Gistiskýrslur - 01.07.1996, Síða 5

Gistiskýrslur - 01.07.1996, Síða 5
Formáli Gistiskýrslur 1995 er þriðja rit Hagstofu íslands um niðurstöður talningar á gistinóttum á gististöðum á landinu. Hagstofan hóf reglubundna söfnun upplýsinga um framboð á gistirými og fjölda gistinátta á gististöðum í júní 1984. Hefur söfnunin tekið til allrar seldrar gistiþjónustu að undanskildum orlofshúsum stéttarfélaga. Arið 1995 var byrjað að afla upplýsinga um gestafjölda auk gistinátta. Var þetta gert til þess að fá upplýsingar um meðallengd dvalar og um fjölda ferðamanna eftir landsvæðum. Eins og vænta mátti var við ýmsa byrjunarörðugleika að etja við þessa nýju upplýsingaöflun, bæði vegna misskilnings við útfyllingu eyðublaða og aukins álags á seljendur gistiþjón- ustu við talningu á gestakomum. Því er ekki unnt að gera gestafjölda árið 1995 ítarleg skil og í þessu riti er einungis vikið stuttlega að meðallengd dvalar á hótelum og gistiheimilum. Skýrsluskil frá hótelum, gistiheimilum og farfugla- heimilum eru góð en mættu vera reglulegri til þess að unnt sé að birta gistitölur oftar en einu sinni á ári. Skýrsluskil seljenda annarrar gistiþjónustu voru viðunandi á síðasta ári en kostuðu þó tímafrekan eftirrekstur. Eigendur nýrra gististaða eru greinilega vel upplýstir um mikilvægi gagnasöfnunarinnar því gistiskýrslur hafa yfirleitt borist bæði fljótt og vel frá þeim. Gagnasöfnunin gengur því mun betur en áður. Af samtölum við þá seljendur gistiþjónustu sem ekki skila skýrslum hefur komið í ljós að ósjaldan telja þeir starfsemi sína svo veigalitla að ekki svari fyrirhöfninni að útbúa skýrslur. Þessar upplýsingar eru þó ekki síður mikil vægar þ ví Hagstofunni er ekki kunnugt um annað en að gististaðurinn sé opinn og í fullum rekstri. Þeir sem hika við að senda Hagstofunni upplýsingar um gistinætur eru nú orðnir fáir. Rekstraraðilum gististaða er greinilega vel kunnugt urn að með allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til hagskýrslugerðar og varða einstaka rekstraraðila er farið sem trúnaðarmál. Meginregla Hagstofunnar er að hagskýrsluupplýsingar, er varða einstak- linga eða fyrirtæki, eru aldrei látnar öðrum í té, hvorki opinberum aðilum né einkaaðilum, og eru aðeins birtar samandregnar í töfluyfirlitum. Töflugerðin miðast við það að upplýsingarnar verði ekki raktar beint eða óbeint til einstakra aðila. Þá má benda á að upplýsingar þær sem seljendur gistiþjónustu láta Hagstofu íslands í té koma ekki síst þeim sjálfum til góða við skipulagningu starfseminnar og markaðsrannsóknir. A Hagstofunni hefur Rut Jónsdóttir haft umsjón með öflun og úrvinnslu gistiskýrslna og samið þetta rit. Asamt henni hefur Guðný Ragnarsdóttir unnið að söfnun og úrvinnslu.Uppsetningu og umbrot þessa rits annaðist Þyrí Baldursdóttir. Hagstofu Islands í júlí 1996 Hallgrímur Snorrason Preface Tourist Accommodation 1995 is the third report issued by Statistics Iceland on the subject. In June 1984 Statistics Ice- land began collecting data on the supply and use of tourist accommodation on a regular basis. The data collection ex- tended to ovemight stays in all types of tourist accommoda- tion with the exception of trade-union summer houses. In the 1995 the data collection was extended to cover guest arrivals. The purpose of this was to acquire information on average length of stay and on the number of tourists by regions. This new collection encountered some difficulties at the outset and as a result of that the available data on guest arrivals in 1995 is fragmentary. Response rates for hotels, guesthouses and youth hos- tels continued to be very satifactory in 1995, although they were in some instances hardly regular enough to allow ac- commodation data to be published more frequently than once a year. Final response rates from other purveyors of tourist accommodation were also satisfactory but required a lot of proved effort. Owners of new tourist accommodation have turned out to be well informed of the importance of tourist accommodation statistics and have responded well to re- quests for data. On the whole, the data collection has irn- proved and coverage has increased appreciably. At Statistics Iceland, Rut Jónsdóttir has been in charge of the collection of tourist accommodation reports and the subsequent data processing besides compiling the present statistical report. Guðný Ragnarsdóttir assisted her in col- lecting the reports. The lay-out was in the hands of Þyrí Baldursdóttir. Statistics Iceland in July 1996 Hallgrímur Snorrason

x

Gistiskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.