Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Page 14
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2019
Þ
að er notalegt að koma inn í eldhús-
ið heima hjá lögreglustjóranum á
Akureyri. Halla Bergþóra Björns-
dóttir býður upp á kaffi og eðal-
konfekt frá Vínarborg sem er
kærkomið eftir bílferðina norður til Akureyr-
ar. Sólin skín norðan heiða þennan fína sum-
ardag á umdæmið hennar Höllu, en það er
reyndar geysistórt og nær lengst inn á há-
lendi. Halla er nýorðin fimmtug og er á hátindi
ferilsins en hún hefur komið víða við á leið
sinni í lögreglustjórastólinn. Sveitastúlkan frá
Laxamýri er aftur komin heim á æskuslóðir,
svo að segja, eftir áratugi í höfuðborginni.
Við hefjum spjallið á æskuárunum í sveitinni
fyrir norðan.
Sveitastúlkan í borginni
„Ég er frá Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu
og ólst þar upp,“ segir Halla. „Þarna var fé-
lagsbú bræðra; pabbi var með kýrnar og bróð-
ir hans með kindurnar. Ég var mikið með
pabba í fjósinu og vann sveitastörf frá því að
ég man eftir mér,“ segir Halla en á Laxamýri
búa enn móðir hennar og bróðir sem er for-
stjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.
„Ég fékk mjög gott uppeldi og það var ynd-
islegt að alast upp í sveit.“
Halla sleit þarna barnsskónum; gekk í
sveitaskólann Hafralækjarskóla og skóla á
Húsavík og endaði svo í Menntaskólanum við
Sund. Það má því segja að hún hafi flutt að
heiman sextán ára.
„Þá sá maður hversu mikill lúxus það var að
búa í foreldrahúsum; þarna þurfti ég að leigja
íbúð og kaupa í matinn en þetta var auðvitað
góður skóli og á meðan vinkonurnar fóru til
Ibiza á sumrin þurfti ég að fara heim í sveitina
að vinna til að eiga fyrir leigunni næsta vetur,“
segir hún og bætir við að sunnlensku krakk-
arnir hafi tekið sér vel.
„Þau sáu auðvitað að ég var sveitastelpa og
fannst ég heldur róleg til að byrja með. En það
átti eftir að breytast.“
Fyrsta kvenlöggan á Húsavík
Eftir menntaskólann ákvað Halla að taka sér
ársleyfi frá námi og fór að vinna hjá Alþýðu-
blaðinu og Pressunni. „Ég var í öllu; á síman-
um, útbúa reikninga, sjá um blaðburðarfólkið
og skrifa smávegis um hvað væri á döfinni um
helgina. Þetta var mjög skemmtilegur vetur,“
segir hún en segist samt sem áður ekki hafa
viljað halda áfram á fjölmiðlabrautinni.
„Ég var búin að ákveða að verða annaðhvort
ljósmóðir eða lögfræðingur. Það er ekki mjög
líkt,“ segir hún og hlær.
„Ég valdi lögfræðina og ég held það hafi
verið vegna réttlætiskenndar. Í menntaskóla
hafði ég tekið lögfræði í valáfanga og fannst
það skemmtilegt,“ segir Halla sem hóf nám í
lögfræði eftir árið í fjölmiðlum.
Þegar kom að sumarvinnu leitaði hugurinn
norður.
„Ég sótti um að leysa af í lögreglunni á
Húsavík og var þá fyrsta konan sem vann sem
lögreglumaður þar í bæ. Ég var þar í þrjú
sumur í afleysingum og var almennt tekið
mjög vel. Það var kannski einn og einn í sam-
félaginu sem fannst ég ekki eiga heima þarna
sem kona,“ segir hún og hlær.
„Ég var til dæmis spurð hvernig ég sem
kona ætti að ráða við drukkna menn.“
Halla segist hafa lært mikið þessi sumur í
lögreglunni og greinilegt að áhuginn á lög-
gæslu var kviknaður.
„Það var mjög þroskandi og margt sem kom
á óvart. Það var mikið að gera enda stórt um-
dæmi. Ég lenti í öllu; umferðarslysum, heim-
ilisofbeldi og slagsmálum. Svo auðvitað að að-
stoða fólk,“ segir hún og segir starfið hafa
heillað sig.
„Það er svo margt gott sem gerist í leiðinni
og maður finnur tilgang með starfinu. Lög-
reglustarfið er mjög mannlegt starf,“ segir
Halla.
Heilsar góðkunningjum í bíó
Eftir lögfræðinámið vann Halla einn vetur hjá
sýslumanninum í Reykjavík og síðar á Húsa-
vík þar sem hún sá um lögreglu- og ákærumál.
Þaðan flutti Halla til Svíþjóðar þar sem hún
nam Evrópurétt því hugurinn stóð til vinnu í
ráðuneyti. Hún kom heim úr meistaranáminu
árið 1999 og ári síðar kynnist Halla eiginmanni
sínum, Kjartani Jónssyni rafmagnsiðnfræð-
ingi, og eiga þau tvö börn á unglingsaldri.
Undarlegt nokk var eiginmaðurinn úr sama
landshluta og Halla.
„Hann er frá Húsavík. Ég þekkti hann að-
eins áður en ekki mikið en við vorum aldrei
saman í skóla sem börn eða unglingar. Ég hitti
hann fyrst í gönguferð í Kverkfjöllum,“ segir
hún og segir þau fyrst hafa verið í fjar-
sambandi þar sem hún bjó í höfuðborginni en
hann fyrir norðan.
Eftir námið í Svíþjóð vann Halla um stund á
lögmannsstofu en fór þaðan í dómsmálaráðu-
neytið.
„Ég byrjaði í einkamálunum og hélt utan um
ættleiðingar- og fjölskyldumál. Svo fór ég yfir
á löggæsluskrifstofuna og var þá með lög-
gæslu- og fangelsismál, auk starfsmannamála
ráðuneytisins. Það var mjög góð reynsla og
svo var mikið um vinnufundi erlendis í sam-
starfi við lögreglu í Evrópu,“ segir hún en
þarna vann hún í sjö ár.
Gekkstu með lögreglustjóradrauma í mag-
anum?
„Nei, ekki beint þá en mig langaði að verða
sýslumaður. Svo í hruninu, árið 2009, þegar
var stofnað embætti sérstaks saksóknara, fór
Ólafur Hauksson, sem hafði verið sýslumaður
á Akranesi, í það embætti og ég var sett til
bráðabirgða í sýslumannsembættið þar, sem
var þá líka lögreglustjóraembættið,“ segir
Halla og gegndi hún því starfi í sex ár.
„Ég bjó samt áfram í Reykjavík og keyrði á
milli. Mætti Ólafi í göngunum,“ segir hún og
hlær.
Halla naut sín vel á Akranesi og kynntist
starfi sýslumanns og lögreglustjóra.
„Þetta var frábær tími. Það var mjög gaman
að vera á Akranesi en ég hafði eiginlega aldrei
farið þangað áður. Þar er indælt fólk, upp til
hópa, en svo þekkti maður líka góðkunn-
ingjana. Ég var með öll ákærumálin þannig að
ég þekkti þá menn ágætlega. Ef ég fór í bíó var
ég stundum að heilsa ungum strákum og átti
erfitt með að segja manninum mínum hvernig
ég þekkti þessa ungu menn, enda bundin trún-
aði,“ segir hún og hlær.
„Það er dálítið skrítið að þótt maður sé að
ákæra menn þá heilsa þeir manni oftast mjög
almennilega.“
Að fara í mál við yfirmanninn
„Á þessum tíma sótti ég um sýslumannsemb-
ættið á Húsavík en fékk ekki. Ég fór í mál og
það fór fyrir kærunefnd jafnréttismála og ég
vann málið. Það var karlmaður sem sótti á
móti en sá var þá settur sýslumaður þar. Það
var hringt í mig og ég spurð hvort ég væri ekki
til í að afturkalla umsóknina af því fólki fannst
það einfaldast. En ég vildi það ekki. Hann hélt
starfinu en ég fékk einhverjar miskabætur.
Þetta voru í raun engar bætur, en fyrir mér
var þetta meira prinsippmál,“ segir hún og
segir þetta hafa tekið á.
„Það var erfitt að þurfa að fara í mál við yf-
irmann minn hjá dómsmálaráðuneytinu, Ög-
mund Jónasson, af því ég var holl mínum
vinnuveitendum. Hann hafði skipað í emb-
ættið, þannig að það var frekar skrítið,“ segir
Halla og bætir við að klárt mál hafi verið að
hún hafi verið hæfari umsækjandinn.
„Rétt skal vera rétt. Þetta var góð lífs-
reynsla og þroskandi. En ég upplifði aldrei
neina reiði og ég fann fyrir miklum stuðningi.
En sumir nefndu við mig hvort ég þyrfti nokk-
uð að vera með þetta vesen,“ segir hún og
hlær.
Þrjátíu þúsund manna umdæmi
Fyrir nokkrum árum voru gerðar breytingar í
löggæslumálum á Íslandi og sýslumanna- og
lögreglustjóraembættin aðskilin.
„Umdæmin voru stækkuð, eins og hér fyrir
norðan, og ráðinn einn sýslumaður og einn lög-
reglustjóri. Þannig var það að þeir sem voru
sýslumenn og lögreglustjórar máttu sækja um
störfin og ég sótti um hér sem fyrsta val. Mig
langaði frekar að vera lögreglustjóri en sýslu-
maður; ég var búin að gera það upp við mig að
ég hafði meiri áhuga á löggæslumálum,“ segir
Halla, sem fékk þá starf lögreglustjórans á
Norðurlandi eystra og flutti með fjölskylduna
til Akureyrar.
„Ég hafði aldrei búið hér og þekkti mjög fáa.
Það var mjög ljúft að koma hingað. Það er veð-
ursæld hér og oft logn; það er mun vinda-
samara í Þingeyjarsýslu. Akureyri er mjög
vinalegur og góður bær sem tekur vel utan um
fólk.“
Halla segist hafa kynnst góðu fólki á Akur-
eyri þótt klárlega vilji ekki allir eiga lög-
reglustjórann að besta vini.
„Ég er auðvitað búin að búa í Reykjavík síð-
an ég var sextán og maður finnur að þar er
maður með rætur. Það kom eiginlega á óvart
þegar ég flutti norður að finna það, af því ég er
auðvitað að norðan. Ég hélt það yrði lítið mál
en ég fann að þetta voru smá viðbrigði. En ég
er fyrst og fremst Laxmýringur,“ segir Halla
og brosir.
Eins og fyrr segir stækkaði umdæmi lög-
reglunnar til muna um það leyti sem Halla tók
við sem lögreglustjóri á Norðurlandi eystra.
„Áður fyrr náði löggæslan hér yfir Siglu-
Lögreglan er
fyrir fólkið
Á Norðurlandi eystra hefur Halla Bergþóra Björnsdóttir gegnt
stöðu lögreglustjórans síðan í ársbyrjun 2015. Hún hefur unnið
ötullega í málefnum fólks sem orðið hefur fyrir heimilisofbeldi
og var nýlega opnuð þar miðstöð fyrir þolendur. Halla nýtur
sín vel í starfi enda hefur hún brennandi áhuga á löggæslu-
málum. Hún segir lögreglu eiga fyrst og fremst að þjóna al-
menningi, tryggja öryggi og hjálpa fólki í viðkvæmri stöðu.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Halla Bergþóra vill að þjóðfélagið fari að
hugsa betur um ungt fólk sem á í fíkni-
efnavanda og er jafnvel líka með geð-
sjúkdóma, en það fólk gistir oft fanga-
klefa þar sem það á ekki heima. Henni
er umhugað um fólk í viðkvæmri stöðu.