Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1997, Side 11

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1997, Side 11
Sveitarsjóðareikningar 1996 9 Afkoma sveitarfélaga 1996 I þessari skýrslu um fjármál sveitarfélaga á árinu 1996 er í yfirlitstöflum reynt að sýnaþau í samhengi við afkomu þeirra árið á undan. Með því móti fæst gleggri mynd en ella af helstu breytingum sem urðu á fjárhag sveitarfélaganna á árinu 1996. Annars vegar verður fjallað um sveitarfélögin í heild, hins vegar borin saman fjármál þeirra á fbúa miðað við mismunandi fiokkun sveitarfélaga. Fjárhagur sveitarfélaga í heild Afkoma sveitarfélaga batnaði á árinu 1996 annað árið í röð. Kom það fram bæði í minni tekjuhalla og lægri lánsfjárþörf. 2. yfirlit sýnir í hnotskum fjármál sveitarfélaga á árunum 1995 og 1996. Árið 1996 voru heildargjöld sveitarfélaga 0,6 milljarðar króna umfram heildartekjur samanborið við halla sem nam 1,9 milljörðum króna árið áður og 7,4 milljörðum króna árið 1994. Sem hlutfall af landsframleiðslu lækkaði tekjuhallinn úr 1,7 % árið 1994í0,4%árið 1995 og0,l%árið 1996. Hrein lánsfjárþörf sveitarfélaga lækkaði jafnframt úr 6,0 milljörðum króna árið 1994 í 4,0 milljarða króna árið 1995 og 1,4 milljarða króna árið 1996. Lánsfjárþörfm nam 0,3% af landsframleiðslu árið 1996 borið saman við 0,9% árið 1995 og 1,4% árið 1994. Tekjuhalli sveitarfélaganna svaraði til 1,3% af tekjum þeirra á árinu 1996 en hann nam 4,6% af tekjum þeirra árið á undan. Árið 1994 nam hallinn 19,4% af tekjum sveitar- félaganna og 15,1% árið 1993, en þau tvö ár var halli þeirra mun meiri en þekkst hafði um langt skeið. I 3. yfirliti er dregin upp mynd af tekjuafkomu sveitarfélaga árið 1995 og 1996. 3. yfírlit. Tekjur og gjöld sveitarfélaga 1995-1996 Summary 3. Local government revenue and expenditure 1995-1996 Milljónir króna á verðlagi hvers árs Hlutfall af vlf *> Million ISK at current prices Percent of GDP 1995 1996 1995 1996 Heildartekjur 42.076 49.055 9,3 10,1 Total revenue Skatttekjur 28.713 33.575 6,4 6,9 Tax revenue Beinir skattar 21.032 25.244 4,7 5,2 Direct taxes Óbeinir skattar 7.681 8.330 1,7 1,7 Indirect taxes Þjónustutekjur 9.884 10.994 2,2 2,3 Service revenue Vaxtatekjur 510 565 0,1 0,1 lnterest Tekjur til fjárfestingar 2.969 3.922 0,7 0,8 Capital transfers received Ýmsar tekjur 0 - 0,0 - Other revenue Heildargjöld 43.993 49.690 9,7 10,3 Total expenditure Rekstrargjöld 32.259 37.195 7,1 7,7 Operational outlays Fjármagnskostnaður 2.051 2.132 0,5 0,4 Interest Gjöld til fjárfestingar 9.683 10.363 2,1 2,1 Investment outlays Tekjujöfnuður -1.917 -635 -0,4 -0,1 Revenue balance » Verg landsframleiðsla, en hún nam 451.637 m. kr. árið 1995 og 484.348 m. kr. árið 1996, samkvæmt gögnum Þjóðhagsstofnunar. Landsframleiðslan jókst um 1,0% að raungildi fyrra árið og um 5,2% seinna árið. Gross domestic product amounted to 451,637 million ISK 1995 and 484,348 million ISK in 1996. Heildartekjur sveitarfélaga námu 10,1% af landsfram- leiðslu ársins 1996 og heildargjöld þeirra 10,3%. Áratuginn 1986-1996 mældust umsvif sveitarfélaga allt frá tæpum 9% aflandsframleiðsluhversársuppítæp 11%. Ásamatímabili jókst landsframleiðslan um 20% að raungildi, en bæði tekjur og gjöld sveitarfélaga voru 35% hærri að raungildi á árinu 1996 en þau voru árið 1986. Aukin umsvif sveitarfélaga skýrast einkum af tilflutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Tekjur sveitarfélaga eru einkum af þrennum toga; skatt- tekjur, eigin rekstrartekjur og framlög frá öðrum. Síðasttaldi tekjustofninn er aðallega vegna sölu á eignum hjá sveitar- félögum og greiðslur til sveitarfélaga frá ríkissjóði og öðrum sveitarfélögum til að standa skil á hlutdeild í kostnaði af sameiginlegum verkefnum. I þeim yfirlitum sem hér eru sýnd er hugtakið þjónustutekjur notað sem samheiti fyrir rekstrartekjur sveitarfélaga af veittri þjónustu að viðbættum rekstrarframlögum frá öðrum, svo sem vegna kostnaðar- hlutdeildar í sameiginlegum rekstri. Rekstrar- og fjármagnsgjöld sveitarfélaga vega sem fyrr langþyngst hjá sveitarfélögum og námu tæplega fjórum fimmtu hlutum af gjöldum þeirra á árinu 1996. A níunda áratugnum var þetta hlutfall tiltölulega stöðugt, en þá rann umfjórðungurafheildargjöldumsveitarfélagatilfjárfestingar. Árin 1989-1992 hækkaði hlutfall fjárfestingarútgjalda í um ogyfir30%. Þaðlækkaðií28%áárinu 1993, f 25% árið 1994 og22%árið 1995.Áárinu 19961ækkaði hlutdeildíjárfestingar í heildargjöldum sveitarfélaga enn frekar og nam 21%. Neikvæð afkoma sveitarfélaga á allra síðustu árum hefur valdið því að þau hafa í auknum mæli þurft að taka lán til framkvæmda og rekstrar. Áður voru framkvæmdir sveitar- félaga að stærstum hluta fjármagnaðar af samtímatekjum þeirra fremur en lánsfé. Mikil umskipti í afkomu sveitarfélaga
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.