Fréttablaðið - 08.10.2019, Side 4
Við erum afar ósátt
við að sameining
verði þvinguð með þessum
hætti.
Árni Hjörleifsson,
oddviti Skorra
dalshrepps
Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jarngler.is
50% Afsláttur af
myndlistarvörum
Olíulitir, vatnslitir, akrýlitir,
penslar, spaðar, pappír
o.fl o.fl. o.fl.
ÚTSALA - ÚTSALA
Opið 8 - 16
LEIÐRÉTTING
Tekið skal fram, vegna greinar
á bls. 41 í helgarblaðinu, að Frú
Ragnheiður er verkefni rekið af
Rauða krossinum í Reykjavík,
bíll með því nafni ekur ekki
á laugardögum og að Marín
Þórsdóttir er forstöðumaður Rauða
krossins í Reykjavík.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
BYGGÐAMÁL Mikillar óánægju
gætir meðal lítilla sveitarfélaga á
landsbyggðinni með hugmyndir
sveitarstjórnarráðherra um lág-
marksstærð sveitarfélaga. Vilja
margir meina að lögþvingun sem
þessi geti ekki talist góð og að
frumkvæðið verði að koma frá
íbúunum sjálfum. Líklegt þykir
þó að málið nái fram að ganga á
þingi áður en þingið fer í sumarfrí
á næsta ári.
Þau sveitarfélög sem minnst eru
og fá því hlutfallslega mest fyrir að
sameinast öðrum sveitarfélögum
samk væmt tillög um Sig urðar
Inga, eru hvað mest á móti þessum
áformum. Telja mörg sveitarfélög
það óskynsamlegt að þvinga sam-
einingu í gegn með þessum hætti.
Benda mörg hver á að minni sveit-
arfélögin séu oftar en ekki betur
rekin en þau stærri.
Á r ni Hjörlei f s son, oddv it i
Skorradalshrepps, eins minnsta
sveitarfélags landsins, segir þetta
ótækt. Hann hefur einnig reynslu
af sveitarstjórnarstörfum í stærri
sveitarfélögum þar sem hann var
bæjarfulltrúi Alþýðuf lokksins í
Hafnarfirði á 10. áratug síðustu
aldar. „Við erum afar ósátt við
að sameining verði þvinguð með
þessum hætti. Það þarf að horfa á
þessa þætti betur en að miða við
einhverja íbúatölu því aðrir þættir
skipta meira máli en það,“ segir
Árni.
Svo virðist sem mikil andstaða
sé innan Eyjafjarðar sem og vítt og
breitt um Norðausturland. Þröstur
Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtu-
bakkahrepps, segir íbúatöluna
Mikil andstaða við þvinganir
Andstaða við sameiningaráform Sigurðar Inga Jóhannssonar er mikil innan lítilla sveitarfélaga á lands-
byggðinni. Oddviti Skorradalshrepps segir stóru sveitarfélögin alls ekki betur rekin en þau minni.
EFNAHAGSMÁL Jón Þór Ólafsson,
þingmaður Pírata, leggst gegn til-
vonandi frumvarpi um lækkun
erfðafjárskatts. Hann segir að fjár-
magns- og eignaskattar séu skatt-
heimtuform 21. aldarinnar því með
aukinni sjálfvirknivæðingu muni
ójöfnuður aukast.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra hyggst leggja fram frum-
varp um þrepaskiptingu og lækkun
erfðafjárskatts. Í dag er 10 prósent
skattur en í frumvarpinu er gert ráð
fyrir að hann taki árlegum breyt-
ingum. BSRB hefur sent inn umsögn
og varað við frumvarpinu, það veiki
skattstofn ríkisins um 2 milljarða.
Jón Þór telur að hækka eigi erfða-
fjárskattinn en vill ekki nefna neina
tölu í því samhengi. Í Bretlandi er
erfðafjárskatturinn 40 prósent og
í Danmörku er hann 15-36 prósent
en makar undanþegnir. Jón telur að
vegna sjálfvirknivæðingarinnar sé
Telur að hækka eigi erfðafjárskatt
Jón Þór segir eignaskatta framtíðar-
skattheimtuna. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
brýnt að stokka upp skattkerfið.
„Sjálfvirknivæðingin ýtir undir
misskiptingu því að skilvirkniaukn-
ingin skilar sér að mestu leyti til
fjármagnsins,“ segir hann og vísar í
greinar The Economist. „Þar segir að
öll lönd ættu að hækka eignarskatta
og erfðafjárskatta. Erfðafjárskattur
er skilvirkur skattur og vinnur gegn
því að ójöfnuður færist milli kyn-
slóða.“
Erfðaf járskattur hefur verið
umdeildur á undanförnum árum
og meðal annars kallaður „dauða-
skattur“ af íhaldsmönnum í Banda-
ríkjunum. Sagt er að þegar sé búið
að greiða skatta af eignunum. Jón
Þór telur að skattheimtan sé við-
kvæmari en ella vegna þess að and-
lát sé í spilinu.
„Þetta er ekkert öðruvísi en virð-
isaukaskattur. Annar einstaklingur
er að þéna peningana,“ segir Jón Þór
en telur réttlátt að persónuafsláttur
sé hafður á skattheimtunni. – khg
Erfðafjárskattur er
skilvirkur skattur
og vinnur gegn því að
ójöfnuður færist milli
kynslóða.
Sigurður Ingi Jóhannsson aflaði sér ekki vinsælda hjá smæstu sveitarfélögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1 Svía konungur svipti barna-börnin titlum sínum Fimm
af sjö barna börnum Svía konungs
munu héðan í frá ekki hljóta fram
færslu frá sænska ríkinu.
2 Fæðingar or lofs sjóður segir sama upp á teningnum fyrir
alla for eldra Leó Örn Þor leifs son
leið réttir mis skilning í um ræðu
um út hlutun.
3 Viður kennir að hafa eitrað fyrir sex fjöl skyldu með limum
Morðin áttu sér stað á fjór tán ára
tíma bili á Indlandi.
STJÓRNMÁL Forsætisráðherra mælir
í dag fyrir frumvarpi um bætur til
sýknaðra í Guðmundar- og Geir-
finnsmálum. 1. umræða um málið
fer fram klukkan 15.45 að loknum
umræðum um velsældarhagkerfið
og jarðamál og eignarhald þeirra.
Frumvarpið mælir fyrir um
heimild til sanngirnisbóta til þeirra
fimm sýknuðu og eftir atvikum fjöl-
skyldna þeirra. Einnig að samhliða
meðferð á Alþingi haldi samninga-
viðræður um bætur áfram undir
handleiðslu forsætisráðherra. – aá
Bótamáli rætt á
Alþingi í dag
STJÓRNMÁL Útflutningur á óunnum
fiski í gámum og staða innlendrar
fiskvinnslu verður rædd á fundi
atvinnuveganefndar í dag. Sam-
kvæmt tilkynningu á vef Alþingis
er efni fundarins samkeppnisstaða
innlendrar fiskvinnslu gagnvart
ríkisstyrktri fiskvinnslu innan ESB.
Nefndin fær til sín gesti frá Sam-
tökum sjávarútvegssveitarfélaga,
Samtökum fyrirtækja í sjávar-
útvegi, Sjómannasambandinu og
fleiri samtökum.
Á sjötta tug starfsmanna Ísfisks
á Akranesi var sagt upp störfum í
síðustu viku og í kjölfarið fordæmdi
formaður Stéttarfélags Akraness
að heimilt væri að f lytja út mikið
magn af óunnum fiski. Störfum í
Atvinnuveganefnd ræðir stöðu fiskvinnslunnar
Fundur atvinnuveganefndar verður opinn fjölmiðlum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
fiskvinnslu hefði fækkað úr 9.600 í
2.900 á 25 árum.
Sjávarútvegsráðherra taldi við-
fangsefnið ekki það stórt að það
kallaði á sérstaka greiningu í svari
við fyrirspurn Oddnýjar Harðar-
dóttur, þingmanns Samfylkingar-
innar, síðastliðinn vetur. Í fyrir-
spurn sinni lýsti Oddný áhyggjum af
vaxandi útflutningi á óunnum fiski
og yfirboðum stærri útgerða á fiski
sem þær flyttu svo óunninn úr landi.
Afleiðingin væri erfiður rekstur og
hráefnisskortur hjá fiskvinnslum
um allt land með tilheyrandi upp-
sögnum og rekstrar stöðvunum.
Fundur atvinnuveganefndar
hefst klukkan níu og verður opinn
fjölmiðlum. – aá
einnig ekki rétt viðmið. „Við fram-
tíðarskipulag sveitarfélaga verður
að horfa til margra þátta og frá-
leitt að íbúatala ráði ein alfarið
um þróun þeirra. Horfa ber til
landfræðilegra þátta, sem og fjár-
hagslegrar getu til að veita íbúum
þjónustu.“
Innan Alþingis er hins vegar
líklegt að frumvarpið nái fram að
ganga með nægum meirihluta.
Miðf lokkurinn mun vera á móti
málinu. Þingmaðurinn Karl Gauti
Hjaltason sagði í vor að virða ætti
sjá l fsá k vörðu na r rét t sveit a r-
félaganna. Vilji þyrfti að vera fyrir
hendi. Innan VG og Sjálfstæðis-
f lokksins verða einhverjir mót-
fallnir frumvarpinu án þess þó
að það hafi áhrif á framgang þess.
Atkvæði Viðreisnar og Samfylk-
ingar munu því að öllum líkindum
koma frumvarpinu í gegn.
sveinn@frettabladid.is
Katrín mun mæla fyrir frumvarpi
um bætur í Geirfinnsmálinu.
8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
6
-4
A
B
4
2
3
F
6
-4
9
7
8
2
3
F
6
-4
8
3
C
2
3
F
6
-4
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
3
2
s
_
7
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K