Morgunblaðið - 12.08.2019, Side 8

Morgunblaðið - 12.08.2019, Side 8
Hátt í þrjú þúsund manns í fullum að- alsal kvikmyndahátíðarinnar í Loc- arno í Sviss stóðu upp og fögnuðu að- standendum kvikmyndarinnar Berg- máls, að lokinni heimsfrumsýningu í gær. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá Bergmáli. Þar segir að mikil eftirvænting hafi ríkt eftir Berg- máli eftir að hún var valin til að keppa um Gyllta Hlébarðann í Locarno sem eru ein af virtustu kvikmyndaverð- launum sem veitt eru árlega. ,,Ótrúleg viðbrögð sem fóru fram úr björtustu vonum. Það eru frábærir listamenn og fagfólk sem komu að gerð Bergmáls. Þessi viðbrögð eru heiður fyrir okkur öll og viðurkenn- ing fyrir íslenska kvikmyndagerð,“ segir Rúnar Rúnarsson, leikstjóri myndarinnar. Lilja Ósk Snorradóttir, framleiðandi hjá Pegasus, segir að Bergmál sé listrænt djörf en á sama tíma einstaklega falleg og mann- eskjuleg mynd sem sameini margt. Húmor, sorg og fegurð. Lilja segir viðbrögð áhorfenda hafa verið ótrúleg og sérstaklega skemmtilegt að fá að upplifa það með hluta fólksins sem kom að myndinni. ,,Heimsfrumsýning í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Locarno er mikill heiður fyrir okkur sem stönd- um að myndinni,“ sagði Lilja. ge@mbl.is ,,Viðbrögð áhorfenda ótrúleg“  Uppskar standandi lófaklapp eftir heimsfrumsýningu í Locarno í Sviss Framleiðendur Live Hide, Rúnar Rúnarsson og Lilja Ósk Snorradóttir 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019 Gatnamótin þar sem Geirsgatanmætir Lækjargötu og Kalk- ofnsvegi voru lengi vel ágæt. Svo ákvað meirihlutinn í borginni fyrir sex árum síðan að stækka lóðirnar næst gatnamótunum og til að ná því fram var gatnamótunum breytt í svokölluð T-gatnamót.    Afleiðingarnar hafa svo orðið þærað umferðarteppur hafa aukist verulega og nú bíða ökumenn þar sem umferðin rann áður greiðlega.    Þetta var fyrirsjáanlegt enda varvið þessu varað þegar breyt- ingin var ákveðin. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn bentu til dæmis á að gatnamótin eins og þau þá voru virkuðu prýðilega og enga brýna nauðsyn bæri til að breyta þeim.    Á þetta var ekki hlustað endastefna borgarinnar að hægja á umferð og draga úr notkun einka- bíla með því að búa til þrengingar og umferðarteppur.    Sú stefna var ekki orðin eins skýrút á við á þessum tíma og nú er, en nú er hún rekin nánast grímu- og blygðunarlaust.    Erfitt og nánast ómögulegt verð-ur að vinda ofan af þessum mistökum enda hafa háar byggingar risið og eru að rísa þar sem gatna- mótin hefðu þurft að vera.    En það er afar brýnt að borg-arbúar átti sig á þeirri eyði- leggingu sem borgaryfirvöld vinna að í umferðarmálum til að hægt verði við fyrsta tækifæri að stöðva frekari skemmdarverkastarfsemi. Ásetningsbrot STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ísafjörður, mánudaginn 12. ágúst. Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði, klukkan 20:00. Fundarstjóri: Einar Kristinn Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis. Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynnir þróun, stöðu og áskoranir í peninga- og efnahagsmálum við lok 10 ára skipunartíma hans á opnum fundum: Markmið, árangur og áskoranir Fundir með Má Guðmundssyni seðlabankastjóra Akureyri, þriðjudaginn 13. ágúst. Hof, klukkan 17:00 Fundarstjóri: Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Neskaupstaður, miðvikudaginn 14. ágúst. Egilsbúð, klukkan 20:00 Fundarstjóri: Smári Geirsson kennari og fyrrum formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Árborg, mánudaginn 19. ágúst. Hótel Selfoss, klukkan 12:00 Fundarstjóri: Guðni Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Dalvíkingurinn Gunnar Arason fyrrverandi skipstjóri var heiðraður fyrir farsælan sjómannsferil sinn og framlag til sjávarútvegsins á samkomu Fiskidagsins mikla á Dal- vík sem haldinn var um helgina. Svanfríður Inga Jónasdóttir, fyrr- um bæjarstjóri og alþingismaður, sá um þann lið hátíðarhaldanna eins og venjulega. Fyrst varð Gunnar Arason skip- stjóri árið 1963, þá aðeins 22 ára, og 1968 tók hann við nýju og glæsi- legu skipi, Lofti Baldvinssyni EA 24. Síldin hafði þá breytt göngu sinni frá hefðbundnum miðum ís- lenskra fiskiskipa. Hinu nýja skipi var þá um haustið haldið til veiða í Norðursjónum og náði á stuttum tíma frábærum árangri við síldveið- ar þar og frágang aflans, sem tryggði þeim hæstu verð. Það varð með öðru til þess að Loftur Bald- vinsson EA 24 var um árabil með mestu verðmæti allra íslenskra fiskiskipa. Fjölmenni var að vanda á Fiski- deginum mikla sem nú var haldinn í 19. sinn. Veðurspá var slæm en úr rættist. Gestir voru, skv. áætlun á bili 27-28 þúsund talsins, segja að- standendur hátíðarinnar. sbs@mbl.is Gunnar heiðraður á Fiskideginum mikla  Fjölmennt á Dalvík og sæmilegt veður Veitingar Fiskidagsgestir gerðu fiskibollunum góð skil. Ljósmyndir/Atli Rúnar Heiðraður Gunnar Arason skip- stjóri og Svanfríður Jónasdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.