Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.11.1995, Blaðsíða 14
12
Utanríkisverslun 1994, Vöruflokkar og viðskiptalönd
jafnframt sýnt hlutfall hans af vergri landsframleiðslu sam-
kvæmt tölum Þjóðhagsstofnunar. Innflutningur fob 1994
nam 93,2 milljörðum og var vöruskiptajöfnuðurinn 1994 því
hagstæður um 19,4 milljarða. í 2. yfirliti kemur fram að
vöruskiptajöfnuðurinn fob við útlönd hefur verið hagstæður
fimm ár af þeim tíu árum sem hér eru sýnd. Mestur afgangur
var árið 1994, 4,5% af landsframleiðslu, en einnig var
umtalsverður afgangur árin 1993, 1986 og 1989. Halli vará
vöruskiptunum fimm þessara ára, mestur 1,1% af lands-
framleiðslu árið 1987. Á mynd 1 má sjá þróun útflutnings
fob, innflutnings fob og vöruskiptajöfnuðar fob.
2. yfirlit. Vöruskiptajöfnuður 1985-1994
I millj. kr. Útflutt fob Innflutt fob Vöruskiptajöfnuður
Á gengi hvers árs Á gengi ársins 1994 0 Hlutfall af vlf.,%
1985 33.750 33.766 -17 -37 -0,01
1986 44.968 41.101 3.867 7.349 2.40
1987 53.053 55.260 -2.207 -4.046 -1,06
1988 61.667 62.243 -577 -925 -0,22
1989 80.072 73.129 6.943 8.856 2,25
1990 92.625 88.085 4.540 5.199 1.25
1991 91.560 94.797 -3.237 -3.706 -0.82
1992 87.833 88.224 -391 -445 -0.10
1993 94.658 82.576 12.081 12.710 2,94
1994 112.654 93.243 19.411 19.411 4.48
0 Miðað við meðalgengi á viðskiptavog.
Mynd 1. Utanríkisverslun 1985-1994
Mill. kr á gengi hvers árs
Fróðlegt er að sjá hvernig hlutfall fob-verðs og cif-verðs
hefur þróast undanfarin ár. Árið 1994 nam heildarverðnræti
innflutningsins cif 102,5 milljörðum kr. en fob-verðmæti
hans 93,2 milljörðum kr. eða sem nam 90.9% af cif-verð-
mætinu. Sambærilegt hlutfall var 90,4% árið 1993. Að
undanskildum skipum og flugvélum, en á þeim fer fob- og
cif-verð að mestu saman, var hlutfall fob-verðmætis af cif-
verðmæti innflutnings 90,5% árið 1994 samanborið við
90,2% árið 1993 og 89,1-90,7% árin 1984-1992.
Verð- og magnbreytingar 1993-1994
3. yfirlit sýnir samanburð á utanríkisverslunartölum á föstu
gengi árin 1993 og 1994. Hér er um sams konar töflu að ræða
og birtist í fréttatilkynningu sem Hagstofan sendir frá sér í
hverjum mánuði til upplýsingar um framvindu helstu flokka
innflutnings og útflutnings í samanburði við næstliðið ár.
Venja hefur verið að umreikna tölur fyrra árs til nteðalgengis
líðandi árs til þess að eyða áhrifum gengisbreytinga á verð-
mætistölur svo samanburður milli ára verði marktækari en ella.