Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2019 Alan Smith, sparkskýrandi Sky Sports-sjónvarpsstöðvarinnar, er á því að Arsenal hafi átt mestu láni að fagna í félaga- skiptaglugga sumarsins, sem lokað var fyrir helgina. Gefur sínu gamla félagi A+. Það mat kallast á við sýn notenda vefsíðu Sky Sports sem gefa Arsenal einnig hæstu einkunn. Athygli vekur að Liverpool leggst þar á botninn enda hafði Rauði herinn afar hægt um sig á markaðnum í sumar. Smith bendir að vísu á að liðið sé svo gott að engin ástæða sé til að kaupa bara til að kaupa. Aston Villa, sem sópaði til sín leikmönnum, fær A hjá Smith, Manchester City, Sheffield United, Tottenham, Watford og West Ham A-. Lægstu einkunnina fær Burnley, C. Brighton C+. Manchester United fær B en Chelsea komst ekki á blað hjá Smith enda bannað að kaupa. Lesendur settu Chelsea í nítjánda sæti, fyrir ofan Liverpool, sem sætir tíðindum í ljósi þess að þeir bláu misstu erkispyrni sinn, Eden Hazard. Spánverjinn Rodri er kominn til Manchester City. Gerði Arsenal bestu kaupin? Harry Maguire gekk til liðs við Manchester United. AFP Leiktíðin er hafin í ensku knattspyrnunni og búið að krækja félagaskiptaglugg- anum aftur. Hverjir gerðu bestu kaupin? Nicolas Pépé er dýrasti leikmaður í sögu Arsenal. Í Morgunblaðinu fyrir réttum átta áratugum, 11. ágúst 1939, var greint frá því að Birni Ólafs- syni hefði boðist einn mesti heiður, sem íslenskum fiðluleik- ara hefði hlotnast en það var að vera ráðinn í eina af frægustu hljómsveitum heimsins. „Er Björn hafði lokið prófi á Tónlistaháskólanum var honum boðið að leika sem fastráðinn maður í Wiener Philharm- oniker hljómsveitinni. Að- alstjórnandi þessarar hljóm- sveitar er nú Wilhelm Furtwangler. En margir af fræg- ustu hljómsveitarstjórum heimsins stjórna þessari hljóm- sveit, eins og t.d. Knapperts- busch, og fyrir eina tíð var Tosc- anini stjórnandi hennar. Björn hefir tekið þessu boði og fer til Vínarborgar aftur í lok sept- embermánaðar,“ stóð í frétt blaðsins. Fram kom að Björn væri að- eins 22 ára að aldri en hefði þó þegar vakið á sér eftirtekt í hljómlistarheiminum þýska fyrir leikni sína og kunnáttu. „Getum við landar hans verið hreyknir af frammistöðu hans og það mun síst ofspáð, að hann eigi eftir að verða landi sínu til sóma.“ GAMLA FRÉTTIN Landinu til sóma Björn Ólafsson var lengi í fremstu röð tónlistarmanna á Íslandi og varð síð- ar fyrsti konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Björn lést árið 1984. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Rupert Grint leikari Ed Sheeran tónlistarmaður Guðmundur Karl Guðmundsson knattspyrnumaður TRATTO model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla MENTORE model 3052 L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 389.000,- L 201 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,- ESTRO model 3042 L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 365.000,- STAN model 3035 L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,- L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- JEREMY model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.