Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2019
LESBÓK
Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda.
5-8 manneskjur
19.500 kr.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
Verð aðra leið:
MÁLMUR „Kynjahlutföllin virðast vera 50/50. Það er
hálfgeggjað þegar maður hugsar tuttugu ár aftur í tím-
ann; þá voru þetta einkum og sér í lagi átján ára dúddar
í svörtum ermabolum,“ segir Lars Ulrich, trymbill Me-
tallica, í samtali við San Francisco Chronicle, og á þar
við breytinguna sem orðið hefur á gestum á tónleikum
málmbandsins gegnum árin. Ekki nóg með það, gest-
irnir virðast einnig vera á öllum aldri. Ulrich er sér-
staklega ánægður að sjá unga fólkið enda bendi það til
þess að Metallica eigi ennþá erindi. Nýlokið er Evr-
óputúr þar sem bandið lék fyrir allt að 80.000 manns á
kvöldi. „Svei mér þá! Hver hefði trúað því að eftir meira
en þrjátíu ár þá væri þetta ennþá að gerast,“ segir Ul-
rich í viðtalinu. „Það er galið!“
Þar sem kynin koma saman
Ulrich í essinu sínu á heimavelli í
Kaupmannahöfn í sumar.
AFP
SPJALL Kryddpían Mel B. situr sjaldan auðum
höndum og nú ferðast hún um heimaland sitt,
Bretland, með einskonar uppistands- eða spjall-
sýningu, þar sem hún lítur yfir farinn veg. Víða
mun vera komið við en Mel B. braust úr örbirgð til
bjargálna og rúmlega það með Kryddpíunum
fyrir um tveimur áratugum en hefur átt held-
ur erfitt uppdráttar undanfarin ár og býr nú
heima hjá móður sinni í Leeds. Hún hafnar því
þó víst alfarið í sýningunni að hún sé á kúp-
unni. Mel B. kemur einnig inn á tvíkynhneigð
sína í sýningunni en ekki fylgir sögunni hvort
hún minnist á sinn gamla ástmann Fjölni
Þorgeirsson.
Mel B. lítur
yfir farinn
veg um þess-
ar mundir.
Reuters
Layne Staley var í Alice in Chains.
Bandvitleysa
RUGL Grönselskum lesendum brá
heldur betur í brún þegar þeir
flettu Sunnudagsblaðinu sínu um
liðna helgi og því var fullum fetum
haldið fram að Layne heitinn Staley
hefði verið söngvari Pearl Jam. Það
er að sjálfsögðu þvættingur; Staley
söng með allt öðru grönsbandi,
Alice in Chains. Eddie Vedder var
og er söngvari Pearl Jam. Bæði
bönd eru frá Seattle í Bandaríkj-
unum og að vonum heilbrigður ríg-
ur milli þeirra sem gerir málið
ennþá alvarlegra. Jafnvel má líkja
þessu við að ruglast á KR og Val.
Sunnudagsblaðið blygðast sín að
sjálfsögðu vegna ranghermisins og
biðst auðmjúklega velvirðingar á
þessari bandvitleysu.
Það var virkilega óþægilegt aðsitja í kvikmyndahúsinu oghlusta á fólk hlæja að föður
mínum. Ég hef brunnið fyrir að vekja
fólk til vitundar um það hver Bruce
Lee var og hvernig hann hagaði sínu
lífi ... Því var öllu sturtað niður um
klósettið með þessari túlkun; faðir
minn gerður að hrokafullum box-
púða.“
Þetta sagði Shannon Lee, dóttir
bardagalistamannsins og leikarans
Bruce heitins Lee, við vefsíðuna The
Wrap eftir að hafa séð nýjustu kvik-
mynd Quentins Tarantinos, Once
Upon a Time ... in Hollywood. Hlutur
föður hennar í myndinni, sem byggist
að sumu leyti á sönnum atburðum, er
vægast sagt umdeildur og margir
aðdáendur Bruce Lee deila þessari
upplifun með dóttur hans.
Í téðu atriði rís ágreiningur milli
Bruce Lee og einnar aðalpersón-
unnar í Once Upon a Time ..., áhættu-
leikarans Cliffs Booth, á kvikmynda-
setti. Lee er að leggja hópi
áhættuleikara lífsreglurnar og Booth
maldar í móinn; þykir Lee augljós-
lega vera meiri í orði en á borði; með-
al annars vegna þess að Lee fullyrðir
að hann gæti breytt Muhammed Ali í
öryrkja. Það verður til þess að Lee
skorar Booth á hólm, í þriggja lotu
bardaga á staðnum. Lee vinnur
Cliff Booth (Brad Pitt) tekur
Bruce Lee (Mike Moh) mið-
aldatökum í Once Upon a
Time ... in Hollywood.
Hlegið að
föður mínum
Bruce Lee þykir fá á baukinn í nýju Tarantino-
myndinni, Once Upon a Time ... in Hollywood
svo dóttur goðsagnarinnar og aðdáendur svíður
undan. Það vekur spurningar um ábyrgð höfunda
þegar unnið er með persónur sem voru eða eru til.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Bruce Lee er af mörgum talinn einn fremsti bardagalistamaður sögunnar.
Lee Jun-fan, sem seinna tók sér
nafnið Bruce Lee, fæddist í San
Francisco árið 1940; af foreldri
frá Hong Kong og ólst þar upp.
Hann fluttist átján ára gamall til
Bandaríkjanna og nam meðal
annars leiklist og heimspeki. Lee
þykir einn fremsti bardaga-
listamaður sögunnar en gerði
það einnig gott á hvíta tjaldinu og
sjónvarpsskjánum, þar sem hann
sló í gegn í þáttunum The Green Hornet. Oft er sagt að Bruce Lee
hafi átt snaran þátt í að breyta því hvernig mynd var dregin upp af
Asíubúum í bandarísku bíói.
Lee þjálfaði marga kunna leikara í bardagalistum, þeirra á meðal
Steve McQueen, James Coburn, Chuck Norris og Sharon Tate, auk
körfuboltakappans Kareems Abdul-Jabbar.
Lee lést árið 1973, aðeins 32 ára, og var banamein hans vökva-
myndun í heila. Sonur hans, Brandon Lee, lést aðeins 28 ára árið
1993, af völdum voðaskots við tökur á myndinni The Crow.
Lést langt um aldur fram
Bruce Lee með son sinn, Brandon.
Þeysireið yfir móa og Mel