Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.06.2000, Page 28
26
Utanríkisverslun 1999 - vöruflokkar og viðskiptalönd
17. yfirlit sýnir útflutning eftir Hagstofuflokkun og markaðs-
svæðum árið 1999. EES lönd áttu mesta hlutdeild í útflutning-
num, eða 69%. Sjávarafurðir voru 67% alls útflutningsins og
af þeim voru 71% flutt út til EES-landa. Þessi lönd keyptu
51% af landbúnaðarvörum og 70% af þeim iðnaðarvörum sem
Islendingar fluttu út.
18. yfirlit sýnir innflutning eftir vörubálkum (SITC) og
markaðssvæðum árið 1999. EES-lönd voru með 66% af inn-
flutningi 1999. Innflutningur á vélum og samgöngutækjum
var stærsti liður innflutningsins (41%) og af þeim voru 65%
flutt inn frá EES.
19. yfirlit sýnir, eins og 17. yfirlit, útflutning eftir markaðs-
svæðum en samkvæmt hagrænni flokkun. Matvörur og
drykkjarvörur vega hér þyngst (62%) og af þeim voru 69%
flutt út til EES-landa árið 1999. Af hrávörum og rekstrar-
vörum, sem næstar eru, var 78% flutt út til EES-landa. Af
fjárfestingarvörum og flutningatækjum var meiri útflutningur
til annarra landa en landa EES.
20. yfirlit sýnir innflutning eftir markaðssvæðum eins og
18. yfirlit en samkvæmt hagrænni flokkun. Hrávörur og
rekstrarvörur vega þyngst (24%) og af þeim voru 70% flutt
inn frá EES-löndunum. Um 77% eldsneytis og smurolíu kom
frá EES-löndum, aðallega frá Noregi.
Gjaldmiðlar og gengi
21. yfirlit sýnir hlutdeild landa og gjaldmiðla í útflutningi
og innflutningi árið 1999. Þessi tafla byggist á því að í út-
flutnings- og aðflutningsskýrslum kemur fram í hvaða gjald-
miðli hver sending útfluttrar og innfluttrar vöru er verðlögð.
Oft munar töluverðu á hlutdeild landa í vöruskiptum og
hlutdeild gjaldmiðla sömu landa í viðskiptum með vörur.
Þetta kemur skýrt fram í viðskiptum við Bandaríkin. Arið
1999 fór 15% vöruútflutningsins til Bandaríkjanna en 36%
útflutningsins voru verðlögð í dollurum. Frá Bandaríkjunum
kom 11% innflutningsins árið 1999 en 26% innflutningsins
voru reiknuð í dollurum.
22. yfirlit sýnir kaupgengi og sölugengi helstu gjaldmiðla
árið 1999.
21. yfírlit. Hlutdeild landa og gjaldmiðla í útflutningi og innflutningi árið 1999
Hlutdeild landa í utanríkisverslun Hlutdeild gjaldmiðla viðkomandi landa
Útflutningur Innflutningur Útflutningur Innflutningur
Alls 100,0 100,0 100,0 100,0
EES 68,9 66,3 49,4 66,2
Austurríki 0,1 0,7 0,1 0,4
Belgt'a 1,4 1,7 1,2 1,0
Bretland 19,7 9,2 19,2 7,9
Danmörk 4,6 8,1 5,2 12,2
Finnland 0,5 1,6 0,3 0,8
Frakkland 5,2 3,8 4,0 1,8
Grikkland 0,6 0,1 0,0 0,0
Holland 6,0 5,2 1,0 4,9
Irland 0,3 1,5 0,0 0,2
Island 0,9 4,8
ftalía 1,7 3,4 0,2 1,9
Liechtenstein 0,0 0,0 - -
Lúxemborg 0,1 0,0 - -
Noregur 4,8 10,4 5.1 7,5
Portúgal 4,8 0,7 1,8 0,2
Spánn 5,2 2,0 3,9 0,8
Svíþjóð 0,9 6,2 0,8 6,6
Þýskaland 13,1 11,8 5,8 15,1
Bandaríkin 14,7 10,9 36,2 26,0
Japan 5,0 5,5 4,8 2.3
Önnur lönd 11,4 17,3 0,9 1,4
Astralía 0,1 2,6 - 0,0
Hongkong 0,0 0,5 - 0,0
Kanada 1,5 0,8 0,8 0,8
Nýja-Sjáland 0,1 0,1 - 0,0
Singapúr 0,0 0,1 - 0,0
Sviss 3,7 1,1 0,1 0,6
Önnur lönd 6,0 12,1 - 0,0
Annað 8,7 4,1
EUR-Evra (Euro) 8,7 4,1
SDR-Sérstök dráttarréttindi 0,0 0,0