Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Side 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2019
Hulda B. Ágústsdóttir
ásta créative clothes
Chantal van den Broek
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Roðtöskur
Hérna erum
við að tala
saman
Bókaðu 8–120 manna fundarými á góðu verði
Nánar á harpa.is/fundir
Fyrir nokkrum árum varðmikið uppnám á Alþingiþegar til umræðu voru tekn-
ar boðsferðir bankastjóra með
vini og vildarmenn í dýrar lax-
veiðiár. Í umræðunni á þingi voru
þung orð látin falla um spillingu.
Fljótlega kom í ljós að það voru
ekki laxveiðarnar sem fóru fyrir
brjóstið á gagnrýnendum heldur
hvernig að boðsferðunum var
staðið. Þær höfðu nefnilega ekki
verið færðar til bókar í fund-
argerðum bankaráðanna með til-
hlýðilegum hætti.
Svo var því kippt í liðinn sem
að sjálfsögðu bar að gera. En
innihaldið var óbreytt – áfram
veiddu menn – aðeins formið var
lagað.
Eftir þetta heyrðist aldrei í
þingsal minnst á spilltar laxveiðar
bankamanna.
Þessar hugrenningar um meinta
laxveiðispillingu hafa áður komið
upp í hugann þegar ákvarðanir
kjararáðs heitins voru annars veg-
ar. Heitins, segi ég, því sem kunn-
ugt er var kjararáð ráðið af dög-
um með lögum fyrr á árinu. Sú
lagabreyting var færð í mikinn
réttlætisbúning, verið væri að
koma til móts við kröfur „aðila
vinnumarkaðar“ og allra þeirra
sem hafði verið „stórlega misboð-
ið“ af hálfu ráðsins.
En hvað var það sem misbauð
fólki og hverjum var helst misboð-
ið? Fyrst skal frægasta telja
stjórn viðskiptaráðs. Hún saman-
stendur af launahæstu forstjórum
landsins. Þeir gátu ekki lengur á
sér setið þegar biskup Íslands
var, í boði kjararáðs, látinn skríða
yfir milljón króna mörkin og ger-
ast þar með hálfdrættingur á við
þá lægst launuðu í þeirra hópi. Þá
var ályktað, og ályktunin var
harðorð svo enginn skyldi velkjast
í vafa um að nú væri viðskiptaráði
misboðið.
Þáverandi forystumenn verka-
lýðshreyfingarinnar og samtaka
atvinnulífsins áttu einnig svefn-
lausar nætur og á Alþingi var tal-
að um að lögsækja hið illa kjara-
ráð sem þó hafði ekki unnið sér
annað til saka en að fara að laga-
bókstaf sem þetta sama Alþingi
hafði mælt fyrir um að skyldi vísa
því veginn, nefnilega að tryggja
skjólstæðingum sínum, efsta hluta
opinbera launakerfisins, sambæri-
leg kjör og kjarasystkinum þeirra
í viðskiptaráði.
Til sanns vegar má færa að
kjararáð hafi misstigið sig á einn
hátt. Því bar nefnilega lögum
samkvæmt að haga kjarabreyting-
um þannig að ekki raskaði jafn-
vægi á launamarkaði. Jafnvægið
sem hér var átt við var jafnvægi
hugans. Ekki mætti raska hugar-
ró láglauna- og millitekjufólks
þannig að það færi að hugsa sér
til hreyfings í kjarabaráttu þegar
kastljósum yrði beint að því mis-
rétti sem væri við lýði í landinu.
Viðbrögðin voru öll á einn veg:
„Hækkanir í prósentum eru allt of
háar, þetta hefði þurft að gerast
hægar, svívirða!“ Aldrei var
minnst á kjörin sjálf, hvað þá
kjaramisréttið.
Háskólakennarar mættu fela
doktorsnema, sem vildi rannsaka
félagslega meðvirkni, að kanna
skipulega umræðuna sem fór í
hönd um formgallana í framgöngu
kjararáðs og hve alvarlegar afleið-
ingarnar gætu orðið á vinnumark-
aði ef raskað væri rónni þar.
Þrjár ástæður eru fyrir því að
vekja á þessu máls nú.
Í fyrsta lagi er nú að koma á
daginn að forstjórar stofnana og
fyrirtækja í ríkiseigu, sem nauð-
ugir viljugir voru færðir undir
kjararáð í hruninu og haldið þar
með lágmarkslaunabreytingum,
höfðu rokið upp úr öllu valdi þeg-
ar þeir voru losaðir úr viðjum
ráðsins með lagabreytingu árið
2017.
Þetta þurfti ekki að koma á
óvart því hlutafélagavæðing ríkis-
stofnana í kringum aldamótin var
að hluta til gerð í því augnamiði
að hafa réttindi af almennum
starfsmönnum en færa kjör for-
stjóranna undir leyndarhjúp
hlutafélagalaga. Þann leyndarhjúp
hafði kjararáð hins vegar sprengt
opinn enda alltaf ætlunin með til-
komu kjararáðs að hafa allt uppi á
borði. Það er skýringin á því að
samtök launafólks voru ekki and-
víg kjararáði nema þau vildu
fækka fjölmennum hópum sem
heyrðu undir það; hópum sem
ætti einfaldlega að semja við í
kjarasamningum.
Í öðru lagi er ástæða til að
nefna þetta nú í tilefni af nýbirt-
um skattaskrám. Í þeim kemur í
ljós hver tvískinnungurinn hefur
verið í þessari umræðu; að harma-
gráturinn var sárastur hjá þeim
sem best höfðu kjörin en vildu
jafnframt forðast umræðu um eig-
in kjör með því að fjölga ekki í
klúbbnum.
Í þriðja lagi nefni ég þetta í til-
efni af glóðvolgri samþykkt mið-
stjórnar ASÍ. Þar kveður við góð-
an tón því þar á bæ vilja menn nú
ekki aðeins ræða form heldur
innihald, kjaramisréttið í þjóð-
félaginu og leiðir til að draga úr
því.
Einn á móti þremur hef ég
stungið upp á. Ef forsetinn er
með þrjár milljónir, þá á öryrkinn
að fá eina. Eru menn til í þetta?
Hvað segja stjórnir SA og við-
skiptaráðs? Við þyrftum náttúr-
lega að líta ofan í budduna hjá
þeim líka.
En áður en við skiljum alveg
við kjararáð spyr ég hvort til
standi að fólkið sem þar starfaði
og fékk að ósekju yfir sig enda-
lausar svívirðingar verði beðið af-
sökunar?
Stendur til að biðja kjara-
ráð afsökunar?
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’ Ef forsetinn er meðþrjár milljónir, þá áöryrkinn að fá eina. Erumenn til í þetta? Hvað
segja stjórnir SA og við-
skiptaráðs? Við þyrftum
náttúrlega að líta ofan í
budduna hjá þeim líka.
Ég man þegar ég byrjaði að gera fréttirí sjónvarpi. Það var töluvert öðruvísien á dagblaði því andlitið fylgdi með.
Það gerði það að verkum að stundum þurfti
fólk mjög mikið að ræða ákveðnar fréttir
eða mál við mig. Það var yfirleitt skemmti-
legt enda hef ég oftast mjög gaman af því
að tala við fólk, en gat verið býsna þreyt-
andi þegar viðkomandi var aðeins búinn að
smakka það.
Ég man eftir heilu kvöldunum þar sem ég
sat undir því að hafa ekki vit á neinu, segja
rangt frá eða vera bara almennt of illa gef-
inn til að segja fréttir. Og, eins og stundum
gerist, þegar fólk er búið að fá sér, þá tap-
aðist þráðurinn og runan byrjaði aftur frá
byrjun. Og aftur. Og aftur. Vinirnir bara að
tala um fótbolta og bíómyndir og skemmti-
lega hluti. Ég að hlusta á fyrirlestur um
kvótakerfið.
Gjarnan var það þannig að menn komu
og heilsuðu og svo byrjuðu þeir, en héldu
samt alltaf handabandinu. Fast. Svona til að
tryggja að ég færi ekki neitt fyrr en ég
væri búinn að átta mig á því hvernig þetta
væri í raun og veru. Sumir voru sannfærðir
um að blaða- og fréttamenn hefðu það að
sérstöku markmiði að hagræða sannleik-
anum og það væri alltaf augljóst að þeir
gengju erinda einhverra. Það gerist svo
sem enn.
Eftir á að hyggja held ég að mér hafi
tekist að sýna ótrúlega þolinmæði við þess-
ar aðstæður. Ég held að metið hafi verið á
Bíóbarnum (sem var neðst á Klappar-
stígnum) þegar maður sagði mér sömu sög-
una átta sinnum og var alltaf jafn hissa á
því að ég væri ekki hissa.
Svo minnkaði þetta með árunum. Kannski
vegna þess að ég vandist þessu, fór minna
út á kvöldin eða varð bara lagnari við að
koma mér út úr samræðum sem gengu allar
út á að ég væri bjáni.
Svo kom þetta sumar og orkupakkinn. Og
mér líður eins og ég sé kominn aftur á fyrri
hluta tíunda áratugarins. Nema nú er engin
flóttaleið. Síðustu mánuðir hafa nefnilega
farið í sama samtalið. Aftur og aftur. Alveg
eins og á barnum í gamla daga gengur það
út á að maður hafi ekki vit á þessu eða mis-
skilji að minnsta kosti hlutina svona rosa-
lega. Munurinn er samt sá að flestir sem
tala eru allsgáðir. Ég kýs allavega að ganga
út frá því. Það sem hefur ekki breyst er að
rangur hlutur verður ekki réttur þótt þú
endurtakir hann í sífellu.
En ég er bjartsýnn að eðlisfari og bíð
spenntur eftir mánudeginum. Þá verður
gengið til atkvæða og við fáum í það
minnsta niðurstöðu. Ég er ekki svo bláeyg-
ur að halda að menn hætti alfarið að tala
um þetta en hjálpi mér, það hlýtur að
minnka eitthvað.
Vonandi getum við svo öll farið að hlakka
til skemmtilegra mánaða í umræðum um
grænmeti í mötuneytum og fleira í þeim
dúr. Ég get ekki beðið.
’ Svo kom þetta sumar ogorkupakkinn. Og mér líðureins og ég sé kominn aftur á fyrrihluta tíunda áratugarins. Nema
nú er engin flóttaleið. Síðustu
mánuðir hafa nefnilega farið í
sama samtalið. Aftur og aftur.
Alveg eins og á barnum í gamla
daga gengur það út á að maður
hafi ekki vit á þessu eða misskilji
að minnsta kosti hlutina svona
rosalega. Munurinn er samt sá
að flestir sem tala eru allsgáðir.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Samtalið endalausa
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?