Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2019
LÍFSSTÍLL
Ný kynslóð
málningarefna
SÍLOXAN
Viltu betri endingu?
u Almatta síloxan útimálningin hleypir rakanum út en ekki inn
u Framleiðendur múrklæðninga ráðleggja eindregið síloxan
u Fæst einnig teygjanleg á netsprungna fleti
u Einstök ending á steyptum veggjum
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Veldu betri málningu
Blómasetrið – Kaffi Kyrrð erblómabúð, kaffihús og gisti-heimili í Borgarnesi sem not-
ið hefur mikilla vinsælda hjá bæjar-
búum og aðkomufólki.
„Blómasetrið er fjölskyldufyrir-
tæki sem var stofnað árið 2006,“ seg-
ir Katrín Huld Bjarnadóttir, sem
rekur Blómasetrið – Kaffi Kyrrð
ásamt móður sinni, Svövu Víglunds-
dóttur, og stjúpföður sínum, Unn-
steini Arasyni. Fyrst um sinn var
Blómasetrið aðeins blóma- og gjafa-
vöruverslun en árið 2013 byrjaði
fjölskyldan að bjóða upp á kaffi.
„Þetta byrjaði smátt og síðan hef-
ur náttúruleg breyting og stækkun
átt sér stað. Núna er þetta líka kaffi-
hús og gistiheimili.“
Svava og Unnsteinn bjóða upp á
heimagistingu á heimili sínu, auk
þess að fjölskyldan er með herbergi
og íbúðir sem hægt er að leigja. „Við
viljum aldrei missa tenginguna við
blómin,“ segir Svava. „Blóm gefa svo
góða orku. Það er svo einlægt og fal-
legt að vera með lifandi jurtir í
kringum sig. Þess vegna ætlum við
aldrei að hætta að selja blóm.“
Mæla með vinstribeygjunni
„Við viljum alltaf að fólki líður betur
þegar það fer héðan út en því gerði
þegar það kom inn,“ segir Katrín.
„Einkunnarorðin okkar eru „lifið,
elskið, njótið.“ Það á einkum við um
litlu hlutina í lífinu. Falleg blóm,
góður kaffibolli, kaka, það sem kætir
og gleður og hlýjar. Þegar maður
veitir þessum litlu atriðum athygli
geta þau gefið mjög mikið.“
Fjölskyldan segir að fleiri Íslend-
ingar hafi lagt leið sína inn í Borgar-
nes í sumar. „Við hittum marga Ís-
lendinga sem hafa aldrei komið inn í
þennan hluta bæjarins. Margir hafa
aldrei tekið vinstribeygjuna,“ segir
Katrín.
Þjóðvegur 1 liggur í gegnum
Borgarbyggð, en vegurinn beygir
síðan til hægri, út úr bænum. Fjöl-
skyldan í Blómasetrinu, hins vegar,
hvetur fólk að taka vinstri beygju og
skoða inn í bæinn.
„Ég held að það sé sterk ímynd að
Borgarnes tengist Hyrnunni. Maður
stoppar bara og pissar í Borgar-
nesi,“ segir Svava, „en Borgarnes
hefur upp á margt að bjóða. Hér er
menningarlegur og fallegur staður.“
Katrín tekur undir það. „Það hef-
ur verið mikil gróska í rúm sex ár.
Landnámssetrið kom fyrir tíu árum
og traffíkin inn í bæinn hefur aukist
mikið síðan.“
Alltaf með blóm til sölu
Í dag eru nær eingöngu inniplöntur
seldar í Blómasetrinu, þótt sumar-
blóm séu einnig seld yfir sumarmán-
uðina.
„Inniplöntur eru orðnar vinsælli.
Það er í tísku að hafa blóm inni hjá
sér og í kringum sig,“ segir Svava.
Fjöldi inniplanta er á víð og dreif í
Blómasetrinu, en þar eru ýmsir við-
burðir á borð við prjónakaffi og
Borgnesingahitting.
„Við erum með stór plön og viljum
halda fleiri skipulagða viðburði í
framtíðinni,“ segir Svava, „en þótt
við séum að verða meira og meira
kaffihús og gistiheimili verðum við
alltaf með blóm til sölu.“
Af palli Blómasetursins
er útsýni yfir Borgarfjörð
Ljósmyndir/Blómasetrið - Kaffi Kyrrð
Katrín Huld, Svava Víglunds-
dóttir og Unnsteinn Arason.
Árið 2013 byrjaði Blómasetrið að bjóða upp á kaffi og er í dag vinsælt kaffihús.
Blóm, kaffi og kyrrð
Í Borgarbyggð
leynist blómabúðin,
kaffihúsið og gisti-
heimilið Blómasetrið
– Kaffi Kyrrð. Fjöl-
skyldan sem rekur
fyrirtækið mælir
með að fólk taki
vinstribeygjuna inn í
Borgarnes og njóti
litlu hlutanna í lífinu.
Pétur Magnússon
petur@mbl.is
Fjölskyldan heldur úti blóma- og gjafavöruverslun, kaffihúsi og gistiheimili.
Blómasetrið var stofnað árið 2006, og var fyrst um sinn aðeins blómabúð.