Sveitarstjórnarkosningar - 01.03.1993, Blaðsíða 9

Sveitarstjórnarkosningar - 01.03.1993, Blaðsíða 9
Inngangur Introduction 1. Lög um sveitarstjórnarkosningar I. Legislation concerning local government elections Um kosningar til sveitarstjórna gilda lög um kosningar til Alþingis, nr. 80 16. október 1987, með þeim frávikum sem kveðið er á um í sveitarstjórnarlögum nr. 8 18. apríl 1986. Samkvæmt sveitarstjórnarlögumerkjörtímabilsveitarstjórna fjögur ár og fara almennar sveitarstjórnarkosningar fram síðasta laugardag í maímánuði sem ekki ber upp á laugardag fyrir hvítasunnu. Heimilt er, að ósk sveitarstjórna, að fresta kosningum í sveitarfélögum, þar sem færri en 3/4 hlutar íbúanna eru búsettir í kauptúnum, til annars laugardags í júní. Osk um frestun kosninganna skal hafa borist félagsmála- ráðuneytinu fyrir 1. apríl kosningaársins. Sveitarstjórnarlögin 1986 komu í stað sveitarstjórnarlaga nr. 58/1961 með áorðnum breytingum (lög nr. 28/1968, 52/ 1972,41/1976,19/1978,9/1982og 12/1983),lagaum sveitar- stjórnarkosningar nr. 5/1962 með áorðnum breytingum (lög nr. 5/1966,7/1978, 8/1982,10/1982 og 64/1984) og laga um sameiningu sveitarfélaga nr. 70/1970. Kosningartíminn er meðal þeirra atriða, sem nýju lögin breyta. Eftir lögunum frá 1961 var kosið til sveitarstjórnar í kaupstöðum og þeim hreppum, þar sem fullir 3/4 íbúanna bjuggu í kauptúni („kauptúnahreppum"), síðasta sunnudag í maímánuði, sem ekki bar upp á hvítasunnu, en í öðrum hreppum síðasta sunnudag íjúní. Með lögum nr. 9/1982, sem komu til framkvæmda þá um vorið, var kosningardagur færður frá sunnudegi til laugardags á sama tíma, og skyldi hann á sama hátt ekki bera upp á aðfangadag hvítasunnu. Samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða varðandi kosningarnar 1986 gilti fyrri skipan áþessu að öðru leyti en því, að þar sem annars hefði verið kosið síðasta laugardag í júní skyldi kosið laugardaginn 14. júní. I kaupstöðum og kauptúnahreppum var kosið laugardaginn 31. maí. Samkvæmt eldri lögum var ákveðið að í kaupstöðum og kauptúnahreppum skyldi kosning vera hlutbundin, nema enginn listi kæmi fram, þá yrði hún óhlutbundin. I þeim hreppum, sem kosið var í í júní, skyldi kosning vera óbundin, nema 1/10 hluti kjósenda eða 25 þeirra hið fæsta krefðust hlutbundinnar kosningar. I nýju lögunum er sami greinar- munur gerður á sveitarfélögum, nema að í stað þess að kosningartíminn greini á milli, því að hann verður alls staðar hinn sami (nema frestur sé veittur), er aðalreglan sú að í sveitarfélögum þar sem fbúar eru fleiri en 300 skal kjósa bundinni hlutfallskosningu, en í fámennari sveitarfélögum óbundinni kosningu, hvort tveggja með sömu undantekningu og fyrr, nema að talan 25 kjósendur er færð í 20 kjósendur. Framboðsfrestur er til klukkan 12 á hádegi tveimur vikum fyrir kjördag. Sú nýjung er í lögunum, að komi aðeins einn framboðslisti fram fyrir lok framboðsfrests, lengist fresturinn um tvo sólarhringa. Sé þá enn aðeins einn listi í kjöri verður hann sjálfkjörinn án kosningar, eins og áður var. Til þess að framboðslisti teljist réttilega borinn fram þarf tiltekinn fjöldi kjósenda að mæla með listanum. Lágmarks- fjöldi meðmælenda í sveitarfélagi með færri en 500 íbúa er 10, í sveitarfélagi með 501 -2.000 íbúa 20, í sveitarfélagi með 2.001-16.000 íbúa 40, og í sveitarfélagi með 16.001 íbúaog fleiri 100. Hámarkstala meðmælenda er tvöföld tilskilin lágmarkstala. Meðal þess sem breytt var í sveitarstjórnarlögum 1986, var skipan sveitarfélaga í kaupstaði og sýslur. Sýslufélög hurfu úr sögunni og urðu ekki lengur hin lögbundnu samtök hreppa. Þau átti að leggja niður eigi síðar en í árslok 1988. I stað þeirra mynda sveitarfélög héraðsnefndir sem þau skipa sér sjálf saman í. Áður urðu hreppar að kaupstað með laga- setningu og fengu þá sérstöðu og voru utan sýslufélaga. Sveitarfélög nefnast hreppar, bæir eða kaupstaðir, og hafa með sér byggðasamlög um sameiginleg verkefni eftir því sem semst á milli þeirra. Þar sem meiri hluti ibúa hrepps býr í þéttbýli og íbúafjöldi hefur náð að minnsta kosti 1.000 í þrjú ár samfellt, getur hreppsnefnd ákveðið í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að það nefnist bær, og nýtur það þá þeirrar stöðu sem kaupstaðir hafa haft. Með lögum nr. 26 18. maí 1988 um breytingu á sveitarstjórnarlögunum var kveðið nánar á um að réttarstaða bæja skuli vera hin sama og kaup- staða samkvæmt sérlögum. í sveitarstjórn skal fjöldi fulltrúa standa á oddatölu og vera innan eftirtalinna marka: 3-5 aðalmenn þar sem íbúar eru innan við 200, 5-7 aðalmenn þar sem íbúar eru 200-999, 7- 11 aðalmennþarsemíbúareru 1.000-9.999,11-15 aðalmenn þar sem íbúar eru 10.000-50.000 og 15-27 aðalmenn þar sem íbúar eru fleiri en 50.000. Þrátt fyrirþessi ákvæði er ekki skylt að fækka eða fjölga sveitarstjórnarfulltrúum fyrr en íbúatala sveitarfélags hefur verið hærri eða lægri en við- miðunarmörkin í átta ár samfellt. Um úthlutun fulltrúa til framboðslista fer eftir ákvæðum sveitarstjórnarlaganna en þau eru sams konar og giltu fyrir úthlutun þingsæta í kjördæmum við alþingiskosningar fram að setningu nýrra laga urn kosningar til Alþingis 1984. í atkvæðatölu hvers lista skal deila með tölunum 1, 2, 3,4 og svo framvegis. Fyrsta fulltrúa fær sá listi, sem hæsta hefur útkomutöluna, annan sá sem hefur hana næsthæsta, uns úthlutað hefur veriðjafnmörgum fulltrúum og kjósa á. Ef of fá nöfn eru á lista til þess að hann nægi til úthlutunar skal gengið fram hjá honum við frekari úthlutun, og ef tvær eða fleiri útkomutölur eru jafnháar þegar að þeim kemur skal hluta um röð þeirra. Til þess að finna hvaða frambjóðendur hafi náð kosningu af hverjum lista er farið eftir sömu reglum og gilda nú um alþingiskosningar. Kjörstjórn tekur saman þá lista þar sem > engin breyting hefur verið gerð á listanum. Þar telst efsta nafn listans vera í fyrsta sæti, næsta nafn í öðru sæti og svo framvegis. Næst tekur kjörstjórn alla þá kjörseðla þar sem kjósendur hafa gert einhverjar breytingar áröð frambjóðenda og telur atkvæði hvers frambjóðanda í hvert sæti listans. Nöfnum frambjóðenda á listanum er nú raðað þannig að sá sem hlotið hefur flest atkvæði í fyrsta sæti hlýtur það, sá sem að honurn slepptum hefur flest atkvæði í 1. og 2. sæti hlýtur 2. sætið og svo framvegis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarkosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarkosningar
https://timarit.is/publication/1386

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.