Fréttablaðið - 08.10.2019, Side 6
BRASILÍA Stefna Jair Bolsonaro,
forseta Brasilíu, í málefnum frum
byggja er talin geta leitt til „þjóðar
morðs“ síðustu óþekktu ættbálk
anna. Nýlega var Bruno Pereira,
sérfræðingi í samskiptum við frum
byggja, sagt upp fyrirvaralaust.
„Það er eins og ríkisstjórnin
sé með þá stefnu að fjarlægja allt
hæft fólk og koma óhæfu fólki að
í staðinn,“ sagði José Carlos Meir
elles, fyrrverandi starfsmaður hjá
FUNAI, stofnuninni sem sér um
málefni frumbyggja. Hann er einn
af þeim sem skrifuðu undir bréf sem
sent var ríkisstjórninni, þar sem
alvara málsins var kynnt.
Frumbyggjum, sem hafa haft lítil
eða engin samskipti við umheim
inn, stafar mikil ógn af skógarhöggi,
námagreftri og annarri starfsemi
sem raskar heimkynnum þeirra.
Margir sem starfa í þessum geirum
gera það ólöglega. Á þessu ári hefur
verið farið inn á 153 ættbálkasvæði,
samanborið við 76 í fyrra. Bolson
aro hefur beitt sér fyrir stóraukinni
nýtingu á öllu Amasonsvæðinu.
Pereira hefur verið ötull baráttu
maður fyrir frumbyggja og meðal
annars aðstoðað þá við deilur sín
á milli. Hann vildi lítið tjá sig um
uppsögnina, hún væri á ábyrgð
FUNAI. „Einangraðir frumbyggjar
eru mjög varnarlaus hópur,“ sagði
hann. „Þeir hafa ekkert pólitískt
bakland og tala hvorki við blaða
menn né aðra frumbyggja.“ – khg
Þjóðarmorð á
frumbyggjum
Amasonskógar
Frumbyggjum Amazon stendur ógn
af iðnvæðingu.. NORDICPHOTOS/GETTY
PORTÚGAL Sósíalistar unnu sigur í
portúgölsku kosningunum á sunnu
dag en fengu ekki hreinan meiri
hluta þingmanna. Antonio Costa
forsætisráðherra mun því þurfa
að reiða sig aftur á róttæka vinstri
flokka til þess að mynda ríkisstjórn
eða minnihlutastjórn eins og hefur
setið frá 2015.
Sósíalistar fengu 106 af 230 þing
sætum, sem var fjölgun um 20 sæti
frá kosningunum 2015 þegar Costa
komst til valda. Hægriflokkur Rui
Rio tapaði hins vegar 12 sætum
og fékk 77 og hinn hægrisinnaði
Flokkur fólksins tapaði 13 af 18
sætum sínum.
Talið er að stjórnarmyndunin
gæti reynst f lóknari í ár en árið
2015, þegar takmark allra vinstri
flokkanna var að koma hægristjórn
Passos Coelho frá. Í ljósi yfirburða
stöðu Sósíalista gæti Costa falast
eftir því að sitja áfram í minnihluta
stjórn. Óvíst er hvort Kommún
istaflokkurinn, sem studdi minni
hlutastjórnina, samþykki það en
f lokkurinn fór illa út úr kosning
unum og tapaði 5 af 17 sætum.
Niðurstaða kosninganna rímar
vel við þann aukna stuðning sem
sósíaldemókratar í Evrópu hafa
fengið á undanförnu ári. Meðal
annars í kosningum í Svíþjóð, Dan
mörku, Finnlandi og á Ítalíu. – khg
Sósíalistar unnu
kosningasigur
Antonio
Costa, forsætis-
ráðherra.
T YRKLAND Ákvörðun Donalds
Trump Bandaríkjaforseta um að
draga um þúsund hermenn Banda
ríkjanna út úr Sýrlandi var harðlega
gagnrýnd í gær bæði af pólitískum
andstæðingum sem og samherjum
forsetans. Ákvörðunin gerir Tyrkj
um kleift að herja á sýrlenska Kúrda.
Miklar líkur eru því á að Tyrkir
ráðist inn í Sýrland norðanvert
innan skamms. Hvíta húsið sagði
þetta í tilkynningu eftir símtal á
milli Trumps og Receps Tayyip
Erdogan, forseta Tyrklands. Jafn
framt var greint frá því að Banda
ríkin muni hvorki taka þátt í innrás
Tyrkja né styðja hana, en heldur
ekki setja sig upp á móti slíkum
aðgerðum. Bandarískar hersveitir
í norðanverðu Sýrlandi muni á
næstunni halda sig fjarri tyrknesku
landamærunum.
Þetta er grundvallarbreyting á
afstöðu Bandaríkjastjórnar. Hug
myndir Tyrkja um innrás í Norður
Sýrland hafa lengi verið bitbein
þessara bandalagsþjóða og Banda
ríkjastjórn lagst alfarið gegn henni.
Þangað til nú.
Kúrdar í Sýrlandi og bandamenn
þeirra í Sýrlenska lýðræðishernum
(SDF) gegndu lykilhlutverki í bar
áttu Bandaríkjamanna og annarra
ríkja gegn hryðjuverkasamtökunum
Íslamska ríkinu. Eftir að Íslamska
ríkið virðist hafa verið yfirbugað
hafa Tyrkir í auknum mæli talað um
að ráðast gegn sveitum Kúrda sem
þeir segja hryðjuverkasamtök.
Á undanförnum árum hafa Tyrkir
tvisvar farið með her inn í Sýrland
og meðal annars lögðu þeir undir
sig Afrin, svæði Kúrda í norðvestur
hluta landsins.
Fyrir lá samkomulag milli Banda
ríkjanna og Tyrkja um hlutlaust
svæði í norðurhluta Sýrlands en
deilur hafa verið um stærð svæðisins
eða hversu lengi það verði hlutlaust.
Sýrlensk stjórnvöld hafa hins vegar
hafnað öllum slíkum áformum því
að þau gangi gegn fullveldi landsins.
Sú ákvörðun Trumps að f lytja
bandaríska herliðið frá norðaustur
hluta landsins og verja ekki lengur
dygga bandamenn hefur mætt mjög
harðri andstöðu. Þar á meðal hafa
ýmsir helstu bandamenn forsetans
á þingi fordæmt ákvörðunina.
Tryggja verði velferð kúrdískra her
sveita og halda Tyrkjum í skefjum.
Lyndsey Graham, formaður
dómsmálanefndar öldungadeildar
Bandaríkjaþings, dyggur banda
maður Trumps, segir ákvörðun
forsetans bera vott um skammsýni
og ábyrgðarleysi og sverta heiður
Bandaríkjanna. Hún verði vatn
á myllu öfgasinnaðra íslamista í
Sýrlandi. Enn eigi eftir að ganga
milli bols og höfuðs á vígasveitum
Íslamska ríkisins. Graham ætlar að
beita sér fyrir því á þingi að ákvörð
un forsetans verði afturkölluð.
david@frettabladid.is
Tyrkir ætla að ráðast gegn
sveitum Kúrda í Sýrlandi
Tyrkir hyggjast ráðast inn í Sýrland norðanvert gegn hersveitum Kúrda sem börðust með Bandaríkja-
her gegn Íslamska ríkinu í Sýrlandi. Trump Bandaríkjaforseti hyggst láta af stuðningi við Kúrda og
flytja bandaríska herliðið frá norðausturhluta landsins. Samherjar Trumps gagnrýna ákvörðun hans.
Bandarískur hermaður í brynvörðum vagni í sýrlenska bænum Ras al-Ain sem liggur við tyrknesku landamærin. Ákvörðun Donalds Trump
Bandaríkjaforseta um að verja ekki lengur dygga bandamenn hefur mætt mjög harðri andstöðu meðal annars dyggra flokksmanna hans.
Kúrdar í Sýrlandi og
bandamenn þeirra í Sýr-
lenska lýðræðishernum
gegndu lykilhlutverki í
baráttunni gegn hryðju-
verkasamtökunum Íslamska
ríkinu.
VÍSINDI Þrír vísindamenn fá Nób
elsverðlaunin í læknisfræði í ár fyrir
uppgötvun á því hvernig frumur
nema og laga sig að súrefnismagni.
Nóbelsnefndin tilkynnti þetta í
Stokkhólmi í gær.
Þremenningarnir eru Banda
ríkjamennirnir William G. Kaelin
vísindamaður við Harvardháskóla,
Gregg L. Semenza frá Johns Hopk
insháskóla, og Bretinn Peter J. Rat
cliffe frá Francis Crickstofnuninni
í London.
Dómnefndin segir að vísinda
mennirnir þrír hafi lagt grunn
að auknum skilningi manna á
því hvernig súrefnismagn hefur
áhrif á efnaskipti og lífeðlisfræði
lega starfsemi. Þetta muni leiða til
nýrra aðferða í baráttunni gegn
sjúkdómum á borð við krabba
mein og háfjallaveiki, segir í frétt
AP. Annað dæmi væri lyfjafram
leiðsla til að koma í veg fyrir blóð
skort sem kemur fram hjá fólki með
þráláta nýrnaveiki.
Verðlaunahafarnir haf i sýnt
hvernig virkni gena breytist eftir
breytingum á súrefnisstyrk í
umhverfi. Hæfileiki frumna til að
aðlagast súrefnisstyrk er talinn
lykillinn að því að dýrategundir
hafi numið land á svo ólíkum
búsvæðum.
Vísindamennirnir þrír, sem vinna
að mestu hver í sínu lagi, munu
deila á milli sín verðlaunafénu sem
nemur níu milljónum sænskra
króna, eða um 113 milljónum
íslenskra króna. – ds
Þrír deila Nóbelsverðlaunum í læknisfræði
Nóbelsnefndin tilkynnir verðlaunahafana þrjá í Stokkhólmi í gær. Þeir hafa
hver í sínu lagi unnið að rannsóknum í læknisfræði. NORDICPHOTOS/AFP
+PLÚS
8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
6
-4
5
C
4
2
3
F
6
-4
4
8
8
2
3
F
6
-4
3
4
C
2
3
F
6
-4
2
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
7
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K