Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Síða 28
Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 Hugsaðu vel um húðina þína – alltaf Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan. The Fighter er byggð á sannri sögu box- arans Micky Ward og hálfbróður hans Dicky Eklund. Eiturlyfjafíkillinn Eklund var eitt sinn einn þeirra bestu en þjálfar nú Ward. Óskarsverðlaunin sem besta mynd árið 2005 hlaut Million Dollar Baby. Myndinni er leikstýrt af Clint Eastwood, sem leikur þjálf- ara sem hjálpar ungri konu að komast á topp boxíþróttarinnar. Hilary Swank hlaut Óskarinn fyrir leik sinn sem öskubuskan Maggie. Jerry Maguire fjallar um ungan umboðs- mann íþróttamanna sem fær vitrun þess efnis að óheiðarleiki einkenni atvinnugreinina og vill að heiðarleiki einkenni störf sín. Íþróttir eru ávallt mörgum hugleiknar og ekki er verra þegar íþrótt er gerð að um- fjöllunarefni vandaðrar kvikmyndar. Hér má líta nokkrar myndir sem hlutu mikið lof gagnrýnenda og voru tilnefndar sem besta kvikmynd á Óskarsverðlauna- hátíðinni. Boxarar eru áberandi. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Höfuðhögg borga sig Ljósmynd/Tristar Pictures KVIKMYNDIR Gwyneth Paltrow virðist ekki horfa á kvikmynd- irnar sem hún leikur í. Að minnsta kosti hefur hún ekki hugmynd um hvaða leikarar leika með henni í þeim fjölda ofurhetjumynda Marvel sem hún hefur birst í. Fyrr í sumar komust kvikmynda- unnendur að því að hún vissi ekki að hún hefði leikið í Spider- Man myndinni Homecoming sem kom út árið 2017. Nú upp- ljóstraði leikstjóri nýjustu Avengers-myndarinnar að Palt- row hefði spurt meðleikara sína af hverju Samuel L. Jackson væri á svæðinu þegar tekið var upp lokaatriði myndarinnar þar sem allar helstu sögupersónur Marvel- kvikmyndaheimsins voru samankomnar. Hægt er að fyr- irgefa henni Spider-Man ruglinginn en Jackson hefur leik- ið í myndunum um Marvel-kvikmyndaheiminn frá upphafi hans, eins og Paltrow, frá því Iron Man kom út árið 2008. Ekki með á nótunum Gwyneth Paltrow virðist týnd þegar kemur að Marvel-myndum. AFP 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2019 LESBÓK KVIKMYNDIR Áhættuleikarar eru ekki sáttir við stöðu sína í kvikmyndaheiminum. Að þeirra mati fá þeir ekki þá virðingu sem þeir eiga skilið. Áhættuleikararnir krefjast þess að komið verði á sérstökum verðlaunum á Ósk- arsverðlaunahátíðinni sem heiðra á hverju ári bestu frammistöðu áhættuleikara. Hafa ein- staka leikarar verið heiðraðir á hátíðinni en okkar menn vilja árleg verðlaun sem keppt er um. Í ár sniðgengu áhættuleikararnir hátíðina en þeir íhuga að mótmæla á þeirri næstu. Sam- kvæmt reglum akademíunnar þarf þó að setja á sérstaka deild innan hennar svo að verðlaun- in geti litið dagsins ljós. Vilja sín eigin verðlaun Hvar væri Tom Cruise án áhættuleikara? Ljósmynd/Paramount Pictures

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.