Gistiskýrslur - 01.07.1996, Side 78

Gistiskýrslur - 01.07.1996, Side 78
76 Gistiskýrslur Eldri gistiskýrslur Previous publications on tourist accommodation Gistiskýrslur 1984-1993. Hagskýrslur fslands III, 23 Gistiskýrslur 1994. Hagskýrslur íslands III, 30 Ritröðin Hagskýrslur íslands The series Statistics oflceland Eftir að Hagstofa íslands tók til starfa í ársbyrjun 1914 tók hún við opinberri hagskýrslugerð hér á landi og hóf útgáfu Hagskýrslna Islands. Hagskýrslur Islands voru framhald þeirra hagskýrslna sem út voru gefnar á árunum 1858-1912. Fyrstu innlendu hagskýrslurnar voru gefnar út af Hinu íslenska bókmenntafélagi áárunum 1858-1875. Arin 1874- 1898 voru hagskýrslur birtar í Stjórnartíðindum, í B- deildinni árin 1874-1881 en í C-deildinni árin 1882-1898. Á þessu tímabili birtust skýrslurnar ýmist hver undir sínu heiti eða voru nefndar einu nafni Landshagsskýrslur. Eftir 1898 var hætt að birta þessar skýrslur sem hluta af C-deild Stjórnartíðinda. I stað þess voru þær gefnar út sérstaklega og þá undir heitinu Landshagsskýrslur fyrir Island. Þannig var útgáfunni háttað árin 1899-1913 en þá tóku Hagskýrslur Islands við. Fyrsta skýrslan í ritröðinni Hagskýrslur íslands kom út árið 1914 og voru það Verslunarskýrslur fyrir árið 1912. Með útkomu Verslunarskýrslna fyrir árið 1949, sem gefnar voru út árið 1951, var ákveðið að hæfist nýr útgáfuflokkur, merktur II. í upphaflega útgáfuflokknum voru þá komar út 130 skýrslur, en tvær skýrslur voru óútkomnar og birtust þær síðar sama ár og árið eftir, þ.e. 1952. Alls voru því 132 skýrslur í þessum fyrsta útgáfuflokki. Við gerð Verslunar- skýrslna 1988 var broti og útliti Hagskýrslna íslands breytt. Um leið var ákveðið að þá hæfist þriðji útgáfuflokkurinn, merktur III. og kom fyrsta skýrslan í þeim flokki út í ársbyrjun 1990. í öðrum útgáfuflokki höfðu þá verið gefnar út 89 skýrslur. Ritið Gistiskýrslur 1995 er þrítugasta og áttunda skýrslan í III. tlokki Hagskýrslnaíslands ogjafnframt 259. skýrslan frá upphafi ritraðarinnar. When the Statistics Iceland wasfounded in 1914 it became responsible for the publication of official Icelandic statis- tics. The Bureau published its first issue in the series Statis- tics of Iceland later that same year. This series was in ejfect a continuation ofa previous and more or less regular publi- cation of Icelandic statistics that started in 1858. In 1951 it was decided to continue the Statistics of Ice- land in a new series, labelled II. That series was main- tained until the lay-out andformat ofthe publications was changed in early 1990 with the issue offoreign trade sta- tistics for 1988. That issue marked the beginning of series III of Statistics of Iceland. In the first series 132 statistical reports were published in the years 1914-1952. The second series, published in 1951-1988, contains 89 reports. The present publication, Tourist Accommodation in Iceland, is No.38 in the third se- ries, and No. 259 in the combined series ofStatistics oflce- land.

x

Gistiskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.