Gistiskýrslur - 01.07.1996, Blaðsíða 5
Formáli
Gistiskýrslur 1995 er þriðja rit Hagstofu íslands um
niðurstöður talningar á gistinóttum á gististöðum á landinu.
Hagstofan hóf reglubundna söfnun upplýsinga um
framboð á gistirými og fjölda gistinátta á gististöðum í júní
1984. Hefur söfnunin tekið til allrar seldrar gistiþjónustu
að undanskildum orlofshúsum stéttarfélaga. Arið 1995 var
byrjað að afla upplýsinga um gestafjölda auk gistinátta. Var
þetta gert til þess að fá upplýsingar um meðallengd dvalar
og um fjölda ferðamanna eftir landsvæðum. Eins og vænta
mátti var við ýmsa byrjunarörðugleika að etja við þessa
nýju upplýsingaöflun, bæði vegna misskilnings við
útfyllingu eyðublaða og aukins álags á seljendur gistiþjón-
ustu við talningu á gestakomum. Því er ekki unnt að gera
gestafjölda árið 1995 ítarleg skil og í þessu riti er einungis
vikið stuttlega að meðallengd dvalar á hótelum og
gistiheimilum.
Skýrsluskil frá hótelum, gistiheimilum og farfugla-
heimilum eru góð en mættu vera reglulegri til þess að unnt
sé að birta gistitölur oftar en einu sinni á ári. Skýrsluskil
seljenda annarrar gistiþjónustu voru viðunandi á síðasta ári
en kostuðu þó tímafrekan eftirrekstur. Eigendur nýrra
gististaða eru greinilega vel upplýstir um mikilvægi
gagnasöfnunarinnar því gistiskýrslur hafa yfirleitt borist
bæði fljótt og vel frá þeim. Gagnasöfnunin gengur því mun
betur en áður. Af samtölum við þá seljendur gistiþjónustu
sem ekki skila skýrslum hefur komið í ljós að ósjaldan telja
þeir starfsemi sína svo veigalitla að ekki svari fyrirhöfninni að
útbúa skýrslur. Þessar upplýsingar eru þó ekki síður mikil vægar
þ ví Hagstofunni er ekki kunnugt um annað en að gististaðurinn
sé opinn og í fullum rekstri.
Þeir sem hika við að senda Hagstofunni upplýsingar
um gistinætur eru nú orðnir fáir. Rekstraraðilum gististaða
er greinilega vel kunnugt urn að með allar upplýsingar sem
Hagstofan safnar til hagskýrslugerðar og varða einstaka
rekstraraðila er farið sem trúnaðarmál. Meginregla
Hagstofunnar er að hagskýrsluupplýsingar, er varða einstak-
linga eða fyrirtæki, eru aldrei látnar öðrum í té, hvorki
opinberum aðilum né einkaaðilum, og eru aðeins birtar
samandregnar í töfluyfirlitum. Töflugerðin miðast við það
að upplýsingarnar verði ekki raktar beint eða óbeint til
einstakra aðila. Þá má benda á að upplýsingar þær sem
seljendur gistiþjónustu láta Hagstofu íslands í té koma ekki
síst þeim sjálfum til góða við skipulagningu starfseminnar
og markaðsrannsóknir.
A Hagstofunni hefur Rut Jónsdóttir haft umsjón með
öflun og úrvinnslu gistiskýrslna og samið þetta rit. Asamt
henni hefur Guðný Ragnarsdóttir unnið að söfnun og
úrvinnslu.Uppsetningu og umbrot þessa rits annaðist Þyrí
Baldursdóttir.
Hagstofu Islands í júlí 1996
Hallgrímur Snorrason
Preface
Tourist Accommodation 1995 is the third report issued by
Statistics Iceland on the subject. In June 1984 Statistics Ice-
land began collecting data on the supply and use of tourist
accommodation on a regular basis. The data collection ex-
tended to ovemight stays in all types of tourist accommoda-
tion with the exception of trade-union summer houses. In
the 1995 the data collection was extended to cover guest
arrivals. The purpose of this was to acquire information on
average length of stay and on the number of tourists by
regions. This new collection encountered some difficulties at
the outset and as a result of that the available data on guest
arrivals in 1995 is fragmentary.
Response rates for hotels, guesthouses and youth hos-
tels continued to be very satifactory in 1995, although they
were in some instances hardly regular enough to allow ac-
commodation data to be published more frequently than once
a year. Final response rates from other purveyors of tourist
accommodation were also satisfactory but required a lot of
proved effort. Owners of new tourist accommodation have
turned out to be well informed of the importance of tourist
accommodation statistics and have responded well to re-
quests for data. On the whole, the data collection has irn-
proved and coverage has increased appreciably.
At Statistics Iceland, Rut Jónsdóttir has been in charge
of the collection of tourist accommodation reports and the
subsequent data processing besides compiling the present
statistical report. Guðný Ragnarsdóttir assisted her in col-
lecting the reports. The lay-out was in the hands of Þyrí
Baldursdóttir.
Statistics Iceland in July 1996
Hallgrímur Snorrason