Sveitarstjórnarkosningar - 01.04.1998, Blaðsíða 85
Almennar kosningar um sameiningu sveitarfélaga 1993 og 1994
Nationwide elections on the amalgamation of municipalities in 1993 and 1994
A. Lög um sérstakt átak í sameiningu sveitarfélaga
Municipal Amalgamation Act
Vorið 1993 samþykkti Alþingi lög um sérstakt átak í
sameiningu sveitarfélaga á árunum 1993 og 1994.1 Lögin
voru sett sem bráðabirgðaákvæði við sveitarstjómarlögin.2
Eftii þeirra er svohljóðandi:3
Þrátt fyrir ákvæði X. kafla laga þessara skal félagsmála-
ráðherra á árunum 1993 og 1994 beita sér fyrir sérstöku átaki
í sameiningu sveitarfélaga. Það skal gert í samráði við
Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitar-
félaga og einstök sveitarfélög. I stað ákvæða um aðdraganda,
undirbúning og framkvæmd sameiningar í X. kafla laganna
skal við þá sameiningu byggt á eftirfarandi:
1. Landshlutasamtök skulu fyrir 15. júní 1993 kjósafimmtil
níu manna umdæmaneíndir á starfssvæðum allra lands-
hlutasamtaka sveitarfélaga.
Hlutverk umdæmanefnda er að gera tillögur að nýrri
skiptingu hvers landshluta í sveitarfélög í samráði við
viðkomandi sveitarstj ómir. Jaínframt er hlutverk þeirra að
hafa yfirumsjón með kynningu á sameiningartillögum og
að sjá um almenna atkvæðagreiðslu um þær.
Tillögur umdæmanefnda skulu vera tilbúnar fyrir 15.
september 1993. Tveimurumræðumísveitarstjómumum
tillögur umdæmanefnda skal lokið án atkvæðagreiðslu
sveitarstj óma innan sex vikna ff á því að tillögur em lagðar
ffam. Almennri atkvæðagreiðslu um tillögumar skal lokið
innan tíu vikna frá sama tíma.
Umboð umdæmanefnda fellur niður þegar þær hafa
lokið störfum og í síðasta lagi 31. mars 1994.
2. Umdæmanefndir ákveða hver fyrir sig í samráði við
landshlutasamtök og sveitarfélög á svæðinu hvenær almenn
atkvæðagreiðsla skuli fara ffam um sameiningartillögu.
Atkvæðagreiðsla skal fara fram samtímis á starfssvæði
hverra landshlutasamtaka. Atkvæðisbærir við þessa
atkvæðagreiðslu em þeir sem skráðir em með lögheimili í
hverju sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 1.
september 1993 og eiga kosningarrétt við sveitarstjómar-
kosningar skv. 19. gr. Að öðm leyti fer um atkvæða-
greiðsluna effir ákvæðum III. kafla laganna effir því sem
við getur átt.
Hljóti tillaga umdæmanefndar meiri hluta greiddra
atkvæða í öllum þeim sveitarfélögum sem málið varðar
skulu sveitarstjómir þær sem hlut eiga að máli taka
ákvarðanir um fjárhagsmálefhi sveitarfélaganna, fjölda
fulltrúa í nýrri sveitarstjóm, nafn hins sameinaða sveitar-
félags og önnur nauðsynleg atriði. Tilkynning um
ákvarðanir þessar skal send félagsmálaráðuneytinu sem
1 Lög nr. 75 19. maí 1993 um breyting á sveitarstjómarlögum, nr. 8/1986.
2 1. gr. laganr. 75/1993.
3 1. gr. laganr. 75/1993.
ákveður hvenær sameining fer fram og auglýsir hana í
Stjómartíðindum.
Hljóti tillaga umdæmanefndar ekki samþykki í öllum
hlutaðeigandi sveitarfélögum en þó meiri hluta greiddra
atkvæða í a.m.k. 2/3þeirra er viðkomandi sveitarstjómum
heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga sem
samþykkt hafa sameininguna enda hamli ekki landfræði-
legar aðstæður.
3. Verði ekki af sameiningu á grundvelli atkvæðagreiðslu
skv. 2. tölul. að framan er umdæmanefnd heimilt að leggja
fram nýja tillögu. Skal það gert fyrir 15. janúar 1994.
Sömu reglur og tímamörk gilda um seinni tillögu og þá
fyrri að þvi undanskildu að kjörski'á skal þá miðuð við
íbúaskrá þjóðskrár 1. janúar 1994. Jafnframt gilda sömu
ákvæði um ákvarðanir í framhaldi af almennri atkvæða-
greiðslu og gilda um fyrri tillögu.
4. Fyrir 1. júní 1993 skal félagsmálaráðherra skipa sérstaka
samráðsnefnd um sameiningarmál sveitarfélaga. Starfstími
nefndarinnar er til ársloka 1994. Samráðsnefiidin skal
skipuð fulltrúum tilnefndum af þingflokkum á Alþingi,
Byggðastofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og félags-
málaráðuneyti. Nefndin skal m.a. vera umdæmanefndum
til ráðuneytis.
5. Kostnaður við störf umdæmanefnda og samráðsnefndar
skal greiddur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga en kostnaður
við atkvæðagreiðslur skal greiddur af viðkomandi sveitar-
félögum.
6. Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari ákvæði
um ffamkvæmd bráðabirgðaákvæða þessa.
B. Tillögurumdæmanefndaumsameiningusveitarfélaga
Proposals of the Municipal Amalgamation Regional
Committees
Samráðsnefnd um sameiningu sveitarfélaga kynnti tillögur
umdæmanefnda 16. september 1993 með svofellduyfirliti:
„Höfuðborgarsvæðið
Á höfuðborgarsvæðinu er lagt til að sveitarfélögum fækki úr
níu í fjögur. Lagt er til að Reykjavík og næstu nágranna-
sveitarfélög til vesturs og norðurs verði eitt sveitarfélag með
samanlagt 110.343 íbúa, þ.e. Reykjavík með 100.850 íbúa,
Seltjamames með 4.333 íbúa, Mosfellsbær með 4.511,
Kjalameshreppur með 494 íbúa og Kjósarhreppur með 155
íbúa.4
Umdæmanefndin leggur einnig til að Garðabær og
Bessastaðahreppur sameinist í eitt sveitarfélag með 8.497
ibúa. Ekki er gert ráð fyrir að Kópavogur eða Hafnarfjörður
sameinist öðrum sveitarfélögum.
4 Allar íbúatölur eiga við 1. desember 1992.