Vinnumarkaður - 01.09.1996, Síða 17

Vinnumarkaður - 01.09.1996, Síða 17
Y firlit yfir helstu niðurstöður 15 karla eða rúm 88% á móti 82%. Hún var minni í yngstu aldurshópunum en þeim eldri. Stéttarfélagsþátttaka var einnig meiri í kaupstöðum og bæjum utan höfuðborgarsvæðisins en í öðrum sveitarfélögum. Að landbúnaði undanskildum var stéttarfélagsþátttaka minnst í hótel- og veitingahúsarekstri en mest í fræðslustarfsemi. Hagstofan safnar einnig gögnum frá stéttarfélögum og samtökum þeirra unt fjölda skráðra félagsmanna í lok h vers árs. Samkvæmtupplýsingumfrástéttarfélögunumfjölgaði virkum félögum um2.279 manns á árinu 1995. Virkir félagsmenn voru íárslok 103.520. 1.3 Atvinnulausir Þróun atvinnuleysis. Töflur 5.9-5.12, 6.1. Myndir 4.8-4.12 Atvinnuleysi á árinu 1995 var4,9% en hafði verið 5,3% næstu tvö ár á undan. Það svarar til þess að 7.200 manns hafi verið atvinnulausir árið 1995, þar af 3.800 konur. Atvinnuleysi var meira á fyrri helmingi ársins en á hinum síðari. Það mældist 5,8% í apríl en 3,9% í nóvember. Þá hafði atvinnuleysi ekki farið undir 4% frá því í apríl 1992 er það mældist 3,6%. I apríl 1995 mældist atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 6,2% og hefur það aldrei mælst hærra í könnunum Hagstofunnar. Sveiflur hafa verið einna mestar í smærri sveitarfélögum. Atvinnuleysi aldurshópsins 16-24 hefur haldist hátt frá því í nóvember 1992. Arið 1995 var atvinnuleysi íþeim aldurshópi 11% en fór varla yfir 4% í öðrum aldurshópum. Lengd atvinnuleitar. Töflur 6.44-6.45 Arið 1995 höfðu um 29% atvinnulausra verið að leita sér að vinnu í 6 mánuði eða lengur. Þetta er svipað hlutfall og árin 1993 og 1994 en öllu meira en árin þar á undan. Hvorki er telj andi munur milli kynj a hvað þetta varðar né milli landss væða. Aðferð við atvinnuleit. Töflur 6.46-6.47 Þegar athugað er hvernig atvinnuleitendur leituðu að vinnu síðustu fjórar vikurnar áður en spurt var kemur í ljós að langflestir höfðu lesið blaðaauglýsingar (79%), leitað beint til atvinnurekenda (61%) eða notið aðstoðar vina eða ættingja (57%). Tæplega 37 % létu skrá sig hjá opinberri vinnumiðlun. Ekki var marktækur munur milli karlaog kvenna áþví hvernig þeir leituðu sér vinnu. Tegund vinnu sem leitað er að. Töflur 6.48-6.49 Rúmlega 9% karla voru aðeins í leit að hlutastarfi árið 1995 en rúmlega 35% kvenna.. Aðrir voru í leit að fullu starfi eða tilbúnir að taka fullt starf ef það byðist. Breytingar frá árinu áður eru ekki marktækar. Atvinnuleysi og opinber skráning. Töflur 6.50-6.51 Fólk sem ekki er í starfi er jafnan spurt að því í vinnumarkaðskönnunum Hagstofunnar hvort það sé skráð atvinnulaust hjá opinberri vinnumiðlun. Um 62% atvinnu- lausra, eins og þeir eru skilgreindir skv. vinnumarkaðs- könnunum, voru jafnframt skráðir atvinnulausir, 38% voru ekki á skrá. Á árinu 1995 fullnægðu að jafnaði um 600 manns af þeim sem voru á atvinnuleysisskrá ekki skilyrðum vinnumarkaðskannana um að teljast atvinnulausir. Þessi hópur er vantalinn vegna þess að ekki eru taldir með þeir sem eru skráðiratvinnulausirjafnframtþvíað veraístarfia.m.k. 1 klst. eða lengur í viðmiðunarvikunum. Ástæður brotthvarfs úr fyrri vinnu. Töflur 6.52-6.53 Munfærrihættuísíðastastarfiárið 1995enáárinu 1994vegna þess að þeim væri sagt upp; tæp 19% á móti tæpum 27%. Helsta ástæða þess að fólk hætti í síðustu vinnu á árinu 1995 var sú að fyrra starf var tímabundið. Hvorki er teljandi munur á milli karla og kvenna hvað þetta varðar né á milli höfuðborgarsvæðis og annarra landshluta. Atvinnuleysi eftir atvinnugreinuni og starfsstéttum. Tafla 6.54 Árið 1995 var atvinnuleysi hlutfallslega mest í iðnaði, veitustarfsemi og mann virkjagerð eða 5,4% en minnst í starfsemi á vegum hins opinbera og ýmis konar þjónustu, 2,6%. Þetta eru svipaðar niðurstöður og ári áður. 1.4 Önnurgögn Skráð atvinnuleysi. Töflur 7.5-7.6. Myndir 7.1-7.2. Hlutfall fólks á aldrinum 15-24 ára af öllum atvinnulausum sveiflast eftir árstíðum. Það er að jafnaði lægst í lok ágúst en hæst á fyrsta og öðrum ársfjórðungi. Þetta hlutfall hefur þó farið hækkandi, einkum eftir 1988. Það ár var það um 16% en fór á árinu 1992 upp undir 30%. Eftir það hefur hlutfall ungmenna af skráðum atvinnulausum farið hægt minnkandi, árið 1995 var það rúm 24%. Þegar litið er á þróun langtíma- atvinnuleysis 1986-1995 má sjá að árið 1990 jókst hlutfall þeirra sem eru atvinnulausirí sex mánuði eða lengur. Árið 1991 og fram á árið 1992 fækkar hlutfallslega í þeim hópi en fjölgar ánýjanleikeftirþað. Árið 1995 var hlutfall atvinnulausra í 6 mánuði eða lengur rúm 28 % af skráðum atvinnulausum miðað við tæp 27% ári áður. Erfitt er að bera saman atvinnuleysi í vinnumarkaðs- könnunum Hagstofunnar og skráð atvinnuleysi hjá vinnu- miðlunum sveitarfélagannaþar sem ólíkar skilgreiningar liggja þar að baki. Nánar er fjallað um þennan mun í kafla 2. Greinar- gerð um aðferðir og hugtök. Vinnuaflsspá. Tafla 8.1 Hagstofan áætlar að frá 1995 til aldamóta fjölgi á vinnumarkaði um 7.400 manns en um 33.000 fram til ársins 2020. Spáin gerir ekki ráð fyrir að fólki á vinnumarkaði fjölgi eftir það fram til ársins 2030. f samræmi við hækkandi aldur þjóðarinnar mun fólki á vinnumarkaði fj ölga í aldurshópum eftir 45 ára en fækka á yngri aldursskeiðum. Þessi framreikningur er byggður á nýrri mannljöldaspá Hagstofunnar og endurskoðuðum atvinnuþátttökutölum. í fyrri spá, sem var gerð 1993, var gert ráð fyrir að á vinnumarkaði yrðu 147.700 á árinu 1995 en reyndin varð 149.000 manns.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Vinnumarkaður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.