Smári - 01.10.1929, Síða 4
36
S M A R I
Smágreinar um tafllistina.
(Samtíningur víðsvegar að.)
VII.
Þriggja riddaraleikur.
'. Donisthorpe. Onefndur. W. Donisthorpe. Onefndur.
Hvítt. Svart. Hvítt. Svart.
1 . c2—c4 c7—cö 9. Re4Xf6 g7Xf6
2. Rg 1—f3 Rb8—c6 10. h2—h3 Bg4—d7 ?
3. Rb 1—c3 d7—d6 1 1 . Rf3—h4 Rc7—g6
4. d2—d4 Bc8—g4 12. Bf 1—d3 I Rg6Xh4?
5. Bcl—c3 f 7—f 5 13. Dd 1—höf Rh4—g6
6. d4—d5 f5Xe4 14, Bd3Xg6t Ke8—e7?
7. Rc3Xed Rc6—e7 og hvitt mátar i 2. leik
8. c2—c4 Rg8—f 7 — en hvernig?
Lausnir sendist „Smára“.
Sigurinn,
(Samtal vinanna Jóns og Bjarna.)
Samtalið fer fram í snoturri stofu.
Þar er borö, stólar, bókaskapur og
eldur logandi í ofni. Jón situr við
borðið og les „Smára“. Barið.
Jón: Kom inn!
Bjarni (kemur inn með rjúkandi
vindling milli fingranna): Qott kvöld,
Jón!
Jón: Gott kvöld. Velkominn. Fáðu
þjer sæti.
Bjarni (sest): Þökk fyrir. Jeg kom
til þess að sækja bókina, sem þú
bauðst mjer.
Jón: Já, hana skaltu fá. Mjer er á-
nægja að lána þjer hana. En — vertu
nú vænn og legðu vindlinginn frá
þjer. Tóbaksreykur kemur mjer altaf
í vont skap, en verst fellur mjer þó,
að vita af honutn í mínnm eigin her-
bergjum.
Bjarni: Fyrirgefðu — jeg gleymdi
því(stingurvindlingnum íblikkhulstur).
Jón (stendur á fætur, gengur að
bókaskápnum, tekur þaðan bók og
rjettir Bjarna): Qjörðu svo vel.
Bjarni: Hjartans þakkir. Það verð-
ur gaman að lesa þessa bók! (Geng-
ur að skápnum og horfir á bækurn-
ar). Jeg sje að þú hefir keypt marg-
ar bækur síðan jeg kom síðast til þín.
jón: Já, nokkrar hefi jeg keypt---
Bjarni (hugsandi); Heyrðu, Jón!
Höfum við ekki jafnhátt kaup? Hvern-
ig er þetta ? Ekki neyti jeg víns,
fremur en þú. Báðir höfum við gam-
an af að eiga og lesa góðar bækur.
En það er eins og þá hafir altaf pen-
inga til að kaupa bækur, en jeg svo
sem aldrei. Og þó hefir þú í raun-
inni ekki meiri fjárráð en jeg. Hvern-
ig stendur á þessu?
Jón (varfærinn): Má jeg spyrja,
hve miklu eyðirðu í tóbak á ári?
Bjarni (alvarlegur): Sannast að
segja veit jeg það ekki sjálfur. En
hversvegna spyrðu ?
Jón: Mig langar bara til að vita
það. Hvað heldurðu, án gamans, að
að þú eyðir miklu, t. d. á viku?
Bjarni (hugsandi): Svo sem ,3—4