Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Page 14
hurð einfaldlega sett yfir. Þarna hugsaði fólk í lausnum. „Ég svaf á hurð í tvö ár – og það er allt í lagi með mig!“ segir hann glottandi. „Núna þurfa helst allir að sofa á amerískum rúmum.“ Fimm sinnum var gerð tilraun til að senda Kristbjörn í sveit en það átti illa við okkar mann sem strauk fjórum sinnum. „Eini bær- inn sem ég strauk ekki frá var Hlöðuvík á Ströndum. Þar leið mér vel og eftir sumarið rak ég á undan mér bæði hrút og gimbur,“ rifj- ar hann upp stoltur. Spurður hvort hann hafi verið baldinn á þessum árum svarar Kristbjörn kíminn: „Tja, ég hef líklega ekki verið kallaður villidýrið hennar Möggu Friðriks að ósekju.“ Einmitt það. „Amma hélt þó alltaf hlífiskildi yfir mér. Látið ekki svona við hann. Hann er mun- aðarlaus, auminginn, var hún vön að segja og átti þá við að ég hefði ekki föður minn.“ Þjóðverjar sökktu stjúpanum Mikill harmur var að fjölskyldunni kveðinn þegar Theodór, stjúpi Kristbjörns, fórst með línuveiðaranum Pétursey frá Ísafirði veturinn 1941. Þýskur kafbátur sökkti bátnum þegar hann sigldi með fiskfarm til Bretlands. Theo- dór lét eftir sig fjögur börn þeirra Margrétar, það yngsta ófætt. Sagt var að Theodór hefði farið í þessa hinstu siglingu fyrir frænda sinn og frændinn og eiginkona hans tóku síðar yngsta barnið að sér. Tveimur árum síðar fluttist Kristbjörn til ömmu sinnar og afa sem sest höfðu að í Kefla- vík. Honum er brottförin eftirminnileg en þau voru tólf um borð í fimm tonna trillu. „Við höfð- um sama og ekkert með okkur enda átti fólk lít- ið á þessum tíma. Þegar við skreppum í viku- heimsókn til Aðalvíkur núna höfum við miklu meira meðferðis.“ Það segir sína sögu. Í Keflavík sótti Kristbjörn meðal annars sjó- inn og vann á Keflavíkurflugvelli. Steinunn María flutti til Ísafjarðar með foreldrum sín- um um líkt leyti og Kristbjörn til Keflavíkur, þar sem þau sáust í fyrsta sinn. Það var þó á síldarvertíð á Siglufirði sem Kristbjörn fór fyrst á fjörurnar við hana. „Hún var að skvetta úr skolpfötu á planinu og mér leist svona líka ljómandi vel á hana; dressaði mig upp og bauð henni á ball. Og hún sagði já. Ég var afleitur dansmaður en hún gerði sér þetta samt að góðu.“ Kristbjörn og Steinunn hófu búskap í Kefla- vík, gengu í heilagt hjónaband 1952 og eign- uðust soninn Friðþór sama ár. Aftur til Aðalvíkur Vorið 1955 var Kristbjörn við störf á vinnu- vélum í malarnámi verktaka varnarliðsins í Stapafelli á Reykjanesi ásamt æskufélaga sín- um og jafnaldra Jóni Vagnssyni frá Bakka á Látrum, Einari Jónssyni frá Munkaþverá í Eyjafirði og Norðmanninum Alf Överby sem búsettur var á Ísafirði. Fréttu þeir félagar að Sameinaðir verktakar væru að leita að mönn- um til smíði ratsjárstöðvar fyrir varnarliðið á Straumnesfjalli við Aðalvík og vantaði stað- kunnuga menn. „Við stukkum auðvitað á það að fá vinnu heima í Aðalvík,“ segir Kristbjörn. „Það var gott að koma heim en mér er minnisstætt hvað mér fannst allt hafa minnkað frá því ég flutti burt rúmum áratug fyrr.“ Byggingarframkvæmdir á Straumnesfjalli náðu hámarki sumarið 1955 og 1956 en alls störfuðu við þær tæplega 200 manns þegar mest var. Var fyrirséð að framkvæmdir stæðu áfram a.m.k. næstu tvö árin og ákváðu þau Kristbjörn og Steinunn að flytjast að Látrum með son sinn sem var á þriðja ári. Bjuggu þau þar nánast óslitið til ársins 1960, fyrst í nokkr- um yfirgefnum húsum sem þau leigðu af eig- endum og síðan í íbúðarskála verktakanna og varnarliðsins. Kristbjörn ber hernum vel söguna. „Ég átti ágæt samskipti við herinn; það komu allir vel fram við mig. Ég bablaði einhverja ensku, sem ég hafði lært af mönnum sem ég vann með á Keflavíkurflugvelli, og gat fyrir vikið túlkað.“ Í mars 1956 fæddist þeim annar sonur, Guð- mundur, og í árslok réðst Kristbjörn til rat- sjársveitar varnarliðsins, sem nýkomin var til starfa við rekstur stöðvarinnar. Hefðu vart komist af Störfin fólust fyrst og fremst í að annast að- drætti til stöðvarinnar, en fólks- og vöruflutn- ingar voru allir sjóleiðis þar til lögð var flug- braut fyrir smáflugvélar í víkinni. Loftflutningar voru þó ávallt mjög takmark- aðir. Önnuðust Kristbjörn og Benedikt Bene- diktsson frá Jaðri, sem lengst manna starfaði á Látrum, meðferð uppskipunarpramma og smærri báta sem lenda varð við hafnlausa ströndina. Jón og Einar störfuðu á stórum jarðýtum við snjóruðning og annað sem til féll, t.d. við sjósetningu uppskipunarprammanna. Allt voru þetta krefjandi verkefni við erfiðar aðstæður sem þörfnuðust mikillar seiglu og út- sjónarsemi svo vel mætti fara. Friðþór segir suma liðsmenn Bandaríkja- hers sem störfuðu í ratsjárstöðinni hafa haft á orði að þeir hefðu vart komist af nema fyrir til- stilli þessara hagvönu samstarfsmanna sem nánast hafi haldið í þeim lífinu. Kristbjörn rifjar í þessu samhengi upp sögu af því þegar yfirmaður stöðvarinnar, sem var majór í flughernum, gaf honum fyrirmæli um að sigla innrásarprammanum frá Ísafirði til Aðalvíkur þegar stefndi í haugasjó og öskubyl. „Ekki fór ég að andmæla honum. Þetta var skrautleg sjóferð og Kanarnir, sem mig minnir að hafi verið sex, töluðu um að þeir hefðu ekki í annan tíma lent í meiri lífsháska. Sannleikur- inn er hins vegar sá að lífsháskinn var enginn; bæði var ég með kompás og sá upp í klettana þegar við nálguðumst víkina. Ég held upp á þennan kompás ennþá; hann er í bústaðnum okkar í Grunnavík.“ Með höfuðkúpu á náttborðinu Frá barnsaldri hefur Kristbirni verið kunnugt um bein franskra sjómanna sem fórust við Að- alvík á nítjándu öld en amma hans hafði fyrir sið þegar ógæftir voru á sumrin að hlúa að beinunum og sópa sandi yfir þau í fjörunni. Þess vegna brá honum í brún þegar hann frétti að einn verktakstarfsmanna hefði tekið höfuð- kúpu traustataki og haft hana á náttborðinu hjá sér um sumarið. Kristbjörn viðurkennir að hann hafi aldrei séð höfuðkúpuna sjálfur en eigi að síður ýtti sagan við honum. „Ég hef mikinn áhuga á að koma upp minnismerki um þessa frönsku sjómenn á staðnum enda líklega einn sá síðasti sem veit hvar bein þeirra eru.“ ’ Ekki fór ég að andmæla honum. Þetta var skrautlegsjóferð og Kanarnir, sem migminnir að hafi verið sex, töluðu um að þeir hefðu ekki í annan tíma lent í meiri lífsháska. Á BERNSKUSLÓÐUM 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2019 Byggð í Grunnavík lagðist af haustið 1962 en árið 1969 tóku Steinunn og Kristbjörn jörðina Sætún II, sem var í eigu ríkisins, á leigu til sumardvalar. Öll hús á jörð- inni fuku og eyðilögðust í ofsaveðri veturinn 1974 en í staðinn reistu þau sér sum- arbústað sem var athvarf þeirra öll sumur sem þau bæði lifðu. Fjölskylda Kristbjarnar frá Ystabæ í Aðalvík er mjög stór en afi hans og amma komu alls 14 börnum á legg og létu eftir sig 260 afkom- endur þegar Þórunn lést árið 1975 og margfaldast hafa síð- an. Árið 1971 komu Ystabæj- arsystkinin saman á Látrum og strengdu þess heit að reisa sér og afkomendunum veglegt sumarhús á bæj- arstæðinu til heiðurs foreldr- unum. Kristbjörn, sem var aðeins lítið eitt yngri en yngstu móðursystkinin, var jafnan tekinn nánast sem eitt af systkinunum og svo var í þetta sinn. Gekk bygging hússins eftir ári síðar og hef- ur það ávallt verið mikið not- að á þeim stutta tíma ársins sem sumarið varir á þessum afskekktu slóðum. Eigendur eru rúmlega 30 afkomendur Friðriks og Þórunnar og fjöl- skyldur þeirra, þar á meðal Friðþór og Guðmundur sem eru yngstu afkomendurnir sem höfðu búsetu á Látrum og eiga frábærar æskuminn- ingar þaðan. Hefur húsið ný- lega verið endurnýjað með miklum myndarbrag. Römm er sú taug

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.