Sveitarstjórnarkosningar - 01.04.1998, Síða 99

Sveitarstjórnarkosningar - 01.04.1998, Síða 99
Sameining sveitarfélaga 1993 og 1994 97 desember 1995. Sjá einnig auglýsingu nr. 112 13. febrúar 1996. í gildi 20. febrúar 1996. Strandasýsla 1886 Broddaneshreppi skipt í Fellshrepp og Óspaks- eyrarhrepp. Jarðirnar umhverfts Bitruljörð frá Þambárvöllum að Skriðnesenni að báðum jörðum meðtöldum verða í Óspakseyrarhreppi en jarðir umhverfis Kollaljörð ffá Broddadalsá að Hlíð að báðum meðtöldum verða í Fellshreppi. Lands- höfðingjabréf nr. 126 8. nóvember 1886. 1943 Hrófbergshreppi skipt og Hólmavíkurhreppur stofn- aður úr hluta hans. Hreppamörkin eru um Ósá og nær Hólmavíkurhreppur yfir kauptúnið Hólmavík ásamt jörðunum Kálfanesi, Skeljavík, Vatnshomi, Þiðriks- völlum, Víðidalsá og Hrófá. Stjómarráðsbréf nr. 70 19. mai 1943. 1987 Hrófbergshreppur lagður undir Hólmavíkurhrepp. Auglýsingnr.44024. október 1986. í gildi l.janúar 1987. 1992 Broddaneshreppur verður aftur til við sameiningu Fellshrepps og Óspakseyrarhrepps. Auglýsing nr. 526 1. nóvember 1991. í gildi 1. janúar 1992. 1994 Nauteyrarhreppur í Norður-ísaljarðarsýslu lagður undir Hólmavíkurhrepp. Auglýsing nr. 239 2. maí 1994. í gildi ll.júní 1994. Húnavatnssýslur 1876 Torfastaðahreppi skipt í Fremri- og Ytri-Torfastaða- hrepp. Landshöfðingjabréfnr. 61 26.maí 1876. Frá því um 1920 em notuð heitin Fremri- og Ytri- Torfústaðahreppar í hagskýrslum. 1914 Torfalækjarhreppi skipt og Blönduóshreppur stofnaður úr hluta hans. Stjómarráðsbréf nr. 59 27. maí 1914. 1936 Blönduóskauptún norðan Blöndu skilið frá Engi- hlíðarhreppi og sameinað Blönduóshreppi. Lög nr. 15 1. febrúar 1936 sem öðluðust þegar gildi. 1938 Kirkjuhvammshreppi skipt og Hvammstangahreppur stofhaður úr hluta hans. Stjómarráðsbréf nr. 12 22. júní 1938. í gildi l.júlí 1938. 1939 Vindhælishreppi skipt í þrennt og Höfðahreppur og Skagahreppurstofnaðirúrhlutahans.Stjómarráðsbréf nr. 87 22. nóvember 1938. í gildi 1. janúar 1939. 1988 Blönduós verður bær. Auglýsing nr. 303 22. júní 1988. í gildi 4. júlí 1988. Skagafj arðarsýsla 1897 Holtshreppi skipt og Haganeshreppur sto&aður úr hlutahans. Landshöfðingjabréfnr. 78 26. maí 1897. Holtssókn og Knappsstaðasókn verða Holtshreppur og Barðssókn verður Haganeshreppur. 1907 Sauðárhreppi skipt í Skarðshrepp og Sauðárkróks- hrepp. Stjómarráðsbréf nr. 39 19. apríl 1907. 1947 Sauðárkrókur fær kaupstaðarréttindi. Lög nr. 57 24. maí 1947 sem öðluðust þegar gildi. 1948 Hofshreppi skipt og Hofsóshreppur stofnaður úr hluta hans. Hreppamörk hinna nýju hreppa eru sem hér segir: Að vestan ræður sjórinn frá Grafarósi norður, þar til landamerki Þönglaskála og Bæjar koma í sj ó. Þaðan ráða að norðan landamerki Þöngla- skála og Bæjar. Að austan ráða landamerki Þöngla- skála, þartil komið er að landamerkjum Þönglaskála og Nausta. Þaðan ræður merkjum vesturjaðar Hofsós- skógar, suður aðþjóðveginum að Hofi (Unadalsvegi). Þaðan ræður hrein merkjalína frá áður nefndum þjóðvegi (vestanvert við mjólkurpall á Hofi) um 4. símastaur frá Hofi, talið frá landsímalínu, suður yfir Hofsá að hreppsveginum, á syðri gilbarmi Hofsár og fylgja merkin veginum austur að svonefndu Hofs- gerðissíki, sem rennur í Hofsá neðst á Hofseyrum og er jafnframt syðsti og elsti farvegur árinnar. Ræður þá Hofsgerðissíki austur á móts við landamerki Artúns og Nýlendis. Þaðan ræður bein lína suður flóann eftir landamerkjum Nýlendis og Ártúns að Grafará. Grafaráræðurmerkjum að sunnantil sjávar. Stjómar- ráðsbréfnr. 101 15. október 1948. í gildi l.janúar 1948. 1988 Fljótahreppur verður til við sameiningu Haganes- hreppsogHoltshrepps. Auglýsingnr. 12624.febrúar 1988. ígildi l.apríl 1988. 1990 Hofsóshreppur og Fellshreppur sameinaðir Hofs- hreppi. Auglýsingnr. 131 16. mars 1990. í gildi 10. júní 1990. Eyjafjarðarsýsla 1896 Jörðin Eyrarland með hjáleigunum Barði og Hamar- koti, að undanskildum Glerárdal, og jörðin Kotá, báðaríHrafnagilshreppi, lagðarundirAkureyri. Lög nr. 34 13. desember 1895. í gildi 14. maí 1896. 1909 Jörðin Naust í Hrafnagilshreppi lögð undir Akureyri. Lög nr. 28 9. júlí 1909. í gildi 6. júní 1909. 1910 Skriðuhreppi skipt og Öxnadalshreppur stofnaður úr hlutahans. Stjómarráðsbréf nr. 113 25. ágúst 1910. 1911 Amameshreppi skipt og Árskógshreppur stofnaður úrhlutahans. Stjómarráðsbréfnr. 78 24. maí 1911. 1916 Jörðin Dunhagakot í Skriðuhreppi lögð til Amames- hrepps. Stjómarráðsbréfnr. 11221.nóvember 1916. 1917 Heiti Þóroddsstaðahrepps breytt í Olafsfjarðar- hreppur. Stjómarráðsbréfnr. 103 26. október 1917 sem öðlaðist þegar gildi. 1919 Hvanneyrarhreppur fær kaupstaðarréttindi og nefnist Siglufjörður. Lögnr. 30 22. nóvember 1918. I gildi 20. maí 1919. 1920 J arðimar Kj ami og Hamrar í Hrafnagilshreppi lagðar undir Akureyri. Lögnr. 17 18. maí 1920. I gildi 6. júní 1920. 1930 Árskógshreppi skipt og Hríseyjarhreppur stofnaður úr hluta hans. Stjómarráðsbréf nr. 52 24. maí 1930. 1945 Ólafsfjörður fær kaupstaðarréttindi. Lög nr. 60 31. október 1944. í gildi 1. janúar 1945. 1946 Svarfaðardalshreppi skipt og Dalvíkurhreppur stofnaður úr hluta hans. Lög nr. 203 19. desember 1945. í gildi 1. janúar 1946. 1955 Glerárþorp í Glæsibæjarhreppi ásamt jörðunum Bandagerði, Rangárvöllum, Kollugerði, Hlíðarenda, Glerá, Lögmannshlíð, Hesjuvöllum, Kífsá, Hrapps- stöðum, Mýrarlóni, Grænhóli, Syðra-Krossanesi og Ytra-Krossanesi lagðarundir Akureyri. Lögnr. 107 18. desember 1954. í gildi 1. janúar 1955. 1974 Dalvík fær kaupstaðarréttindi. Lög nr. 20 10. apríl 1974 sem öðluðust þegar gildi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Sveitarstjórnarkosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarkosningar
https://timarit.is/publication/1386

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.