Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Qupperneq 8
VIÐTAL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2019
Þ
að fyrsta sem Sigga Kling gerir
þegar ég geng inn á heimili henn-
ar á Álftanesi er að biðja mig og
ljósmyndara Morgunblaðsins að
hjálpa sér að bera stórt og mikið
eikarborð úr bíl hennar inn í íbúðina. Borðið er
stórt og þungt, en hún tjáir okkur að það sé
spádómsborð sem eigi að fara inn í spádóms-
herbergið í íbúð hennar.
Að flutningunum loknum fáum við túr um
íbúðina, þá helst hattaherbergi Siggu þar sem
hún geymir hátt í þrjú hundruð hatta sem
henni hafa áskotnast í gegnum árin.
Íbúðin er þakin speglum, nær ómögulegt er
að staðsetja sig í íbúð hennar án þess að mæta
spegilmynd sinni í einum af þeim fjölmörgu
speglum sem skreyta veggina.
„Ég er mjög hrifin af speglum, enda er hægt
að telja ansi marga spegla hér inni,“ segir
Sigga.
„Það hringdi einu sinni í mig kona sem er 82
ára og er með þrettán spegla í stofunni sinni.
Hún sagði mér að pabbi sinn hefði verið yfir-
maður á öldrunarheimili og þegar hann setti
spegla út um allt fór fólk að hressast. Fólk
byrjaði að rétta úr sér og laga sig til og veik-
indi urðu minni.
Ég hef ofsatrú á því að það að hafa mikið af
speglum bæti lífið. Fyrir mér eru speglar gald-
ur þótt ég hafi enga trú á að það sé ógæfa að
brjóta spegil. Það býr bara til pláss fyrir ann-
an!“
Við fáum okkur sæti og spjöllum yfir kaffi.
Samtalið er yfirgripsmikið og Sigga veður úr
einu umræðuefni yfir í annað þótt samhengið
sé stundum óskýrt, en hún er fullkomlega
meðvituð um þá tilhneigingu. „Þetta er tvíbur-
inn í mér,“ útskýrir hún afsakandi.
„Áhugamál mitt er fólk,“ segir Sigga. „Ég
elska fólk á öllum aldri; fólk sem elskar fisk;
fólk sem stundar sudoku og krossgátur. Meira
að segja fólk sem er í golfi, mér finnst það
ágætt. Ég vil vinna með fólki og fæ kraftinn
frá því.“
Breytingar handan við hornið
Í vikunni hefur Sigga störf hjá miðlum Árvak-
urs þar sem hún mun meðal annars halda úti
sinni vinsælu stjörnuspá á mbl.is. Auk þess
verður hún vikulegur gestur í Morgunblaðinu
og á útvarpsstöðinni K100.
„Stjörnuspáin verður með sama móti og áð-
ur. Ég nota aðra aðferð en flestir aðrir til að
spá. Ég tek kannski tíu manns í hverju
stjörnumerki sem ég hef tengingu við, skrifa
þau niður á blað og labba svo um gólf með
kústinn minn og tengi mig við það sem er að
gerast í orkunni þeirra. Þá næ ég til víðtækari
hóps.“
Sigga segir þó að lesendur megi vænta nýj-
unga í spádómunum, þótt hún vilji ekki flækja
hlutina um of.
„Við ætlum að bæta við svokölluðum spá-
dómsorðum á vefnum,“ segir Sigga. „Mér hefur
alltaf fundist betra að hafa hluti ekki of flókna.
Þetta er eins og að kenna stærðfræði; þú getur
gert það svo flókið að það skilur það enginn. Það
var kennari í Garðabænum sem gat kennt öllum
stærðfræði með því að nota brauð og smjör.
Hann var ekki alltaf að sýna hvað hann var
ótrúlega klár. Við þurfum að passa að setja ekki
of mikinn geislabaug á okkur, því ef hann dettur
niður, þá hengir maður sig. Ég vil hafa hluti ein-
falda,“ segir Sigga en spádómsorðin verða
frumsýnd á forsíðu mbl.is á mánudaginn.
Sigga segist spennt fyrir þessum nýja kafla í
starfsferli sínum, þótt hún muni þurfa að tak-
ast á við nýjar áskoranir.
„Ég er örugglega mjög léleg útvarpskona
því ég er með svona sjötíu hugmyndir í hausn-
um á mér í einu sem flækjast hver fyrir annari.
Sumir segja að ég þurfi túlk ef ég ætli í útvarp-
ið. Ég held persónulega að Logi Bergmann
geti gegnt þessu hlutverki. Mér finnst hann
vera flottasti maður landsins.“
Segja má að starfsferill Siggu hafi að miklu
leyti átt sér stað á mörkum þægindaramma
hennar, en hún er löngu orðin vön því að takast
á við nýjar áskoranir.
„Þegar ég stofnaði Kvennaklúbb Íslands og
byrjaði að fara í kvennaferðir vildi enginn
standa uppi á sviði og vera veislustjóri. Ég
vildi það heldur alls ekki, en ég gerði það bara
og sagði já. Maður verður að segja já við ýmsu,
jafnvel þótt maður skíti upp á bak. Ég er
margoft búin að skíta upp á bak uppi á sviði, en
ég fer alltaf aftur.
Þegar mér var boðið að vera með partíbingó
niðri í bæ hataði ég bingó og ég hataði að
leggja niðri í bæ. Ég sagði já við einhverju sem
ég trúi ekki að ég hafi sagt já við en það leiddi
mig rétta leið.“
Orð eru orka
„Það er mikill munur á orðunum sem við hugs-
um og orðunum sem við segjum,“ segir Sigga.
„Mikill, mikill munur. Af því þegar þú segir
eitthvað, þá heyrir þú það. Þá ertu að nota
Sigga Kling segir spegla vera
galdur og að þeir geti haft
góð áhrif á líf manns.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vill snerta hjörtu
Spákonan Sigga Kling segir að fólk þurfi að vera duglegra að faðma tré og taka eftir litlu hlutunum. Sigga mun hefja nýjan kafla
á sínum starfsferli þegar hún hefur störf hjá Árvakri í vikunni, en hún segir að vænta megi breytinga í starfi hennar.
Pétur Magnússon petur@mbl.is
’ Við þurfum að passa að setjaekki of mikinn geislabaug áokkur, því ef hann dettur niður,þá hengir maður sig.