Fréttablaðið - 05.10.2019, Page 74

Fréttablaðið - 05.10.2019, Page 74
ÞAÐ MERKILEGA ER AÐ VIÐ ÞEKKTUMST EKKERT ÁÐUR. ÉG VAR NÝBÚINN AÐ LEIGJA MÉR SKRIFSTOFU OG KENNARINN SKIPAÐI OKKUR Í HÓP. Halldór Snær Í gluggalausri skrifstofu í bygg­ingu sem stendur alveg við sjávargarðinn á Granda situr Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri Myrkur Games. Aðrir starfsmenn, um fimmtán talsins, vinna í opnu rými á tveimur hæðum skrifstofunnar og njóta fallegs útsýnisins. „Ég fékk gluggalausu skrifstofuna,“ segir hann og hlær og segir að stjórnend­ ur ættu ávallt að taka versta rýmið fyrir sig sjálfa. Meðalaldur starfsmanna er lík­ lega rétt yfir tuttugu ár. En þrátt fyrir það er hver og einn þeirra sér­ fræðingur í því verkefni sem þeir fást við. Innan teymisins starfar fólk að því að búa til búninga, umhverfi, aukahluti, skrifa handrit, taka upp hljóð og tónlist, hanna persónur og framvindu, tæknibrellur, forritun og svona mætti áfram telja. Skap­ andi verkefni sem krefjast listrænna eiginleika. Þau vinna öll sem eitt að þróun ævintýratölvuleiksins The Darken sem fjallar um söguhetjuna Ryn, sem er leikin af leikkonunni Aldísi Amah Hamilton. Búa til tölvugerða tvífara Blaðamaður fær strax á tilfinning­ una að vinnubrögðin líkist því að framleiða kvikmynd. „Já, það er ekki fjarri lagi,“ segir Halldór og sýnir blaðamanni stórt upptökuver sem búið er að koma upp í húsnæðinu þar sem allar senur í leiknum eru teknar upp. Aldís ásamt aukaleikurum klæðist sérstökum búningum, hreyfirekj­ anlegum göllum sem nema líkams­ hreyfingar og hjálmum sem taka upp andlitshreyfingar og hljóð. Halldór útskýrir að kvikarar (animators) starfi að því að taka upp og vinna úr öllum hreyfingum og fyrirtækið muni þurfi á f leiri slíkum að halda á næstunni. „Við ljósmyndaskönnum alla leikarana og gerum af þeim tölvugerðan tví­ fara. Hér í upptökuverinu tökum við svo upp, líkama, andlit og rödd á sama tíma. Við vonum að leikurinn verði klár eftir um það bil tvö ár en ég fer varlega í slíkar yfirlýsingar. En við stefnum hins vegar á að tvöfalda starfsmannafjöldann til þess að það náist. Við munum sérstaklega þurfa að bæta við forriturum, kvikurum og listamönnum.“ Í anddyrinu eru smekkfullar hill­ ur af borðspilum og bókum. „Þetta er all things nerd!“ segir Halldór. „Það er rosalega mikið spilað hér eftir vinnu. Dungeons and dragons er voða vinsælt til dæmis.“ Þekktust ekki áður Fyrirtækið var stofnað fyrir þremur árum af Halldóri, Daníel Arnari Sigurðssyni og Friðriki Aðalsteini Friðrikssyni. Þeir voru allir nýút­ skrifaðir tölvunarfræðingar úr Háskóla Reykjavíkur og ákváðu að snúa sér að tölvuleikjum. „Ég hef ætlað mér að að búa til tölvuleik frá því að ég var tólf ára gamall. Þetta er ástríða mín. Við þrír kynntumst þegar við unnum saman verkefni í skólanum. Verkefnið okkar er enn þann daginn í dag notað sem dæmi um víti til varnaðar. Við vorum sem sagt mjög metnaðarfullir,“ segir hann og glottir og segir þá félaga ekki hafa ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. „Það merkilega er að við þekktumst ekkert áður. Ég var nýbúinn að leigja mér skrifstofu og kennarinn skipaði okkur í hóp. Ég sagði við þá: Eigum við ekki bara að nýta okkur skrifstofuna mína? Við lokuðum okkur af í þrjár vikur, unnum í sextán til tuttugu tíma á dag. Og gerðum leik. Við fundum að við gátum unnið þægilega saman að stóru verkefni og ákváðum að halda áfram að vinna saman,“ segir Hall­ dór frá. Vissu ekkert um rekstur Þeir félagar fóru með hugmyndir sínar í gegnum Startup Reykjavík og Gulleggið. Í framhaldinu fóru þeir að leggja drögin að leiknum, The Darken. „Við nýttum okkur mjög vel alla þá þjónustu og fræðslu sem var í boði. Við vorum komnir með góða þekkingu á því að gera flottan tölvuleik en höfðum enga þekkingu á rekstri fyrirtækja. Því að ráða og reka starfsmenn, reka fyrirtæki með hagnaði. Við vissum til dæmis bara alls ekki hvað EBITDA þýðir,“ segir hann og hlær. „Við tókum þetta mjög alvarlega, við fengum þrjá fundi á dag með toppfólki í rekstri á Íslandi. Við mættum á alla fundina með þriggja síðna spurn­ ingalista á alla fundi og náðum að draga mikinn lærdóm af þessu ferli. Þetta skipti miklu máli.“ Á fyrsta rekstrarárinu voru þeir félagar komnir með góða rekstrar­ áætlun um smíði tölvuleiksins. Þeir réðu til sín nokkra starfsmenn og gáfu þeim hlut í fyrirtækinu. „Við náðum að opna okkar fyrstu fjárfestingarlotu með talsverðum áhuga frá innlendum fjárfestum. Við gátum leigt þessa skrifstofu, reist upptökuver og þróuðum sneið af tölvuleiknum. Það er erfitt að gera svona sneið því þú þarft í raun að gera allt sem þú þarft að gera fyrir tölvuleikinn. Þú þarft öll lögin í kökuna til að láta þetta virka. Þetta var rosalega stór áfangi og við fórum í nýja fjármögnunarlotu eftir þetta og fengum styrk frá Tækni­ þróunarsjóði og Nýsköpunarmið­ stöð til viðbótar. Núna erum við að fjármagna stækkun á félaginu og munum líklega stækka um helm­ ing,“ segir Halldór frá. Sögudrifinn leikur En hvernig tölvuleikur er þetta? Og hvað er öðruvísi við hann? „The Darken er sögudrifinn tölvu­ leikur, í ævintýraheimi. Aðalhlut­ verkið er leikið af Aldísi Amah Hamilton sem leikur aðalpersón­ una Ry. Spilarar munu stýra henni í gegnum ýmsar raunir. Þetta er fyrsti leikurinn af þríleik sem á sér stað í ævintýraheimi sem við sköpum frá grunni. Þetta er ekki þessi hefð­ bundni söguheimur dverga og álfa,“ segir Halldór leyndardóms­ fullur. Hann má auðvitað ekki gefa of mikið upp. „Ég er með sérstakt höfundateymi sem skrifar söguna. Við vissum að við vildum hafa eina aðalsöguhetju og svo föru­ nauta sem þú spilar með og hittir í gegnum leikinn,“ segir Halldór og vísar blaðamanni á höfunda­ teymið að störfum á skrifstofunni. Þá Magnús Friðrik Guðrúnarson, Daða Einarsson og Brimrúnu Birtu Friðþjófsdóttur. Vinnan er áhugamál Daði er lærður handritshöfundur og leikstjóri frá Kvikmyndaskóla Íslands og Brimrún hugmynda­ teiknari frá Teesside University. En Magnús fékk hins vegar starfið vegna þess að hann hefur lengi verið svokallaður „dung eon mast­ er“ í leiknum Dung eons and Dra­ gons og hefur mikla reynslu af því að útfæra hugmyndir í sögu. „Ég á það til að segja að ég sé svarti sauðurinn í fyrirtækinu því ég er ekki sérmenntaður. Én hef reynslu af því að spila Dungeons og Drag­ ons. Ég kem hingað til vinnu beint úr menntaskóla en fyrir mig var það reyndar níu ára prógramm í sex mismunandi skólum. Ég fann aldrei það sem hentaði mér í námi, þess í stað lærði ég sögur í gegnum Dun­ geons and Dragons og hlutverka­ leiki,“segir Magnús. „Ég spila líka Dungeons og Drag­ ons,“ segir Daði. „Það er nefni­ lega ákveðinn grunnur að hafa þá þekkingu, þó að námið í Kvik­ myndaskólanum hafi hjálpað mér mjög mikið. En strúkturinn í spila­ mennskunni gefur manni sterkan bakgrunn.“ Brimrún starfar náið með Magn­ úsi og Daða og er svokallaður hug­ myndateiknari (concept artist). „Ég kom hingað sem Erasmus­ nemandi frá Bretlandi. Ég lærði hugmyndateikningu í Teesside University í Middlesbrough. En lærði líka í Kanada í heilt ár. Ég hef teiknað karaktera og umhverfi þeirra síðan ég var lítil og ég ákvað að stunda nám í áhugamáli mínu. Og af hverju ekki að teikna fyrir tölvuleiki og kvikmyndir? Það smá segja að eitt hafi leitt af öðru. En þetta er draumastarfið og mér finnst ég stundum ekki vera að vinna, því ég væri að gera þetta heima hvort sem er.“ Búa til nýjan heim Hjá Myrkur Games starfa ungir listamenn og eldhugar að smíði sögudrifins ævintýra- tölvuleiks. Framleiðslan er byltingarkennd og svipar mjög til kvikmyndagerðar en í húsnæði fyrirtækisins er stórt upptökuver og þar klæðast leikarar hreyfirekjanlegum göllum og búa til rafræna tvífara. Stór hluti starfsmanna Myrkur Games. Á bak við þau bókahillan sem er smekkfull af borðspilum og bókum sem þau grípa í eftir vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Daði, Magnús og Brimrún eru í höfundateyminu. 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 F 3 -3 5 F 0 2 3 F 3 -3 4 B 4 2 3 F 3 -3 3 7 8 2 3 F 3 -3 2 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.