Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.11.1995, Blaðsíða 11
Inngangur
Gagnasöfnun
Upplýsingar um utannkisverslun byggjast að mestu leyti á
aðflutningsskýrslum innflytjenda og útflutningsskýrslum út-
flytjenda. Aðflutningsskýrslurerutölvuskráðarhjátollstjórum
og hefur Hagstofan aðgang að gagnaskrám Ríkistollstjóra og
sækir þangað upplýsingar með vélrænum hætti. Þessar upp-
lýsingar eru yfirfarnar og leiðréttar eins og kostur er. Oft er
haft samband við viðkomandi innflytjendur og útflytjendur
til nánari útskýringa eða til leiðréttingar. Tollyfirvöld hafa
ekki hafið tölvuskráningu útflutningsskýrslna og því fór
skráning þeirra enn fram á Hagstofunni á árinu 1994 eins og
verið hefur. Hagstofan skráir einnig aðflutningsskýrslur frá
Tollpóststofu.
Víðar er leitað upplýsinga um utanríkisverslun en af
tollskýrslumeinum.Siglingamálastofnunríkisins(Skipaskrá)
og Flugmálastjórn, Loftferðaeftirlit, gefa upplýsingar um
kaup og sölu á flugvélum og skipum og er haft samband við
viðkomandi kaupendur og seljendur til nánari upplýsinga.
Hjá Fiskve ðasjóði Islands er leitað upplýsinga um lán til
innlendra útgerðarfyrirtækja vegna endurbóta á íslenskum
fiskiskipum og Siglingamálastofnun gefur upplýsingar um
hvaða skip fara utan til breytinga. f framhaldi af því er haft
samband við hlutaðeigandi fyrirtæki til nánari upplýsinga.
Sendar eru fyrirspurni r ti I fy rirtækja í viðkomandi atvinnugrei n
umendurbæturáerlendumskipumframkvæmdarafíslenskum
fyrirtækjum.Fiskifélagíslands gefurupplýsingarumlandanir
íslenskra fiskiskipa í erlendum höfnum og fiskiskipa í eigu
íslenskra aðila sem eru skráð erlendis (þ.e. sigla undir
hentifána).
Umfang
Hagstofan fylgiraðmestu leiðbeiningum Sameinuðu þjóðanna
um skilgreiningu og meðferð talnaefnis um utanríkisverslun
(United Nations: Intemational Trade Statistics, Concepts
and Definitions), þ.e. hvað er tekið með, hvemig og hvenær.
Um er að ræða vöruviðskipti og er almenna skilgreiningin sú
að allur innflutningur og útflutningur sem eykur eða skerðir
efnislegar auðlindir lands á að teljast með í utanríkis-
verslunartölum. Venja er að greina á milli tvenns konar
gmndvallarreglna um skýrslur varðandi utanríkisverslun,
almennra verslunarreglna (general trade system) og sértækra
verslunarreglna (special trade system). Munur á þessum
reglum felst aðallega í skráningu á vöm sem flutt er í
tollvörugeymslu og á frísvæði. Samkvæmt almennu verslunar-
reglunum er vara skráð í utanríkisverslun þegar hún kemur
inn í tollvörugeymslu/frísvæði en samkvæmt sértæku
verslunarreglunum er varan skráð þegar hún fer úr tollvöru-
geymslu/frísvæði inn í landið. Hérlendis hefur almennu
verslunarreglunum verið fylgt.
Dæmi um liði sem eru meðtaldirí íslenskum skýrslum um
utanríkisverslun:
- Gull til almennra nota
- Vörur sendar í pósti, að verðmæti meira en 25.000 krónur
- Vörur sem fluttar eru inn í landið eða út úr landinu til
frekari vinnslu
- Ýmsar vörur með hátt hlutfal! þjónustu (t.d. skipulags-
teikningar, spólur, hugbúnaður o.s.frv.)
- Skip og flugvélar í förum milli landa
- Landanir erlendra fiskiskipa í innlendum höfnum
- Landaniríslenskrafiskiskipaerlendisogeinniglandanir
hentifánaskipa erlendis, skipa í eigu Islendinga
- Vörur í eignarleigu (eitt ár eða lengur)
- Endursendar vörur
- Meiri háttar viðgerðir og endurbætur
Dæmi umliði semekki eru innifaldirííslenskum skýrslum
um utanríkisverslun:
- Vörursem koma til landsins til áframhaldandi flutnings
úr landinu (transit)
- Tímabundinn innflutningur og útflutningur (t.d. fyrir
ýmiss konar sýningar)
- Eldsneyti, vistirog önnur aðföng seld erlendum skipum
eða flugvélum innanlands
- Eldsneyti, vistir og önnur aðföng keypt erlendis fyrir
íslensk skip eða flugvélar
- Olögleg verslun
- Vörurfrá ríkisstjóm til sendiráða og fulltrúa ríkis erlendis
og aðsendar vörur til sendiráða og fulltrúa erlends ríkis
innanlands
- Gull til myntsláttu
- Vörur í afnotaleigu (innan við eitt ár)
- Verðlítil sýnishorn
- Keypt eða seld hentifánaskip
- Afli sem hentifánaskip íeigu Islendinga landar ííslenskri
höfn
- Vöruviðskipti vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli
- Vörusala Islensks markaðar hf. á Keflavíkurflugvelli
- Vörusala Fríhafnar á Keflavíkurflugvelli
Flokkun
Tollskrámúmer
Flokkun vörutegunda í utanríkisverslun byggist á tollskrá.
Núgildandi tollskrátókgildi hinn l.janúar 1988 skv. lögum
nr. 96/1987 urn breyting á tollalögum nr. 55/1987. Með
þessari tollskrá varð gjörbreyting á vöruflokkun í samræmi
við þær breytingar sem þá höfðu verið gerðar á hinni alþjóð-
legu vömflokkunarskráTollasamvinnuráðsinsíBrussel.Þessi
skrá er nefnd Hið samræmda flokkunarkerfi, og er þekkt
undir skammstöfuninni HS eftir hinu enska heiti sínu (the
Harmonized Commodity Description and Coding System).
HS-skráin var viðtekin með samningi Tollasamvinnuráðsins
í Brussel í júní 1983 og gefin út árið 1985. Islendingar voru
aðilar að þessum samningi og var hann fullgiltur af Islands
hálfu íjúní 1986. HS-skráin tók gildi í flestum aðildarríkjum
Tollasamvinnuráðsins frá og með 1. janúar 1988.
I IS-skráin er sex stafa flokkunarkerfi þar sem tveir fyrstu
stafirnir mynda kafla frá 01 -97 og eru vörur flokkaðar innan