Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019 DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Veldu öryggi SACHS – demparar ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA England Crystal Palace – Everton .......................... 0:0  Gylfi Þór Sigurðsson var í liði Everton fram á 79. mínútu. Burnley – Southampton ............................ 3:0  Jóhann Berg Guðmundsson skoraði þriðja mark Burnley og lék allan leikinn. West Ham – Manchester City................... 0:5 Bournemouth – Sheffield Utd ................... 1:1 Watford – Brighton..................................... 0:3 Tottenham – Aston Villa ............................ 3:1 Leicester – Wolves...................................... 0:0 Newcastle – Arsenal ................................... 0:1 Manchester United – Chelsea ................... 4:0 B-deild: WBA – Millwall ........................................... 1:1  Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill- wall á 74. mínútu. Þýskaland Bikarkeppnin, 1. umferð: Verl – Augsburg......................................... 2:1  Alfreð Finnbogason er að jafna sig af meiðslum og lék ekki með Augsburg. Oberneuland – Darmstadt ........................ 1:6  Guðlaugur Victor Pálsson kom inn á hjá Darmstadt á 69. mínútu. Kaiserslautern – Mainz ............................. 2:0  Andri Rúnar Bjarnason var ekki með Kaiserslautern vegna meiðsla. Frakkland Dijon – Saint-Étienne ................................ 1:2  Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Dijon. Rússland CSKA Moskva – Sotsjí ............................... 0:0  Hörður Björgvin Magnússon spilaði allan leikinn fyrir CSKA Moskvu en Arnór Sig- urðsson fór meiddur af velli á 28. mínútu. Krasnodar – Rubin Kazan ........................ 1:0  Jón Guðni Fjóluson var á varamannabekk Krasnodar.  Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn fyrir Rubin Kazan. Holland RKC Waalwijk – AZ Alkmaar.................. 0:2  Albert Guðmundsson kom inn á hjá AZ Alkmaar á 79. mínútu. B-deild: Excelsior – Jong Utrecht .......................... 2:0  Elías Már Ómarsson kom inn á hjá Ex- celsior á 81. mínútu. Belgía Oostende – Club Brugge ........................... 0:2  Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn fyrir Oostende. B-deild: Lokeren – Lommel..................................... 0:0  Kolbeinn Þórðarson kom inn á hjá Lom- mel á 46. mínútu. Stefán Gíslason þjálfar lið- ið. Roeselare – Beerschot............................... 1:1  Arnar Grétarsson þjálfar Roeselare. Kasakstan Aktobe – Astana ......................................... 2:3  Rúnar Már Sigurjónsson spilaði allan leikinn fyrir Astana, skoraði eitt og lagði upp annað. KNATTSPYRNA ENGLAND Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Þegar Romelu Lukaku kom til Man- chester United sumarið 2017 var ljóst hver ætti að vera aðalframherji liðsins næstu árin. Hinn 19 ára gamli Marcus Rashford yrði að bíða þolinmóður, sem og fleiri. Hlutirnir voru hins vegar fljótir að breytast þegar Ole Gunnar Solskjær tók við stjórnartaumunum, Lukaku féll aft- ar í goggunarröðina og í allt sumar var ljóst að hann færi frá félaginu eins og að lokum varð raunin. Norð- maðurinn ætlar Rashford hins veg- ar algjört aðalhlutverk og miðað við 4:0-sigurinn á Chelsea í gær stendur enski framherjinn undir því að vera aðalmarkaskorari sigursælasta liðs ensku deildarinnar. Rashford skoraði tvö mörk, Ant- hony Martial eitt og nýi maðurinn Daniel James eitt. Meðalaldur þríeykisins er rúmlega 22 ár enda ljóst að Solskjær ætlar sér að treysta á unga leikmenn til að rétta við arfaslakt gengi United í fyrra. Allir búa þeir yfir miklum hraða og sprengikrafti, sem var lykillinn að mörkunum fjórum gegn brothættri vörn Chelsea í fyrsta leiknum undir stjórn Frank Lampard. „Ákefðin var í hæsta gæðaflokki hjá okkur. Þetta gekk ekki alltaf upp, sérstaklega á fremsta þriðjungi vallarins og sérstaklega í fyrri hálf- leik, en við héldum alltaf áfram,“ sagði Rashford við MUTV. „Það búa alltaf mörk í þessu liði en þetta snýst bara um hve mikinn stöðugleika við sýnum. Í því felst munurinn á góðu liði og heims- klassaliði, í stöðugleikanum sem þau sýna,“ sagði Rashford. United getur sem sagt spilað feikivel, en hve oft? Með Harry Maguire í hjartanu leit vörn United talsvert betur út í gær en á mjög löngum köflum síð- asta vetur, og hinn nýi maðurinn í vörninni, Aaron Wan-Bissaka, stimplaði sig einnig vel inn. „Við lítum mun meira traustvekj- andi út í varnarleiknum og það sést hvað við höfum lagt mikla áherslu á það í sumar. Maður finnur að maður er öruggari,“ sagði Rashford. Rashford er einn af fimm upp- öldum United-mönnum sem Sol- skjær tefldi fram á miðjunni og í framlínu liðsins í gær. Hann var sjö ára gamall kominn inn í akademíu United og fékk fyrsta tækifæri sitt í byrjunarliði aðalliðsins undir stjórn Louis van Gaal, 18 ára gamall, þeg- ar hann skoraði tvö mörk í 5:1-sigri á danska liðinu Midtjylland í Evr- ópudeildarleik. Hann skoraði einnig tvö mörk í sigri á Arsenal í fyrsta deildarleik sínum, eitt mark í fyrsta Manchester-slagnum sínum, mark í fyrsta deildabikarleiknum og mark eftir þrjár mínútur í fyrsta lands- leiknum sínum af 32 hingað til. Það ætti því kannski ekki að koma á óvart að þessi efnilegi en þegar góði framherji, sem dáði og dýrkaði hinn brasilíska Ronaldo í æsku, hafi skor- að í fyrsta leik þessa tímabils.  Jóhann Berg Guðmundsson kórónaði 3:0-sigur Burnley á South- ampton með laglegu marki og lék allar 90 mínúturnar í fyrsta leik liðs- ins á tímabilinu, eftir að hafa misst sæti sitt í byrjunarliðinu seinni hluta síðustu leiktíðar. Markið skor- aði Jóhann eftir að Ashley Barnes hafði skorað í tvígang í seinni hálf- leik: „Okkur tókst að brjóta þá niður með mjög góðu marki frá Barnesy. Seinna markið hans var einnig mjög gott, uppspilið og yfirvegunin í fær- inu, og svo bættist við gott mark frá Jóhanni,“ sagði Sean Dyche, stjóri Burnley.  Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton voru heldur líklegri til að skora gegn Crystal Palace þar til að Morgan Schneiderlin fékk sitt ann- að gula spjald og þar með rautt korteri fyrir leikslok, eftir klaufa- legt brot. Gylfa var skipt af velli skömmu síðar en ekkert mark var skorað.  Næst verður spilað í deildinni á laugardag en þá mætast meðal ann- ars Manchester City og Tottenham sem fóru vel af stað um helgina. Ra- heem Sterling gerði þrennu í 5:0- sigri City á West Ham. Rashford rauk strax í gang  Góð fyrirheit United-manna í fyrsta leik  Ungt þríeyki með fjögur mörk gegn Chelsea  Rashford finnur meira öryggi með nýjum varnarmönnum AFP Byrjar vel Marcus Rashford fagnar seinna marki sínu sem hann skoraði eftir magnaða sendingu Paul Pogba. Ísland vann til gullverðlauna í Evrópubikar lands- liða í frjálsum íþróttum í Skopje í Norður-Makedón- íu um helgina. Íslenska liðið stóð uppi sem sigurveg- ari í þriðju deildinni og fer því eitt liða upp um deild. Íslendingar stóðu uppi sem sigurvegarar í fimm greinum og náðu öðru sæti 12 sinnum. Liðið var í öðru sæti eftir fyrri keppnisdaginn en lauk að lokum keppni efst með 430 stig, þremur stigum meira en Serbía sem hafði forystuna eftir fyrri dag- inn. Hulda Þorsteinsdóttir bar sigur úr býtum í stang- arstökki og Ásdís Hjálmsdóttir kastaði spjóti lengst allra á laugardaginn. Þá vann íslenska liðið bæði í karla- og kvenna- flokki í 4x100 metra boðhlaupi. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir vann svo til gullverðlauna í 200 metra hlaupi í gær. Ísland er því komið upp úr neðstu deild og mun leika í annarri deild næst þegar keppnin verður haldin, árið 2021. Ísland vann gull í Skopje Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir Magni frá Grenivík vann bráðnauð- synlegan sigur á Haukum í fallbar- áttunni í Inkasso-deild karla í fót- bolta um helgina. Haukar komust yfir í leiknum, á sínum heimavelli, með marki Þórðar Jóns Jóhann- essonar um miðjan seinni hálfleik. Á síðustu sex mínútum leiksins tryggðu Kristinn Þór Rósbergsson og Louis Aaron Wardle hins vegar Magna 2:1-sigur. Magni er enn í fallsæti en nú að- eins stigi á eftir Haukum, og tveim- ur stigum fyrir ofan Njarðvík. Magnamenn áfram á lífi Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Mikilvægt Arnar Geir Halldórsson og félagar unnu dísætan sigur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.