Sveitarstjórnarkosningar - 01.04.1998, Blaðsíða 102
100
Sameining sveitarfélaga 1993 og 1994
strjálbýli. Árið 1948 var Seltjamameshreppi skipt og Kópa-
vogur gerður að sjálfstæðu sveitarfélagi og er það í síðasta
sinn sem sveitarfélagi er skipt í tvennt. Sveitarfélög höfðu
heldur aldrei verið sameinuð á því tímabili sem yfirlitið nær
yfir en nokkrum sinnum var mörkum breytt til þess að
sameina tvo hluta sama þéttbýlis. Sléttuhreppur í Norður-
ísafjarðarsýslu fór í eyði árið 1953 en land hans var ekki
sameinað öðm sveitarfélagi fyrr en 1995. Nokkur önnur
sveitarfélög hafa verið sameinuð öðru sveitarfélagi þegar
þau hafa verið orðin svo fámenn að þau vom ekki starfhæf
lengur. Þetta á fyrst við um Gmnnavíkurhrepp í Norður-
ísaljarðarsýslu 1964. Sveitarfélög sameinuðust fyrst með
samningi sín í milli 1971 þegar Eyrarhreppur sameinaðist
ísafjarðarkaupstað 3. október það ár. Sú sameining fór fram
samkvæmt lögum um sameiningu sveitarfélaga35 og var ekki
efht til atkvæðagreiðslu meðal íbúanna.
Sameining Hvammshrepps og Dyrhólahrepps í Vestur-
Skaftafellssýslu var sú fyrsta sem fór fram að viðhafðri
atkvæðagreiðslu. Hún var haldin 14. nóvember 1982 og
Mýrdalshreppur sto&aður 1. janúar 1984. í Haganeshreppi
og Holtshreppi fór fram skoðanakönnun um sameiningu
hreppannasamhliðahreppsnefhdarkosningum26.júní 1982.
Könnuninvarekkibindandi. Sameininghlautmeirihlutafylgi
í hreppunum en ekki varð af sameiningu fyrr en árið 1990.
í V. yfirliti koma ffam niðurstöður í atkvæðagreiðslum um
sameiningu sveitarfélaga sem höfðu verið haldnar ffam að
almennu kosningunum 20. nóvember 1993.
í VI. yfirliti er sýnd tala sveitarfélaga 1703-1994 eftir
landsvæðum og í VII. yfirliti er sýnd tala sveitarfélaga eftir
mannljölda og mannflöldi í þeim 1703 og 1910-1994. Við
manntöl á nítjándu öld og árið 1901 var mannfjöldi talinn
eftir sóknum en ekki sveitarfélögum og samsvarandi tölur
því ekki tiltækar ff á þeim tíma. I y firlitinu eru notaðar mann-
fjöldatölur fyrir árið 1901 sem koma ekki heim við prentaða
skýrslu um manntalið þá.36
Fram að gildistöku sveitarstjómarlaga nr. 8/1986 var ekki
lögfest regla um að atkvæðagreiðsla færi ffain áður en
sveitarfélög væm sameinuð. Eftirfarandi ákvæði um mörk
og sameiningu sveitarfélaga gilda nú samkvæmt lögunum:
1. og 2. mgr. 3. gr.
Sveitarfélag hefúr ákveðin staðarmörk. Oheimilt er að
breyta þeim nema með lögum.
Þó geturráðuneytið breytt mörkum sveitarfélaga í sambandi
við sameiningu þeirra eða til staðfestingar á samkomulagi
milli sveitarstjóma. ...
5. gr.
Lágmarksíbúatala sveitarfélags er 50 íbúar.
Nú hefur íbúaljöldi sveitarfélags verið lægri en 50 í þrjú ár
samfleytt og skal ráðuneytið þá eiga ffumkvæði að því að
sameina það nágrannasveitarfélagi. Einnig máþá skipta hinu
fámenna sveitarfélagi milli nágrannasveitarfélaga.
Undantekningu frá þessu ákvæði skal gera ef sérstakar
aðstæður hindra það að mati ráðuneytisins að íbúar hins
fámenna sveitarfélags geti myndað félagslega heild með
íbúum nágrannasveitarfélags.
3i Lögnr. 70/1970.
36 Heimild: Greinin Ibúatala sveitarfélaga á Islandi árið 1901 eftir Jón Olaf
ísberg í 60. tölublaði Fjármálatíðinda, rits Seðlabankans, sem kom út 1993.
106. gr.
Ráðuneytið skal vinna að stækkun sveitarfélaga með
samrana fámennra sveitarfélaga í stærri og öflugri heildir.
Skal ráðuneytið vinna að þessu í samráði við einstök
sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og landshluta-
samtök sveitarfélaga.
1., 2. og 6.-9. mgr. 107. gr.
Þegar skylt er að sameina sveitarfélag öðru sveitarfélagi,
sbr. 2. mgr. 5. gr., skal ráðuneytið skipa nefnd er í sitji tveir
menn samkvæmt tilnefningu sveitarstj ómar í því sveitarfélagi
sem um ræðir og tvo menn samkvæmt tilnefningu viðkomandi
héraðsnefndar. Þá skipar ráðuneytið formann nefndarinnar
án tilnefningar.
Nefndin skal gera tillögu um hverra kosta skuli leita
varðandi sameiningu sveitarfélagsins við annað eða önnur
sveitarfélög. ...
Nefhdin skal síðan geratillögu til viðkomandi sveitarstjóma
um það hvemig að sameiningu sveitarfélaganna skuli staðið.
Sé um fleiri en eina tillögu að ræða getur ráðuneytið
ákveðið að láta fara fram almenna atkvæðagreiðslu meðal
íbúa viðkomandi sveitarfélaga um tillögumar.
Ráðuneytið skal óska eftir umsögn viðkomandi sveitar-
stjóma um sameiningarmálið en síðan ákveður ráðuneytið
hvemig að sameiningu sveitarfélaganna skuli staðið.
Heimilt er ráðuneytinu að fresta sameiningu sveitarfélaga
þar sem svo stendur á sem segir í 2. mgr. 5. gr.
108. gr.
Þegar tvær eða fleiri sveitarstjómir hafa ákveðið að kanna
möguleika á sameiningu skulu þær kjósa samstarfsnefnd til
þess að annast athugun málsins. Skal hvor eða hver sveitar-
stjómkjósatvo fulltrúaeðafleiri f nefhdinaeftirsamkomulagi.
Nefndin kýs formann úr sínum hópi.
Samstarfsnefhd skal starfa í samráði við ráðuneytið og skal
það láta henni í té þá aðstoð er það telur nauðsynlega og
úrskurða um vafaatriði er upp kunna að koma.
Þegar samstarfsnefnd hefur skilað áliti sínu um sam-
eininguskuluviðkomandisveitarstjómirtakamáliðádagskrá.
Skal hafa tvær umræður um málið án atkvæðagreiðslu.
Að lokinni umræðu sveitarstjóma skal síðan fara fram
atkvæðagreiðsla innan sveitarfélaganna um sameininguna.
Viðkomandi sveitarstjómir ákveða sameiginlega hvenær
atkvæðagreiðsla fer fram og skal kosið sama dag í sveitar-
félögunum.
Sveitarstjóm lætur gera atkvæðaseðil til afnota við
atkvæðagreiðsluna í samráði við ráðuneytið. Um atkvæða-
greiðslur samkvæmt þessari málsgrein fer eftir ákvæðum III.
kafla laga þessara, eftir því sem við getur átt.37
109. gr.
[Sveitarfélag verður eigi sameinað öðmm sveitarfélögum
nema fleiri kjósendur í atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. séu
fýlgjandi sameiningu en andvígir.]38
37 III. kafli laganna Qallar um kosningu sveitarstjóma.
38 1. gr. laga nr. 20/1994. Upphaflega var 1. mgr. 109. gr. svohljóðandi: „Ef
meirihluti atkvæðisbærra íbúa sveitarfélags hefur synjað sameiningu við
atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. verður það sveitarfélag eigi sameinað öðmm
sveitarfélögum að svo stöddu.“ Samkvæmt þessu taldist sameining
Geithellnahrepps við Bemnes- og Búlandshreppa samþykkt 1992 þó að
fleiri greiddu atkvæði á móti henni en með. Atkvæði gegn sameiningu vom
51,6% gildra atkvæða en námu 32,0% aftölu atkvæðisbærra manna. Sjá V.
yfirlit.