Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.12.1994, Blaðsíða 31
S veitarsjóðareikningar 1992
29
3. Bókhaldslykill sveitarfélaga, úrvinnsla gagna og skýringar við töflur
Local govemment chart of accounts, processing ofdata and explanatory notes to the tables
Bókhaldslykill Sambands íslenskra sveitarfélaga. í árs-
byrjun 1979 tók Hagstofan upp nýtt og breytt ársreikningsform
sem var sniðið eftir nýjum bókhaldslykli fyrir sveitarfélög.
Var hann saminn af sérstakri bókhaldsnefnd á vegum
Sambands íslenskra sveitarfélaga í þeim tilgangi að koma á
samræmi íbókhaldi ogreikningsskilagerðhjásveitarfélögum.
Grundvallarlykill hins samræmda bókhalds hefur 8 sæti.
Fyrstu tvö sæti hans sýna málaflokka og bókhaldseiningar
sveitarsjóðs. Þau eru bundin fyrir öll sveitarfélög. Næstu tvö
sæti eru notuð til sundurliðunar í deildir og starfsemisþætti.
Næstu þrjú sæti lykilsins (5.-7.) eru notuð til til að greina
útgjöld og tekjur á tegundir. Loks er síðasta sæti lykilsins
notað til flokkunar á tekjum og gjöldum á rekstur, gjaldfærða
fjárfestingu eða eignfærða fjárfestingu.
Arsreikningsform Hagstofu fylgir bókhaldslyklinum en
er ekki jafn sundurliðað. Það sýnir fyllstu sundurliðun á
fyrstu tvö sæti lykilsins og hið síðasta. Hins vegar er ekki
beitt fyllstu sundurliðun á 3. og 4. sæti og formið gerir ekki
ráð fyrir sundurliðun á tegundir samkvæmt 5.-7. sæti
lykilsins. Eftirtöldum meginreglum er beitt í uppgjöri
Hagstofunnar um færslu bókhalds og reikningsskil sveitar-
félaga.
Allar tekjur og gjöld sem tilheyra hverju uppgjörstímabili,
þ.e. almanaksárinu, eru færð á því tímabili án tillits til
hvenær greiðsla fer fram. Með öðrum orðum þá er um
svonefndan rekstrargrunn að ræða. Oinnheimtartekjurfærast
til tekna á rekstrarreikningi og til eignar í efnahagsreikningi.
Á sama hátt færast ógreidd gjöld til gjalda í rekstrarreikningi
og til skuldar í efnahagsreikningi.
I einu heildaryfirliti er nefnist rekstrar- og framkvæmda-
yfirlit er greint á milli rekstrar sveitarfélaga, gjaldfærðrar
fjárfestingar og eignfærðrar fjárfestingar þeirra. Á rekstur
færast allar tekjur og gjöld sem varða rekstur sveitarsjóðs.
Á gjaldfœrða fjárfestingu færast útgjöld vegna allra
framkvæmda og eignabreytinga, sem ekki eru eignfærð í
efnahagsreikningi. Þannig teljast liðir eins og götur, holræsi,
leikvellir, skrúðgarðar, innanstokksmunir og áhöld til
gjaldfærðrar fjárfestingar. f tekjuhlið er færð bein þátttaka
annarra aðila í viðkomandi gjaldfærðri fjárfestingu svo sem
gatnagerðargjöld og þéttbýlisvegafé. Til eignfcerðrar fjár-
festingar teljast útgjöld til kaupa á fasteignum, vinnuvélum,
bflum og vélasamstæðum. Þessar eignir eru færðar í eignahlið
efnahagsreiknings. Bein þátttaka annarra aðila í eignfærðri
fjárfestingu, t.d. framlög úr rikissjóði, eru færð í tekjuhlið
eignfærðrarfjárfestingar. Ekki erreiknað með árlegri afskrift
húseigna eða annarra varanlegra rekstrarfjármuna sveitar-
sjóðs, heldur er verðmæti eigna fært í samræmi við mat eins
og það er á hverjum tíma. Gert er ráð fyrir að breyting á
matsverði sé fcerð á endurmatsreikning undir liðnum eigið
fé í efnahagsreikningi.
Breytingar ársreikninga sveitarfélaga 1990. í VIII.
kafla sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 er fjallað um fjármál
sveitarfélaga. Reglugerð samkvæmt 81. gr. laganna, um
bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, var sett á árinu 1989.
í I. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um bókhald sveitar-
félaga. Þar segir m.a. að gefin skuli út handbók um
reikningshald sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra þar sem
fram komi leiðbeinandi reglur um flokkun og greiningu á
tekjum og gjöldum, eignum og skuldum sveitarfélaga á
hverjum tíma. Slfkur bókhaldslykill fyrir reikninga sveitar-
félaga hefur eins og áður sagði verið í notkun frá reiknings-
árinu 1979. Setning reglugerðarinnar breytti litlu hvað þetta
varðar og breytingar á málaflokkum rekstrar- og fram-
kvæmdayfirlits voru óverulegar.
í II. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um ársreikninga
sveitarfélaga. 19. gr. hennar segir að sveitarfélög, stofnanir
þeirra og fyrirtæki skuli beita eftirtöldum reikningsskila-
aðferðum:
a) Sértæk reikningsskil fyrir sveitarsjóði og stofnanir
sveitarfélaga sem reknar eru á sambærilegum grund-
velli.
b) Almennri reikningsskilaaðferð hjá fyrirtækjum í
atvinnurekstri.
Með þessu er kveðið á um að reikningar sveitarsjóða eigi
að fylgja sértækri reikningsskilaaðferð en ekki almennri.
Þróun í þá átt var hafin áður og með upptöku bókhaldslykilsins
1979 var stigið stórt skref í þá átt, sérstaklega hvað varðar
færslu bókhaldsins (rekstrar- og framkvæmdayfirlit í stað
hreins rekstrarreiknings) en í uppgjöri var í efnahagsreikn-
ingnum áfram stillt upp samkvæmt almennri reikningsskila-
aðferð (áhersla á eiginfjárstöðu frekar en peningalega stöðu)
og einföldu sjóðsstreymi.
f handbók bókhaldsnefndar Sambands íslenskra sveitar-
félaga, sem gefin var út samkvæmt reglugerðinni (Handbók
um bókhald og reikningsskil s veitarfélaga, nóvember 1991),
eru sveitarfélög hvött til að endurskoða þær reikningskila-
aðferðir sem beitt hafði verið hjá sveitarsjóðum og fyrir-
tækjum þeirra fram til ársins 1990. Til leiðbeiningar við
ákvörðun um val á reikningsskilaaðferð er meðal annars
bent á að rétt sé að hafa í huga hvort rekstraryfirliti sé ætlað
að gefa glögga mynd af hagnaði eða tapi á viðkomandi
tímabili og einnig hvort eiginfjárstaða í efnahagsreikningi
eigi að vera í samræmi við almennt viðurkenndar reiknings-
skilaaðferðir fyrirtækja í atvinnurekstri.
Bókhaldsnefndin gefur út eftirfarandi aðalreglur varðandi
hvaða reikningsskilaaðferð skuli beitt hjá sveitarsjóði og
algengustu fyrirtækjum sveitarfélaga (Handbók, kafli 5.1
bls. 1):
Sveitarsjóður og fyrirtæki Reikningsskila-
aðferðir sbr. 9. gr.
- Sveitarsjóður....................... sértæk
- Hafnarsjóður........................ sértæk
- Vatnsveita.......................... sértæk
- Rafveita..................................... almenn
- Hitaveita.................................... almenn
- Félagslegar íbúðir.............. sértæk
- Strætisvagnar................... almenn
- Félagsheimili....................... sértæk
- Framkvæmdasjóður............................. almenn
- Lífeyrissjóður - eftirlaunasjóður... almenn