Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2019, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.8. 2019 Þú, lesandi góður, getur valið afhverjum þú kaupir rafmagn.Þú getur farið á netið hvenær sem er, gert verðsamanburð með ein- földum hætti og skipt um orkusala á augabragði. Samkeppnin í orkusölu er ekki full- komin en hún er þó fyrir hendi. Fyrirtæki nýta sér hana í töluverðum mæli og geta þannig sparað umtals- verðar fjárhæðir. Einstaklingar gera minna af þessu, kannski af því að við erum svo heppin að rafmagnið hér er ódýrt. Seljendur fá þó mikilvægt að- hald með því að möguleikinn sé fyrir hendi. Nauðsynleg forsenda fyrir sam- keppni er að allir seljendur hafi jafn- an aðgang að línunum sem flytja raf- magnið. Línurnar eru að miklu leyti í eigu stórra orkuframleiðenda og þess vegna er bæði skynsamlegt og nauð- synlegt að setja reglur um jafnan að- gang að þeim. Orkupakki í þágu neytenda Við sjálfstæðismenn erum með réttu stoltir af því að hafa staðið fyrir frelsisvæðingu á mörgum sviðum at- vinnulífsins, ekki síst undir lok síð- ustu aldar. Merkilegt skref á þeirri vegferð var stigið hinn 26. nóvember 1999. Þá ákvað Ísland að taka þátt í að stað- festa í sameiginlegu EES-nefndinni að fyrsti orkupakkinn skyldi verða hluti af EES-samningnum. Stuðlað skyldi að frjálsri samkeppni í fram- leiðslu og sölu rafmagns. Árið eftir aflétti Alþingi stjórn- skipulegum fyrirvara við þessa ákvörðun. Það var heillaskref fyrir neytendur, sem hafa í dag valfrelsi sem þeir höfðu ekki þá. Og Hag- fræðistofnun Háskóla Íslands komst að þeirri niðurstöðu að aðskilnaður sérleyfis- og samkeppnisrekstrar hefði leitt af sér þjóðhagslega hag- kvæmara raforkukerfi. Hárréttar röksemdir Í umræðum á Alþingi um innleiðingu fyrsta orkupakkans 4. maí árið 2000 sagði Tómas Ingi Olrich, þingmaður Sjálfstæðisflokksins: „Það er sem sagt kominn á virkur orkumarkaður í Evrópusambandinu. […] Það hefur verið heilmikið átak fyrir Evrópusambandið að koma á virkum samkeppnismarkaði á þessu sviði vegna þess að þarna voru rík- isfyrirtæki fyrir sem einkenndu þennan markað. En þetta hefur tek- ist og t.d. komist á mjög virkur gas- markaður í Evrópu og raforkumark- aður líka. Lykillinn að þessari markaðs- væðingu orkumálanna hefur verið að flutningakerfin standi samkeppn- isaðilum opin. Það er minna atriði hverjir eru eigendur flutningakerf- anna. Aðalatriði málsins er að virk samkeppni komist á þar eð öllum standi til boða að nýta flutn- ingakerfin.“ Og áfram: „Hér hefur verið rætt um hversu mikla þýðingu þessi orku- markaður hefði fyrir Ísland. Frá mínum bæjardyrum séð kemur þetta til með að hafa, a.m.k. fyrst til að byrja með, frekar litla þýðingu fyrir íslenska markaðinn því að hann er einangraður. Hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að hér geti orðið raunhæf samkeppni um framleiðslu og sölu á raforku. En hér hlýtur að gilda það sama og í Evrópu, að til þess að slík samkeppni komist á er afar mikilvægt að menn hafi jafnan aðgang að flutningakerfunum. Yf- irleitt er í þessum reglum um sam- keppni á orkumarkaði gengið mjög tryggilega frá því að fyrirtækin sem annast framleiðslu og sölu á orku geti ekki einokað flutningakerfin. Ég get vel fallist á að hér er um mikilvægt mál að ræða. Ég er hins vegar ekki sammála því að þarna sé um hættulegt mál að ræða. Þetta er hluti af því samkeppnislandslagi sem verið er að leiða okkur inn í síðan við gengum í hið Evrópska efnahags- svæði sem hefur í stórum dráttum orðið okkur til góðs.“ Ekki frávik heldur framhald Ótrúlegum ósannindum hefur verið haldið að fólki um að þriðji orkupakk- inn feli í sér grundvallarbreytingar á skipan orkumála hér á landi. Það er einfaldlega ekki satt. Þriðji orku- pakkinn breytir engu um eðli þeirrar frelsis- og markaðsvæðingar á fram- leiðslu og sölu rafmagns sem ákveðin var með fyrsta orkupakkanum fyrir tuttugu árum – og sem var í fullu samræmi við stefnumörkun og að- gerðir Sjálfstæðisflokksins á þeim tíma sem allar miðuðu að bættum hag neytenda. Voru þeir sem þá stýrðu landinu að afsala forræði á auðlindinni til Evr- ópusambandsins? Nei, svo sann- arlega ekki. Engu að síður þýðir EES- samningurinn, og í öllu falli innleið- ing fyrsta orkupakkans sem ákveðin var í EES-nefndinni 1999 og staðfest af Alþingi ári síðar, að eftirlit með til- teknum leikreglum í orkugeiranum er hjá stofnunum EES. Eftirlits- stofnun EFTA (ESA) hefur t.d. stöðvað ívilnanir til orkufreks iðn- aðar á grundvelli ríkisstyrkjabanns EES. Sama stofnun fer líka yfir orkusölusamninga til stóriðju til að sannreyna að þeir séu gerðir á mark- aðslegum forsendum. Þessi staða hefur verið uppi í a.m.k. tuttugu ár án þess að það hafi valdið uppnámi, enda engin ástæða til. Í þriðja orkupakkanum felst ekk- ert afsal á forræði yfir auðlindinni. Ekkert raunverulegt valdaframsal á sér stað, vegna þess að Ísland er ótengt. Engar erlendar stofnanir öðl- ast valdheimildir hér á landi við inn- leiðinguna. Allir fræðimenn sem fjallað hafa um málið eru sammála um að innleiðingin standist stjórn- arskrá. Þetta eru staðreyndir málsins. Fremur en að hverfa aftur til hafta og einokunar ættum við að mínu viti að horfa til framtíðar og freista þess að nýta kosti samkeppninnar enn betur en hingað til, í þágu neytenda, ásamt því að tryggja betur afhend- ingaröryggi og auka jafnræði varð- andi dreifingarkostnað raforkunnar, eins og við höfum fullar heimildir til að gera. Fyrir frelsið, fyrir neytendur ’Við sjálfstæðismennerum með réttu stolt-ir af því að hafa staðiðfyrir frelsisvæðingu á mörgum sviðum at- vinnulífsins, ekki síst undir lok síðustu aldar. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Hægt er að skilgreina ástríðu sem mikla löngun/vilja til að verða betri eða ná árangri á vissu sviði(e. passion for achievement). Ef við sjáum fyrir okkur ör af vissri stærð þá hefur hún stefnu, styrk og stærð. Stefnan: Mikilvægt er að skilja að ástríða setur stefn- una fyrir hvaða svið/þema/færni við viljum bæta okkur í eða ná árangri í. Styrkur/stærð: Það er úr mörgu að velja og mikilvægt er að reyna að finna það svið sem maður hefur mikla löng- un til að bæta sig á. Styrkur og stærð ræðst á því sem Angela Duckworth kallar þrautseigju (e. grit). Aðrir fræðimenn tala um e. „mental toughness“, eða „hardi- ness“. Menn telja að gróskuhugarfar sé mikilvægt til að einstaklingar öðlist þrautseigju og nái að takast á við verð- ugar áskoranir á jákvæðan hátt. Stikkorðið í sambandi við gróskuhugarfar er að sjá möguleikana á grósku eða vexti. Ef einstaklingur sem ekki hefur ennþá góða kunnáttu í að spila á gítar er spurður hvort hann hafi góða færni í gítarleik svarar sá sem hefur gróskuhugarfar „ekki enn þá“. Sem þýðir að einstaklingurinn telur sig ekki hafa þá færni enn þá en að hann geti tileinkað sér hana með þjálfun. Prófessor Carol Dweck hefur fundið út með áratuga rann- sóknum að gróskuhugarfar er mikilvægt til að ná árangri á mismunandi sviðum. Þannig má segja að það að finna út hvað kveikir hjá þér neista eða ástríðu sé gífurlega mikilvægt hlutverk for- eldra, kennara og annarra sem sinna umönnun ein- staklinga. Lestur: Í sambandi við lestur/lesþróun sýna rannsóknir fram á mikilvægi réttra bóka fyrir einstaklinga. Hvað þá langar að lesa tengist kyni, mismunandi bækur kveikja áhuga hjá strákum og stelpum. Hvernig kveikjum við lestrarneistann og fáum börn/unglinga til að lesa meira og öðlast þannig mikilvæga þjálfun fyrir lestur sem skilar sér í meiri lesskilningi og þekkingu? Hreyfing: hvað fær einstakling til að stunda reglulega hreyfingu? Hvort sem það er barn, ung- lingur eða eldri. Höfum hugfast að stunda hreyfingu í 30-60 mínútur á dag á að vera markmið okkar. Hvað fær okkur til að kveikja hreyfingarneistann óháð aldri? Náttúrufræði: hvernig náum við að kveikja áhugann hjá börnum og ung- lingum á sviði náttúrufræði, umhverf- isverndar og sjálfbærni. Meiri þekking á þessu mikilvæga sviði skilar sér í meiri fókus á þessi málefni fyrir komandi kynslóðir. Gefum okkur tíma til að finna hvað okkur langar að fást við og bæta okkur í. Okkar rannsóknarhópur hefur nú þróað nýtt próf (e. Passion Scale, birt í tímaritinu New Ideas in Psychology) þar sem hægt er að mæla ástríðu fyrir því að verða betri á sínu sviði. Fyrstu niðurstöður eru gífurlega spennandi og geta varpað ljósi á meðal annars kynjamismun á sambandi ástríðu og þrautseigju og ástríðu og gróskuhugarfars. Einnig getur prófið hjálpað okkur að skilja betur það flókna samspil ólíkra þátta sem eru mikilvægir fyrir nám, það að bæta sig og að ná árangri. Ástríða setur stefnuna Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hermundurs@ru.is ’ Fyrstu niðurstöðureru gífurlegaspennandi og getavarpað ljósi á meðal annars kynjamismun á sambandi ástríðu og þrautseigju og ástríðu og gróskuhugarfars. Verk eftir Einar Jónsson myndhöggvara. Rekaviðarhálsmen frá kr. 15.500 Teketill úr postulíni kr. 36.500 Smádúkur úr lífrænni bómull kr. 4.900 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Roðtöskur OPIÐ ALLA H ELGINA NÝ VER SLUN Í MÖRKI NNI 3 O G UNDIRH LÍÐ 2 A KUREY RI ÓTRÚLE G OPNU NAR- TILBOÐ Mörkin 3 • Reykjavík | Undirhlíð 2 • Akureyri

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.