Gistiskýrslur - 01.07.1996, Blaðsíða 9

Gistiskýrslur - 01.07.1996, Blaðsíða 9
Inngangur Introduction 1. Gistináttatalning Hagstofu íslands 1. Overnight stays statistics Gistináttatalning Hagstofunnar hófst árið 1984. Gistiskýrslur 1995 er þriðja ritið sem Hagstofan gefur út í ritröðinni um gistiskýrslur. Aður hafa verið gefin út ritin Gistiskýrslur 1984- 1993 og Gistiskýrslur 1994. í inngangi þessa rits eru yfir- litstöflur fyrir árin 1985-1995 en í töfluhlutanum eru dýpri sundurliðanir fyrir árin 1993-1995. Upplýsingaöflun Hag- stofunnar fer þannig fram að gististöðum og öllum þeim er selja gistisþjónustu eru send skýrslueyðublöð til útfyllingar en á þau skal færa fjölda gesta og gistinátta sundurliðaðan eftir ríkisfangi. Ríkisföngin eru auk Islands 14 Evrópulönd þaðan sem flestir ferðamenn koma, Bandaríkin, Kanada og Japan. Aðrir gestir teljast sem aðrir Evrópubúar eða frá öðrum löndum. Fram til ársins 1995 var einungis beðið um fjölda gistinátta en í júní árið 1995 var byrjað að safna upplýsingum um fjölda næturgesta. Tölur um fjölda næturgesta eru ekki birtar að svo stöddu þar sem söfnun þeirra upplýsinga fór seint af stað með tilheyrandi byrjunarörðugleikum. Gesta- komum verður gerð betri skil að ári. Réttur Hagstofu til að krefja seljendur gistiþjónustu upplýsinga er byggður á 10 gr. laga um veitinga- og gististaði, nr. 67/1985. Þar segjr:,,Rekstrar- aðilar, er undir þessi lög falla, skulu veita stjómvöldum upp- lýsingar skv. nánari fyrirmælum Hagstofu fslands. Slíkar upp- lýsingar skulu einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni almennt og/eða rekstri veitinga- og gisti- húsa sérstaklega sem atvinnugreinar." í samræmi við þessa lagagrein og venjur skuldbindur Hagstofan sig til að fara með allar upplýsingar um starfsemi einstakra gististaða sem trúnaðarmál og fætur aðeins í té upplýsingar í töflum eins og fram kemur í þcssu riti. Skýrslur þær sem Hagstofan sendir seljendum gisti- þjónustu til útfyllingar samanstanda af þremur eyðublöðum. Tvö þeirra eru svokölluð hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir gistinætur. Þessi blöð eru einungis ætluð til notkunar á gististöðunum og eru þannig að hægt er að fylla þau út eftir hvem dag. Þriðja eyðublaðið er „Gisti- skýrsla til Hagstofu" og er eina blaðið sem skal senda Hagstofunni. Á það skal færa samtölur mánaðarins af hjálpar- blöðunum ásamt upplýsingum um gistirými. 2. Flokkun gististaða 2. Classification of tourist accommodation Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. í úrvinnslu Hagstofunnar er henni skipt í sex meginflokka. Fyrsti flokkur er hótel og gistiheimili. Hann telur hótel, hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, Edduhótel, önnur sumarhótel og sumargistiheimili. í þessum flokki em öll hótel og gistiheimili sem eru með sérstaka gesta- móttöku og bjóða upp á lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á herbergjum og salemum. Auk þess eru í þessum llokki gistiheimili þar sem gistirými er 16 rúm eða fleiri og/eða 8 herbergi eða fleiri. Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr. reglu- gerðar nr. 288/1987 um veitinga- og gististaði. Þessi flokkur gistiþjónustu tekur til stærsta hluta allrar gistiþjónustu í landinu. Tveir þriðju hlutar þeirra gistinátta sem Hagstofan hefur upplýsingar um eru á gististöðum í þessum flokki. Annar flokkur gististaða var í „Gistiskýrslum 1994“ kallaður bændagististaðir en er nú kallaður heimagististaðir. Þeirri gistingu sem áður var kölluð bændagisting hefur nú verið skipt upp í hótel og gistiheimili annars vegar og heimagistingu hins vegar. Fyrrum bændagististaðir sem eru með gistirými svipað áðurnefndum viðmiðunarmörkum eða stærra, flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir minni sem heimagististaðir. Til heimagististaða telst öll gisting á einkaheimilum fólks hvort sem er í kaupstöðum eða á bæjum til sveita. Bændur eru ósjaldan með eitt til tvö sumarhús að auki og þar sem erfitt hefur reynst að fá þessa gistingu nákvæmlega sundurliðaða frá hinni hefðbundnu heimagistingu er sú gisting innifalin í heimagistingunni. Leigi bændur sumarhús sín út til stéttar- eða starfsmannafélaga er sú gisting ekki meðtalin hér. Þriðji flokkur gististaða eru farfuglaheimiii. Farfugla- heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda en gestir þurfa að hafa með sér sængurföt eða leigja þau á staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. Oll farfuglaheimili eru í Bandalagi íslenskra farfugla sem er aðili að alþjóðasamtökum farfugla (IYHF). Fjórði flokkur gististaða eru svefnpokagististaðir. Hér er um að ræða sumarhótel, félagsheimili og skóla sem selja gistingu í svefnpokum á gólfdýnum í stærri vistarverum. Ymsir gististaðir bjóða upp á svefnpokagistingu í rúmum en sú gisting telst með gistingu í uppbúnum rúmum. Fimmti flokkur gististaða eru tjaldsvœði og skálar. Til þessa flokks teljast öll tjaldsvæði og gistiskálar þar sem er gjaldtaka. Þessum flokki er skipt niður í tjaldsvæði í dreif- býli og þéttbýli, tjaldsvæði á hálendi og skála á hálendi. Hálendinu er síðan skipt niður í þrjú svæði, norðurhálendi, austurhálendi og suðurhálendi. Þessi skipting er í samræmi við tillögu Landmótunar h/f sem vinnur að skipulagi hálendis- ins. Loks má nefna sjöttu tegund gistingar, leigu orlofshúsa. Ekki hefur reynst unnt að afla upplýsinga um nýtingu í þessum flokki en hjá Fasteignamati ríkisins fengust þó upplýsingar uin fjölda og stærð sumarbústaða sem ekki eru í einkaeign. í yfirlitstöflum 17 og 18 kemur fram fjöldi, stærð og meðalstærð sumarhúsa í eigu stéttar- og starfsmannafélaga og húsa í eigu fyrirtækja sem reka ekki gistiþjónustu heldur leigja/lána húsin starfsmönnum og/eða viðskiptavinum sínum. 3. Helstu niðurstöður 3. Main results Hér á eftir eru helstu niðurstöður gistináttatalningar Hag- stofunnar settar fram í yfirlitstöflum fyrir hvem flokk gisti- staða. Upplýsingar um fjölda gististaða og gistirými eru birtar eftir árum. Gistinóttum og nýtingartölum er skipt eftir mánuðum þar sem því verður við komið. Þá er landinu skipt í níu svæði sem fylgja kjördæmum að öðru leyti en því að Reykjavík og Reykjaneskjördæmi er skipt í Suðurnes og höfuðborgarsvæði og að Mosfellsbær og Kjós tilheyra Vesturlandskjördæmi. Níunda landsvæðið er hálendið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Gistiskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.