Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com Örn Óskarsson líffræðingur og framhaldsskólakennari á Selfossi fékk umhverfisverðlaun Sveitarfé- lagsins Árborgar, sem voru í fyrsta sinn veitt á bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi um helgina. Margt var til- tekið í rökstuðningi bæjarstjórnar fyrir afhendingu verðlaunanna. Þar má nefna kennslustörf hans, vinnu við skógræktarsvæði bæj- arins í Hellisskógi og margvíslegar framkvæmdir þegar hann sá um vinnuskólann á Selfossi. Einnig hef- ur Örn verið ötull sem nátt- úruljósmyndari - og heldur meðal annars úti síðu með myndum af fuglum. Einnig er hann umsjón- armaður heimasíðu um Veiðivötn; náttúrufar þar, aflabrögð og fleira slíkt. sbs@mbl.is Örn fékk Umhverfis- verðlaun Árborgar Umhverfismál Örn Óskarsson hér með verðlaunagrip sem honum var afhentur. FRÉTTASKÝRING Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is ,,Það var auðvitað sjokk að heyra að meðgöngueitrun geti stytt líf þeirra sem fá hana um tíu ár. Það hefur lítil sem engin umræða verið um þessar staðreyndir undanfarin ár né heldur tengsl meðgöngueitrunar og heilabil- unar eins og fram kemur í rannsókn sem birt er á síðunni okkar. Fyrstu viðbrögð voru því að setja af stað fés- bókarhópinn Meðgöngueitrun - um- ræður, og deila á honum rannsóknum og sögum kvenna sem fengið hafa meðgöngueitrun,“ segir Dóra Magn- úsdóttir sem stofnaði hópinn ásamt vinkonu sinni Elínu Eiríksdóttur. Á sunnudag höfðu þegar yfir 280 konur skráð sig í hópinn. Bæði Dóra og Elín hafa fengið meðgöngueitrun en hvor- ug heyrt talað um fylgikvilla með- göngueitrunar að meðgöngu lokinni út allt lífið fyrr en í viðtali við Svein- björn Gizurarson, prófessor í lyfja- fræði við Háskóla Íslands, í morg- unútvarpi RÚV í síðustu viku. Dóra segir að í ljós hafi komið í umræðum á fésbókarhópnum að margar konur deili þeirri reynslu að meðgöngueitr- un hafi breytt heilsu þeirra var- anlega. Meðgöngueitrun stórmál ,,Meðgöngueitrun er vanmetinn sjúkdómur og það er stórmál að kon- ur sem fá meðgöngueitrun séu í allt að tólffalt meiri hættu á að fá hjarta- og æðasjúkdóma og sykursýki og hugsanlega börn þeirra líka,“ segir Sveinbjörn Gizurarson, lyfjafræð- ingur sem rannsakað hefur ásamt fleirum hvernig hægt sé að þróa lyf til þess að auka magn tiltekins prótíns sem eingöngu er framleitt í fylgjunni. Ef prótínframleiðsla er ekki næg reynir líkaminn allt til þess að koma meira blóði í gegnum fylgjuna með tilheyrandi hækkun blóðþrýstings, próteina í þvagi og öðru því sem fylgir meðgöngueitrun. Sveinbjörn segir að ekki hafi skort á rannsóknir á með- göngueitrun og afleiðingum hennar. Það hafi hins vegar skort mikið á um- ræðu og eftirfylgni með konum sem fá meðgöngueitrun og búa við afleið- ingar hennar út ævina. Sveinbjörn segir að konur sem fengið hafa með- göngueitrun ættu að vera í stöðugu eftirliti hjá Hjartavernd eða hjarta- lækni. Sveinbjörn vonast til þess að innan 10 til 15 ára verði komin lyf sem hjálpi til við að undirbúa æðarkerfið í kring- um legið fyrir meðgöngu. Hann segir að hann hafi í sjö til átta ár unnið að rannsóknum á prótíninu og það hjálpi mikið til að Tækniþróunarsjóður hafi sett fé í lyfjarannsóknina. Að sögn Sveinbjarnar hefur Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi skoðað langtímaafleiðingar meðgöngueitr- unar og hann telur nauðsynlegt að upplýsa konur sem fengið hafa með- göngueitrun um afleiðingar hennar. Afleiðingar meðgöngueitr- unar vanmetinn sjúkdómur  Tólffalt meiri hætta á hjarta- og æðasjúkdómum og sykursýki  Lítið rætt Barnshafandi Meðgöngueitrun getur haft afleiðingar á heilsufar kvenna til langframa. Það gleymist oft þegar fæð- ingu er lokið að fylgja konum sem fengið hafa meðgöngueitrun á meðgöngu eftir í heilbrigðiskerfinu. Ólafur Bernódusson Skagaströnd Loks sér fyrir endann á gerð smá- bátahafnar í Skagastrandarhöfn því verið er að leggja lokahönd á að koma flotbryggjunum fyrir á sínum stað. Gerð smábátahafnarinnar er um hálfu ári á eftir áætlun, sem helgast fyrst og fremst af því að verktakarnir sem hófu verkið gáfust upp í miðjum klíðum. Eftir að samningum við frá- farandi verktaka og við nýja aðila lauk hefur verkið gengið samkvæmt áætlun og þessa dagana er verið að festa flotbryggjurnar. Alls eru um 30 legurými við nýju bryggjurnar, sem leysa brýna þörf því fram að þessu hafa strand- veiðibátarnir þurft að liggja hver ut- an á öðrum allt upp í fjóra báta í röð. Eftir að nýju bryggjurnar verða teknar í gagnið verður hver bátur á sínum „bás“ og þar með óháður öðrum. Jafnframt er verið að leggja vatn og rafmagn að bryggjunum og koma fyrir lýsingu við þær. Sandur- inn og móhellan sem kom upp úr dokkinni þar sem höfnin er voru not- uð í uppfyllingu við hana og verður líklega nýtt sem gámasvæði fyrir út- gerðarmennina sem nota hana. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Ný smábátahöfn Starfsmenn Króla vinna við að festa flotbryggjurnar með öflugum keðjum við stóra steypuklumpa sem sökkt var á sjávarbotninn. Ný smábátahöfn á Skagaströnd Jón Pétur Zim- sen, aðstoð- armaður Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningar- málaráðherra, lætur af störfum í ráðuneytinu að loknu sumarleyfi á fimmtudag. Jón Pétur sem verið hefur í sumarleyfi síðustu vik- ur segir að hann hafi aldrei ætlað sér að vera lengur en eitt ár sem aðstoðarmaður ráðherra en vel geti komið til greina að hann sinni ein- staka verkefnum fyrir ráðuneytið í framhaldinu, það eigi eftir að koma í ljós. Jón Pétur segist hafa ýtt ákveðnum verkefnum úr vör og gangi sáttur frá borði. ge@mbl.is Aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur hættir Jón Pétur Zimsen Hulda Hjartardóttir, yfirlæknir á meðgöngu- og sæng- urlegudeild Landspítalans segir æskilegt að koma upp ferli um hvernig fylgja eigi eftir konum sem fengið hafa alvarlegar meðgöngueitranir. Slíkt sé ekki fyrir hendi í dag, þrátt fyrir að langt sé síðan vitað var að með- göngueitrun, sérstaklega snemmkomin, geti aukið áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum. ,,Meðgöngueitrun vill gleymast að lokinni fæðingu og að sjúkdómurinn geti haft síðkomnar afleiðingar. Það eru engar einfaldar lausnir þekktar aðrar en þær að þessar konur hugi að lífsstíl sínum. Hreyfi sig reglulega, reyni að halda kjörþynd, sleppi reykingum, gæti að mataræði og lifa al- mennt heilbrigðu lífi til þess að minnka áhættuna á hjarta- og æða- sjúkdómum“ segir Hulda og bætir við að upplýsingar um meðgöngueitr- un sem berast á heilsugæsluna eftir fæðingu gætu verið tilefni til frekari eftirfylgni. Fylgja þarf konum betur eftir MEÐGÖNGUEITRUN Hulda Hjartardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.