdóttir Bjarni Ingvarsson Jónína Hallsdóttir Einar Einarsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.