Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1997, Side 15

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1997, Side 15
Sveitarsjóðareikningar 1996 13 Gjöld sveitarfélaga. Gjöld sveitarfélaga námu alls 10,3% af vergri landsframleiðslu á árinu 1996 samanborið við 9,7% árið áður. Gjöldinjukust um 5,7 milljarðakróna að nafnvirði milli ára eða um 10,4% að raungildi miðað við vísitölu neysluverðs eftir að hafa dregist saman um 5,5% árið á undan. Aukningin á milli ára skýrist að stórum hluta af því að sveitarfélög tóku við rekstri grunnskóla 1. ágúst 1996. Rekstrargjöld sveitarfélaga jukust um 12,7% að raungildi, fjármagnskostnaður um 1,6% og fjárfesting um 4,6%. Upplýsingar um gjöld sveitarfélaga miðast einkum við skiptingu þeirra á málaflokka. Fram hefur komið að í sumum tilvikum eru gjöldin að hluta endurgreidd af rfkissjóði vegna þátttöku hansí stofn- eðarekstrarkostnaði tiltekinna verkefna. Breytt verkaskipting rikis og sveitarfélaga frá ársbyrjun 1990 einfaldaði öll fjárhagsleg samskipti þessara aðila og dró verulega úr sameiginlegri fjármögnun verkefna. Verg gjöld sveitarfélaga til hinna ýmsu málaflokka árin 1995 og 1996 eru sýnd í 6. yfirliti. Fjárfrekustu málaflokkar sveitarfélaga á árinu 1996 voru sem fyrr almannatryggingar og félagshjálp, gatnagerð, fræðslumál, íþróttir og útvist. Alls runnu tæplega tveir þriðju hlutar af heildargjöldum sveitarfélaganna til þessara viðfangsefna á árunum 1995 og 1996. Fram til ársloka 1986 voru heilbrigðismál meðal stærstu útgjaldaflokka sveitar- félaga en með fjárlögum ársins 1987 var fjármögnun fjölmargra sjúkrastofnana breytt þannig að sveitarfélögin sáu ekki lengur um rekstur þeirra. Með breyttri verkaskiptingu í ársbyrjun 1990 var dregið enn frekar úr útgjöldum sveitar- félaga til heilbrigðismála þegar ríkið tók á sig kostnað vegna sjúkrasamlaga, tannlæknaþjónustu, reksturs heilsugæslu- stöðva og heimahjúkrunar. Efnahagur sveitarfélaga. I ársreikningum sveitarfélaga er ekki lögð áhersla á að draga fram hagnað eða tap, heldur er sýnd ráðstöfun á tekjum sveitarsjóða til hinna ýmsu verkefna og þá gjarnan með samanburði við fjárhagsáætlun. Efnahags- reikningur sveitarfélaga miðar að því að draga fram peningalega stöðu sveitarfélaga fremur en eiginfjárstöðu þein'a eins og tíðkast í almennum reikningsskilum fyrirtækja í atvinnurekstri. Peningaleg staða kemur fram sem peningalegar eignir að frádregnumheildarskuldum.Peningalegareignirsveitarfélags samanstanda af veltufjármunum og langtímakröfum þess. Flugtakið nær því til þeirra eigna sveitarfélags sem annað hvort eru reiðufé eða fjármunir sem unnt er að breyta í handbært fé með tiltölulega skömmum fyrirvara, án þess að raska starfsemi sveitarfélagsins. í 7. yfirliti er sýndur saman- dreginn efnahagsreikningur sveitarfélaganna í árslok 1995 og 1996. 7. yfirlit. Efnahagur sveitarfélaga 1995-1996 Summary 7. Local govemment assets and liabilities 1995-1996 Stöðutölur í árslok Milljónir króna á verðlagi í árslok Million ISK at year-end prices Hlutfall af vlf Percent of GDP Balance figures at year end 1995 1996 1995 1996 I. Peningalegar eignir (1.+2.) 14.337 15.523 3,1 3,2 Monetary assets (1.+2.) 1. Veltufjármunir 11.525 11.553 2,5 2,4 Current assets Sjóðir, bankareikningar o.fl. 1.605 1.676 0,4 0,3 Cash hold., bank dep. etc. Skammtímakröfur 9.713 9.724 2,1 2,0 Short-term claims Aðrar eignir 207 153 0,0 0,0 Other current assets 2. Langtímakröfur 2.812 3.970 0,6 0,8 Long-term claims Óinnheimt opinber gjölc 173 159 0.0 0,0 Tax claims Verðbréf 2.639 3.811 0,6 0,8 Loans granted II. Skuldir 38.257 38.641 8,4 7,9 Liabilities Skammtímaskuldir 11.542 10.054 2,5 2,1 Short-term debt Langtímaskuldir 26.715 28.587 5,9 5,8 Long-term debt III. Peningaleg staða (I.-II.) -23.920 -23.118 -5,3 -4,7 Monetary status (7.-/7.) IV. Aðrir liðir 23.920 23.118 5,3 4,7 Other assets Fastafjármunir 102.745 105.838 22,6 21,6 Fixed assets Eigið fé -78.825 -82.720 -17,3 -16,9 Equity J Verg landsframleiðsla. Stöðutölur í árslok eru færðar til meðalverðlags hvers árs með vísitölu neysluverðs. Based on average pric level eacli year.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.