Smári - 01.10.1929, Page 1
SM ÁRI
ÚTGEFANDI: BARNASTÚKAN VORPERLA NR. 64
3. árg.
Kemur út sex sinnum
á ári.
Noröfiröi, sept.-okt. 1929.
Ábyrgðarmaður:
Vald. V. Snævarr
5. tbl.
Vetrarstörfin byrja.
Náttúran höfuð hneigir,
himininn fellir tár;
vötnin af vindum gáruð,
völlurinn hjelugrár.
Himneskri hönd er Ieikið,
hinsta við sumardag,
hjartans á hulda strengi —
hrífandi sorgarlag.
Alt það, sem gott og göfugt
guð á í þinni sál,
vek þú nú til að vinna;
vinn fyrir drottins mál.
Viðir þótt verði að hlýða
vetrarins hörðum dóm,
lát þjer í hjarta lifa
líknar og kærleiksblóm.
Guð minn, ef skæðir skuggar
skyggja um lönd og ál,
gjör mig að litlu ljósi,
lýsandi hverri sál.
Guð minn, ef einhver grætur
— grátur ber vott um sár —
gjör mig að mjúkri hendi
megnandi’ að þerra tár.
5. J. J.
Stefna vor.
(Ávarp til fullorðinna.)
Margur mun sá maðurinn, sem
ekki hefir gert sjer Ijóst, að hvaða
marki unglingareglan stefnir. Ýmsir
skoða störf hennar sem menningar-
lítið en góðlátt og saklaust fálm,
börnunum til gamans. Þeim skilst
eigi að hún, með störfum sínum,
stefni að nokkru ákveðnu, síst hnit-
miðaðu marki. En svo er það nú
samt sem áður. Takmark hennar er
ákveðið og hnitmiðað, en ieiðir og
starfshættir fara að nokkru leyti eft-
ir kringumstæðum. Hverju viljum vjer
koma til leiðar? í fyrsta lagi viljum
vjer vinna af alefli að því, að gera
æskulýð landsins bindindissaman —
andlega og líkamlega hraustan og
heilbrigðan. Ofnautn víns og tóbaks
verður fyrst fyrir oss á þeirri Ieið.
Hún hefir alveg tvímœlalaust í sjer
fólgna andlega og líkamlega sýk-
ingu og veiklun, sem oft og einatt
gengur eins og óheillararfur frá
feðrum til niðfa. Móti víns- og
tóbaksnautn viljum vjer skilyrðislaust
vinna. En vjer viljum einnig vinna
þjóðinni hreysti með því, að reyna
að halda uppi íþróttaæfingum í ein-
hverri mynd og þá sjerstaklega úti-
æfingum á sumrum. í því skyni stofn-
um vjer knattspyrnu- og knattleika-
flokka, förum í fjallgöngur og beit-
um oss fyrir stofnun skátaflokka o.
otúfiuiundina veil