Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2019 LÍFSSTÍLL Ný kynslóð málningarefna SÍLOXAN Viltu betri endingu? u Almatta síloxan útimálningin hleypir rakanum út en ekki inn u Framleiðendur múrklæðninga ráðleggja eindregið síloxan u Fæst einnig teygjanleg á netsprungna fleti u Einstök ending á steyptum veggjum Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Veldu betri málningu Blómasetrið – Kaffi Kyrrð erblómabúð, kaffihús og gisti-heimili í Borgarnesi sem not- ið hefur mikilla vinsælda hjá bæjar- búum og aðkomufólki. „Blómasetrið er fjölskyldufyrir- tæki sem var stofnað árið 2006,“ seg- ir Katrín Huld Bjarnadóttir, sem rekur Blómasetrið – Kaffi Kyrrð ásamt móður sinni, Svövu Víglunds- dóttur, og stjúpföður sínum, Unn- steini Arasyni. Fyrst um sinn var Blómasetrið aðeins blóma- og gjafa- vöruverslun en árið 2013 byrjaði fjölskyldan að bjóða upp á kaffi. „Þetta byrjaði smátt og síðan hef- ur náttúruleg breyting og stækkun átt sér stað. Núna er þetta líka kaffi- hús og gistiheimili.“ Svava og Unnsteinn bjóða upp á heimagistingu á heimili sínu, auk þess að fjölskyldan er með herbergi og íbúðir sem hægt er að leigja. „Við viljum aldrei missa tenginguna við blómin,“ segir Svava. „Blóm gefa svo góða orku. Það er svo einlægt og fal- legt að vera með lifandi jurtir í kringum sig. Þess vegna ætlum við aldrei að hætta að selja blóm.“ Mæla með vinstribeygjunni „Við viljum alltaf að fólki líður betur þegar það fer héðan út en því gerði þegar það kom inn,“ segir Katrín. „Einkunnarorðin okkar eru „lifið, elskið, njótið.“ Það á einkum við um litlu hlutina í lífinu. Falleg blóm, góður kaffibolli, kaka, það sem kætir og gleður og hlýjar. Þegar maður veitir þessum litlu atriðum athygli geta þau gefið mjög mikið.“ Fjölskyldan segir að fleiri Íslend- ingar hafi lagt leið sína inn í Borgar- nes í sumar. „Við hittum marga Ís- lendinga sem hafa aldrei komið inn í þennan hluta bæjarins. Margir hafa aldrei tekið vinstribeygjuna,“ segir Katrín. Þjóðvegur 1 liggur í gegnum Borgarbyggð, en vegurinn beygir síðan til hægri, út úr bænum. Fjöl- skyldan í Blómasetrinu, hins vegar, hvetur fólk að taka vinstri beygju og skoða inn í bæinn. „Ég held að það sé sterk ímynd að Borgarnes tengist Hyrnunni. Maður stoppar bara og pissar í Borgar- nesi,“ segir Svava, „en Borgarnes hefur upp á margt að bjóða. Hér er menningarlegur og fallegur staður.“ Katrín tekur undir það. „Það hef- ur verið mikil gróska í rúm sex ár. Landnámssetrið kom fyrir tíu árum og traffíkin inn í bæinn hefur aukist mikið síðan.“ Alltaf með blóm til sölu Í dag eru nær eingöngu inniplöntur seldar í Blómasetrinu, þótt sumar- blóm séu einnig seld yfir sumarmán- uðina. „Inniplöntur eru orðnar vinsælli. Það er í tísku að hafa blóm inni hjá sér og í kringum sig,“ segir Svava. Fjöldi inniplanta er á víð og dreif í Blómasetrinu, en þar eru ýmsir við- burðir á borð við prjónakaffi og Borgnesingahitting. „Við erum með stór plön og viljum halda fleiri skipulagða viðburði í framtíðinni,“ segir Svava, „en þótt við séum að verða meira og meira kaffihús og gistiheimili verðum við alltaf með blóm til sölu.“ Af palli Blómasetursins er útsýni yfir Borgarfjörð Ljósmyndir/Blómasetrið - Kaffi Kyrrð Katrín Huld, Svava Víglunds- dóttir og Unnsteinn Arason. Árið 2013 byrjaði Blómasetrið að bjóða upp á kaffi og er í dag vinsælt kaffihús. Blóm, kaffi og kyrrð Í Borgarbyggð leynist blómabúðin, kaffihúsið og gisti- heimilið Blómasetrið – Kaffi Kyrrð. Fjöl- skyldan sem rekur fyrirtækið mælir með að fólk taki vinstribeygjuna inn í Borgarnes og njóti litlu hlutanna í lífinu. Pétur Magnússon petur@mbl.is Fjölskyldan heldur úti blóma- og gjafavöruverslun, kaffihúsi og gistiheimili. Blómasetrið var stofnað árið 2006, og var fyrst um sinn aðeins blómabúð.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.