Vinnumarkaður - 01.09.1996, Síða 23

Vinnumarkaður - 01.09.1996, Síða 23
Greinargerð um aðferðir og hugtök 21 við þann aldur sem svarendur hafa náð 15. dag könnunar- mánaðar. I vorkönnununum 1993 og 1995 var þó miðað við 31. mars hvort ár. Atvinnugrein. Atvinnustarfsemi þeirra fyrirtækja sem fólk starfar hjá eða starfaði síðast hjá er flokkuð í samræmi við Islenska atvinnugreinaflokkun, ISAT 95, sem byggð er á atvinnugreinaflokkun Evrópusambandsins, NACE (1. endursk.). Atvinnustarfsemi er flokkuð með fjögurra tölustafa atvinnugreinamúmeri. Námugröftur er talinn með iðnaði. Heimilishald með launuðu starfsfólki og starfsemi alþjóðlegra stofnana er talin með annarri samfélagsþjónustu, félagastarfsemi, menningarstarfsemi o.fl. Atvinnustétt. Fjórar atvinnustéttir eru skilgreindar í vinnumarkaðskönnunum Hagstofunnar: Launþegar, einyrkjar, atvinnurekendur og ólaunað skyldulið. í þessari skýrslu er einyrkjum og atvinnurekendum slegið saman í einn hóp, sjálfstætt starfandi. Launþegar eru þeir sem eru starfandi og telja sig vera launþega eða eru á undirverktaka- samningi með starfsskyldur launþega. Til launþega teljast einnig þeir sem eru atvinnulausir og eru að leita sér að vinnu sem launþegar og hafa ekki leitað eftir leyfum, fjárhags- aðstoð, lóð eða þ.h. í þeim tilgangi að hefja sjálfstæðan rekstur. I nóvember 1994 var orðlagi spurningar um atvinnustétt breytt til tryggja að eingöngu ólaunaðir fjölskyldumeðlimir flokkuðust sem “ólaunað skyldulið.” Fram að því hafði borið á því að sjálfstætt starfandi einstaklingar með fjölskyldurekstur væru ranglega flokkaðir sem ólaunað skyldulið. Atvinnuþátttaka. I vinnumarkaðskönnunum Hagstof- unnar er fylgt skilgreiningum Alþjóðavinnumálastofnunar- innar (ILO) á grundvallarhugtökum um vinnumarkað en þær eru notaðar á alþjóðavettvangi. Helstu skilgreiningar eru þessar: Atvinna. Hvers konar vinna gegn endurgjaldi í peningum eða fríðu, ólaunuð vinna við fyrirtæki eigin fjölskyldu, ólaunuð vinna við byggingu eigin íbúðarhúsnæðis eða framleiðslu til eigin neyslu. Ennfremur vinna við listsköpun jafnvel þótt viðkomandi hafi ekki tekjur af henni. Ólaunuð vinna við heimilishald á eigin heimili telst ekki atvinna í skilningi vinnumarkaðskannana. Atvinnulausir. Þeir teljast atvinnulausir sem ekki hafa atvinnu og falla undir eitthvert eftirfarandi skilyrða: 1. Hefur leitað sér vinnu sl. fjórar vikur og er tilbúið að hefja störf innan tveggja vikna frá því könnunin er gerð. 2. Hefur fengið starf en ekki hafið vinnu. 3. Bíður eftir að vera kallað til vinnu. 4. Hefur gefist upp á að leita að atvinnu en bjóðist starf er það reiðubúið að hefja vinnu innan tveggja vikna. Námsmenn, þ.m.t. þeir sem leita námssamnings í iðngrein, teljast því aðeins atvinnulausir að þeir hafi leitað að vinnu með námi eða framtíðarstarfi sl. fjórar vikur og séu tilbúnir að hefja störf innan tveggja vikna frá því könnunin var gerð. Starfandi. Fólk telst vera starfandi (hafa atvinnu) ef það hefur unnið eina klukkustund eða lengur í viðmiðunar- vikunni eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu. Fólk í barnsburðarleyfi telst vera fjarverandi frá vinnu hafi það farið í leyfi úr launuðu starfi jafnvel þótt það hafi ekki hug á að hverfa aftur til sama starfs. Utan vinnuafls. Fólk telst vera utan vinnuafls ef það er hvorki í vinnu né fullnægir skilyrðum um að vera atvinnu- laust. Vinnuafl telst vera starfandi og atvinnulaust fólk. Búseta. Ur þjóðskrá fást upplýsingar um sveitarfélag og póstfang svarenda. Búsetu í vinnumarkaðskönnunum er skipt í a) höfuðborgarsvæði, b) kaupstaði og bæi utan höfuðborgar- svæðis og c) önnur sveitarfélög. Búseta er flokkuð eftir lögheimili í þjóðskrá eða nýjum upplýsingum um svarendur meðan á könnun stendur. A höfuðborgarsvæði eru eftirtalin sveitarfélög: Reykjavík, Seltjarnarnes, Hafnarfjörður, Bessastaða- hreppur, Garðabær, Kópavogur, Mosfellsbær, Kjalarnes- hreppur og Kjósarhreppur. Til kaupstaða og bæja teljast eftirtalin sveitarfélög eða þéttbýli innan sveitarfélaga: Keflavík, Grindavík, Sandgerði, Njarðvík, Akranes, Borgarnes, Stykkishólmur, Ólafsvík, fsafjörður, Bolungar- vík, Blönduós, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Akureyri. Dalvík, Ólafsfjörður, Húsavík, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Eski- fjörður, Neskaupstaður, Höfn í Homafirði, Selfoss, Hvera- gerði og Vestmannaeyjar. Til annarra sveitarfélaga teljast sveitarfélög og dreifbýlis- svæði ótalin hér að ofan. Hjúskaparstétt. Nokkuð er um það að hjúskaparstétt svarenda eins og þeir skilgreina hana sjálfir beri ekki saman við þjóðskrá. Ekki er óalgengt að fráskildir eða ekkjur og ekklar segist vera ógiftir þegar þeir eru spurðir um hjúskapar- stöðu. Nokkuð er um að fólk í óvígðri sambúð telji sig vera í hjónabandi. Væra svör um hjúskaparstétt greinilega röng, miðað við þjóðskrárupplýsingar, voru þau leiðrétt. Lítil vinna. Ef svarandi vann minna en 40 klst. í við- miðunarviku og jafnframt minna en hann gerir að jafnaði vegna verkefnaskorts, vinnudeilu eða atvinnuleysis hluta vikunnar en var jafnframt að leita sér að annarri vinnu eða aukastarfi telst hann vera vinnulítill. Ef svarandi er í hlutastarfi en vill vera í fullu starfi og heildarvinnutími hans í viðmiðunarvikunni að meðtöldum aukastörfum var undir 40 klst. telst hann einnig vera vinnulítill. Menntun. I vinnumarkaðskönnunum Hagstofunnar er spurt um hæstu prófgráðu þátttakenda. Svörin eru flokkuð í samræmi við menntunarflokka ISCED, Alþjóðlegu mennt- unarflokkunarinnar. Grunnmenntun samsvarar flokkum 1 og 2, starfs- og framhaldsmenntun svarar til flokka 3 og 5 og háskólamenntun samsvarar flokkum 6 og 7. I vinnumarkaðskönnunum er ennfremur gert ráð fyrir að iðnmenntun og styttri starfsmenntun ásamt almennri menntun í framhaldsskóla teljist til flokks 3 en starfsmenntun úr svokölluðum sérskólum, s.s. Fósturskóla, fþróttakennara- skóla, Stýrimannaskóla, Myndlista- og handíðaskóla, teljist til flokks 5. Frá og með apríl 1995 hefur menntun verið flokkuð í samræmi við tillögur vinnuhóps Hagstofunnar um drög að flokkun formlegrar menntunar á íslandi í samræmi að alþjóðlegu menntunarflokkunina ISCED. Helsta breytingin frá fyrri flokkun menntunar í vinnumarkaðskönnunum er sú að próf úr húsmæðraskóla og stúdentspróf eru nú flokkuð í ISCED-flokk 3 í stað flokka 2 og 5 áður. Þetta veldur því að fleiri konur en áður eru taldar með starfs- og framhalds- menntun. Námsmenn. S varandi telst námsmaður ef hann var í skóla
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Vinnumarkaður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.