Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Side 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2019 Þ að er notalegt að koma inn í eldhús- ið heima hjá lögreglustjóranum á Akureyri. Halla Bergþóra Björns- dóttir býður upp á kaffi og eðal- konfekt frá Vínarborg sem er kærkomið eftir bílferðina norður til Akureyr- ar. Sólin skín norðan heiða þennan fína sum- ardag á umdæmið hennar Höllu, en það er reyndar geysistórt og nær lengst inn á há- lendi. Halla er nýorðin fimmtug og er á hátindi ferilsins en hún hefur komið víða við á leið sinni í lögreglustjórastólinn. Sveitastúlkan frá Laxamýri er aftur komin heim á æskuslóðir, svo að segja, eftir áratugi í höfuðborginni. Við hefjum spjallið á æskuárunum í sveitinni fyrir norðan. Sveitastúlkan í borginni „Ég er frá Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp,“ segir Halla. „Þarna var fé- lagsbú bræðra; pabbi var með kýrnar og bróð- ir hans með kindurnar. Ég var mikið með pabba í fjósinu og vann sveitastörf frá því að ég man eftir mér,“ segir Halla en á Laxamýri búa enn móðir hennar og bróðir sem er for- stjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. „Ég fékk mjög gott uppeldi og það var ynd- islegt að alast upp í sveit.“ Halla sleit þarna barnsskónum; gekk í sveitaskólann Hafralækjarskóla og skóla á Húsavík og endaði svo í Menntaskólanum við Sund. Það má því segja að hún hafi flutt að heiman sextán ára. „Þá sá maður hversu mikill lúxus það var að búa í foreldrahúsum; þarna þurfti ég að leigja íbúð og kaupa í matinn en þetta var auðvitað góður skóli og á meðan vinkonurnar fóru til Ibiza á sumrin þurfti ég að fara heim í sveitina að vinna til að eiga fyrir leigunni næsta vetur,“ segir hún og bætir við að sunnlensku krakk- arnir hafi tekið sér vel. „Þau sáu auðvitað að ég var sveitastelpa og fannst ég heldur róleg til að byrja með. En það átti eftir að breytast.“ Fyrsta kvenlöggan á Húsavík Eftir menntaskólann ákvað Halla að taka sér ársleyfi frá námi og fór að vinna hjá Alþýðu- blaðinu og Pressunni. „Ég var í öllu; á síman- um, útbúa reikninga, sjá um blaðburðarfólkið og skrifa smávegis um hvað væri á döfinni um helgina. Þetta var mjög skemmtilegur vetur,“ segir hún en segist samt sem áður ekki hafa viljað halda áfram á fjölmiðlabrautinni. „Ég var búin að ákveða að verða annaðhvort ljósmóðir eða lögfræðingur. Það er ekki mjög líkt,“ segir hún og hlær. „Ég valdi lögfræðina og ég held það hafi verið vegna réttlætiskenndar. Í menntaskóla hafði ég tekið lögfræði í valáfanga og fannst það skemmtilegt,“ segir Halla sem hóf nám í lögfræði eftir árið í fjölmiðlum. Þegar kom að sumarvinnu leitaði hugurinn norður. „Ég sótti um að leysa af í lögreglunni á Húsavík og var þá fyrsta konan sem vann sem lögreglumaður þar í bæ. Ég var þar í þrjú sumur í afleysingum og var almennt tekið mjög vel. Það var kannski einn og einn í sam- félaginu sem fannst ég ekki eiga heima þarna sem kona,“ segir hún og hlær. „Ég var til dæmis spurð hvernig ég sem kona ætti að ráða við drukkna menn.“ Halla segist hafa lært mikið þessi sumur í lögreglunni og greinilegt að áhuginn á lög- gæslu var kviknaður. „Það var mjög þroskandi og margt sem kom á óvart. Það var mikið að gera enda stórt um- dæmi. Ég lenti í öllu; umferðarslysum, heim- ilisofbeldi og slagsmálum. Svo auðvitað að að- stoða fólk,“ segir hún og segir starfið hafa heillað sig. „Það er svo margt gott sem gerist í leiðinni og maður finnur tilgang með starfinu. Lög- reglustarfið er mjög mannlegt starf,“ segir Halla. Heilsar góðkunningjum í bíó Eftir lögfræðinámið vann Halla einn vetur hjá sýslumanninum í Reykjavík og síðar á Húsa- vík þar sem hún sá um lögreglu- og ákærumál. Þaðan flutti Halla til Svíþjóðar þar sem hún nam Evrópurétt því hugurinn stóð til vinnu í ráðuneyti. Hún kom heim úr meistaranáminu árið 1999 og ári síðar kynnist Halla eiginmanni sínum, Kjartani Jónssyni rafmagnsiðnfræð- ingi, og eiga þau tvö börn á unglingsaldri. Undarlegt nokk var eiginmaðurinn úr sama landshluta og Halla. „Hann er frá Húsavík. Ég þekkti hann að- eins áður en ekki mikið en við vorum aldrei saman í skóla sem börn eða unglingar. Ég hitti hann fyrst í gönguferð í Kverkfjöllum,“ segir hún og segir þau fyrst hafa verið í fjar- sambandi þar sem hún bjó í höfuðborginni en hann fyrir norðan. Eftir námið í Svíþjóð vann Halla um stund á lögmannsstofu en fór þaðan í dómsmálaráðu- neytið. „Ég byrjaði í einkamálunum og hélt utan um ættleiðingar- og fjölskyldumál. Svo fór ég yfir á löggæsluskrifstofuna og var þá með lög- gæslu- og fangelsismál, auk starfsmannamála ráðuneytisins. Það var mjög góð reynsla og svo var mikið um vinnufundi erlendis í sam- starfi við lögreglu í Evrópu,“ segir hún en þarna vann hún í sjö ár. Gekkstu með lögreglustjóradrauma í mag- anum? „Nei, ekki beint þá en mig langaði að verða sýslumaður. Svo í hruninu, árið 2009, þegar var stofnað embætti sérstaks saksóknara, fór Ólafur Hauksson, sem hafði verið sýslumaður á Akranesi, í það embætti og ég var sett til bráðabirgða í sýslumannsembættið þar, sem var þá líka lögreglustjóraembættið,“ segir Halla og gegndi hún því starfi í sex ár. „Ég bjó samt áfram í Reykjavík og keyrði á milli. Mætti Ólafi í göngunum,“ segir hún og hlær. Halla naut sín vel á Akranesi og kynntist starfi sýslumanns og lögreglustjóra. „Þetta var frábær tími. Það var mjög gaman að vera á Akranesi en ég hafði eiginlega aldrei farið þangað áður. Þar er indælt fólk, upp til hópa, en svo þekkti maður líka góðkunn- ingjana. Ég var með öll ákærumálin þannig að ég þekkti þá menn ágætlega. Ef ég fór í bíó var ég stundum að heilsa ungum strákum og átti erfitt með að segja manninum mínum hvernig ég þekkti þessa ungu menn, enda bundin trún- aði,“ segir hún og hlær. „Það er dálítið skrítið að þótt maður sé að ákæra menn þá heilsa þeir manni oftast mjög almennilega.“ Að fara í mál við yfirmanninn „Á þessum tíma sótti ég um sýslumannsemb- ættið á Húsavík en fékk ekki. Ég fór í mál og það fór fyrir kærunefnd jafnréttismála og ég vann málið. Það var karlmaður sem sótti á móti en sá var þá settur sýslumaður þar. Það var hringt í mig og ég spurð hvort ég væri ekki til í að afturkalla umsóknina af því fólki fannst það einfaldast. En ég vildi það ekki. Hann hélt starfinu en ég fékk einhverjar miskabætur. Þetta voru í raun engar bætur, en fyrir mér var þetta meira prinsippmál,“ segir hún og segir þetta hafa tekið á. „Það var erfitt að þurfa að fara í mál við yf- irmann minn hjá dómsmálaráðuneytinu, Ög- mund Jónasson, af því ég var holl mínum vinnuveitendum. Hann hafði skipað í emb- ættið, þannig að það var frekar skrítið,“ segir Halla og bætir við að klárt mál hafi verið að hún hafi verið hæfari umsækjandinn. „Rétt skal vera rétt. Þetta var góð lífs- reynsla og þroskandi. En ég upplifði aldrei neina reiði og ég fann fyrir miklum stuðningi. En sumir nefndu við mig hvort ég þyrfti nokk- uð að vera með þetta vesen,“ segir hún og hlær. Þrjátíu þúsund manna umdæmi Fyrir nokkrum árum voru gerðar breytingar í löggæslumálum á Íslandi og sýslumanna- og lögreglustjóraembættin aðskilin. „Umdæmin voru stækkuð, eins og hér fyrir norðan, og ráðinn einn sýslumaður og einn lög- reglustjóri. Þannig var það að þeir sem voru sýslumenn og lögreglustjórar máttu sækja um störfin og ég sótti um hér sem fyrsta val. Mig langaði frekar að vera lögreglustjóri en sýslu- maður; ég var búin að gera það upp við mig að ég hafði meiri áhuga á löggæslumálum,“ segir Halla, sem fékk þá starf lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og flutti með fjölskylduna til Akureyrar. „Ég hafði aldrei búið hér og þekkti mjög fáa. Það var mjög ljúft að koma hingað. Það er veð- ursæld hér og oft logn; það er mun vinda- samara í Þingeyjarsýslu. Akureyri er mjög vinalegur og góður bær sem tekur vel utan um fólk.“ Halla segist hafa kynnst góðu fólki á Akur- eyri þótt klárlega vilji ekki allir eiga lög- reglustjórann að besta vini. „Ég er auðvitað búin að búa í Reykjavík síð- an ég var sextán og maður finnur að þar er maður með rætur. Það kom eiginlega á óvart þegar ég flutti norður að finna það, af því ég er auðvitað að norðan. Ég hélt það yrði lítið mál en ég fann að þetta voru smá viðbrigði. En ég er fyrst og fremst Laxmýringur,“ segir Halla og brosir. Eins og fyrr segir stækkaði umdæmi lög- reglunnar til muna um það leyti sem Halla tók við sem lögreglustjóri á Norðurlandi eystra. „Áður fyrr náði löggæslan hér yfir Siglu- Lögreglan er fyrir fólkið Á Norðurlandi eystra hefur Halla Bergþóra Björnsdóttir gegnt stöðu lögreglustjórans síðan í ársbyrjun 2015. Hún hefur unnið ötullega í málefnum fólks sem orðið hefur fyrir heimilisofbeldi og var nýlega opnuð þar miðstöð fyrir þolendur. Halla nýtur sín vel í starfi enda hefur hún brennandi áhuga á löggæslu- málum. Hún segir lögreglu eiga fyrst og fremst að þjóna al- menningi, tryggja öryggi og hjálpa fólki í viðkvæmri stöðu. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Halla Bergþóra vill að þjóðfélagið fari að hugsa betur um ungt fólk sem á í fíkni- efnavanda og er jafnvel líka með geð- sjúkdóma, en það fólk gistir oft fanga- klefa þar sem það á ekki heima. Henni er umhugað um fólk í viðkvæmri stöðu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.