Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '*-�-��,�rKu�, Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Svartsýnustu spár gengu ekki eftir  Iðnaðarmenn segja fínt ástand á markaðnum  Ekki merki um sjáanlegan bata á Austurlandi Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is ,,Ég myndi ekki kalla þetta bata í at- vinnulífinu. Nær væri að segja að svartsýnustu spár hafi ekki gengið eftir í sambandi við efnahagsmálin. Ég held að menn hafi verið í miklu svartsýniskasti þegar kjaraviðræður stóðu yfir,“ segir Hjördís Þóra Sig- urþórsdóttir, formaður Afls, starfs- greinafélags á Austurlandi, innt eftir viðbrögðum við fréttum Morgun- blaðsins á laugardag um batamerki á vinnumarkaði. Í frétt blaðsins sagði Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumað- ur efnahagssviðs Samtaka atvinnu- lífsins, að sú dökka mynd sem dregin hefði verið upp í byrjun árs væri ekki að raungerast. Karl Sigurðsson, sér- fræðingur hjá Vinnumálastofnun, sagðist þokkalega bjartsýnn á að ekki yrði jafn mikið atvinnuleysi í haust og óttast var og störfum fjölgi þrátt fyrir fall WOW air og samdrátt í ferðaþjónustu. Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs, og Halldór Þorkelsson, framkvæmda- stjóri Capacent, voru sammála í fréttinni um vísbendingar um bata- merki og viðspyrnu á vinnumarkaði. Taldi meira vera í stöðunni Hjördís Þóra segist ekki hafa til- finningu fyrir bata á vinnumarkaði á Austurlandi, ferðaþjónustan beri sig enn aumlega og ekki ólíklegt að svo- kallaður bati geti allt eins verið árs- tíðabundar sveiflur. ,,Það er ekkert launungamál að ég var ekki kát með síðustu kjarasamn- mönnum og það virðist vera nóg að gera á markaðnum. Kristján segir að vel kunni að vera að atvinnurekend- ur hafi haldið að sér höndum í ráðn- ingum fram yfir undirskrift kjara- samninga og á meðan beðið var afleiðinga þeirra á efnahagslífið. ,,Það er bjartara yfir efnahags- ástandinu en gert var ráð fyrir og krónan og verðbólgan hafa haldist stöðugar,“ segir Þórður sem bendir á að leitast hefði verið við að ná niður vaxtastigi og seðlabankinn hefði lækkað vexti í tvígang. Það sé aug- ljóst að markmið kjarasamninga að búa til umhverfi með lægri vöxtum og stöðugu verðlagi séu að ganga eft- ir. inga. Ég taldi meira vera í stöðunni fyrir okkar fólk. Vaxtalækkanir í kjölfar samningana og það að verð- bólgan haldist innan viðmiðunar- marka er út af fyrir sig gott,“ segir Hjördís Þóra sem vonar að lágir vextir og verðbólga haldist áfram. Hjördís Þóra segir að ekki séu liðnir nema þrír og hálfur mánuður af þremur og hálfu ári samningsins og því sé erfitt að sjá hvernig hlutirnir þróist en það sé ekkert hægt að gera annað en að vona það besta. Stöðugt verðlag og lægri vextir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að ástandið sé fínt hjá iðnaðar- Hjördís Þóra Sigurgeirsdóttir Kristján Þórður Snæbjarnarson „Ég hefði aldrei getað ímyndað mér hvað þetta gæti ver- ið taugatrekkjandi. Maður sér svona í sjónvarpinu öðru hverju, en það er allt annað að upplifa þetta sjálf,“ segir Elín Ágústsdóttir Finnbogadóttir, íbúi á Gran Canaria, sem er ein Kanaríeyja, í samtali við mbl.is. Hún var ásamt spænskum eiginmanni sínum vakin klukkan tvö í fyrrinótt og gert að yfirgefa bústað sinn vegna mikilla skógarelda. Um þúsund íbúar á eynni þurftu að forða sér undan eldinum. Elín segir að það hafi verið sérstök upplifun „að sjá eldana og þegar lögreglan kemur með sírenur og segir öllum að fara út strax. Það er svolítið skrýtið að lýsa þessu“. Þau hjónin hafa búið á ensku ströndinni á suður- hluta Gran Canaria í fjörutíu ár. „Maðurinn minn er héðan og við erum búin að koma okkur upp hellum uppfrá,“ útskýrir hún og vísar til þess að hellum í fjalllendi eyjunnar sé umbreytt í sumarbú- staði. „Við erum búin að vera þarna mikið í sumar og við vorum þar þegar þetta skeði.“ Elín segir að mágkona hennar hafi komið og barið að utan hjá þeim. Hjónin hafi þá komið sér út í hvelli og hafi þurft að skilja tvo ketti, af þremur sem þau eiga, eftir. „Ég bara fann þá ekki þegar allt var að gerast, en ég tók aðalprinsinn með mér,“ segir hún og kveðst bjartsýn á að kettirnir tveir spjari sig. „Þeir eru vanir að vera útigang- andi, þannig að ég er að vona allt það besta.“ Eiginmaður Elínar, sem er 69 ára, er fæddur og uppal- inn á Gran Canaria. „Ég spurði hann hvort hann hefði einhvern tímann upplifað annað eins. Hann sagði nei og að hann myndi ekki eftir því nokkurn tíma í lífinu að hafa verið ræstur út og þurfa að yfirgefa heimilið,“ segir Elín. gso@mbl.is Lentu í skógareldum á Kanarí  Íslensk kona og eiginmaður hennar urðu að forða sér Slökkvistarf Barist við skógarelda á Gran Canaria. Um 50 björgunarsveitarmenn leit- uðu allan daginn í gær við sunn- anvert Þingvallavatn að belgískum ferðamanni um fertugt, sem er saknað eftir að lítill bátur sem hann er talinn hafa verið á fannst á reki á vatninu síðastliðinn laugardag. Bakpoki hans fannst þar einnig. Leitin hófst á laugardaginn og var þá gengið í nálæga sum- arbústaði til að spyrja fólk hvort það þekkti til bátsins eða hefði séð mannaferðir á svæðinu. Þyrla var einnig höfð til taks við vatnið um tíma. Staðan endurmetin Leitin í gær, þar sem siglt var á vatninu og strönd þess gengin, bar engan árangur. Staðan verður end- urmetin í dag og í skoðun er að senda kafara frá sérsveit Ríkislög- reglustjóra niður að inntaki Stein- grímsstöðvar við útfall Þingvalla- vatns, en hugsanlegt er talið að manninn hafi rekið þangað, segir lögreglan. Náðst hefur samband við fjöl- skyldu mannsins í Belgíu og hún upplýst um stöðu mála. Leita belgísks ferða- manns Morgunblaðið/Sigurður Bogi Um 50 björgunarsveitarmenn á bátum og gengu ströndina við Þingvallavatn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.