Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.10.2019, Side 2

Víkurfréttir - 03.10.2019, Side 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Marta Eiríksdóttir, sími 857 8445, marta@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, vf@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@ vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Hvernig finnst þér samein- ing Garðs og Sandgerðis hafa heppnast? Inga Jóna Valgarðsdóttir: „Svona allt í lagi en ég kaus á móti samein­ ingu en er samt sátt í dag.“ Jónas Jónsson: „Ég veit bara að allar þessar sameiningar hafa verið til bölvunar þegar fer að líða á.“ Kristján Nielsen: „Ég er hlut­ laus, hef varla tekið eftir því að búið sé að sameina. Er það ekki ágætt?“ Margrét Edda Arnardóttir: „Mér finnst það bara jákvætt. Þetta sameinar sveitarfélögin á jákvæðan hátt og eflir vinskap á milli Garðbúa og Sandgerðinga.“ SPURNING VIKUNNAR Hálfrar aldar afmæliskaffi hjá SI raflögnum SI raflagnir fagnar hálfrar aldar af- mæli á þessu ári og bjóða eigendur af því tilefni upp á kaffi og kökur í hús- næði fyrirtækisins að Iðngörðum 21 í Garði föstudaginn 4. október kl. 13 til 15. Allir eru velkomnir. Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2019 var neikvæð um 942 milljónir króna samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 2.186 milljónir árið á undan. Stærsta hlutann af þessum viðsnúningi má rekja til niðurfærslu á kröfu vegna WOW air sem nam 2.081 milljón króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. Rekstrartekjur námu 18.162 milljónum króna sem er um 854 milljóna króna samdráttur samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Rekstrarkostnaður stóð í stað milli tímabila. Heildarafkoma tímabilsins var neikvæð um 2.524 milljón króna samanborið við 1.571 milljón króna jákvæða heildarafkomu á sama tímabili á síðasta ári. Þessa breytingu milli ára má einkum rekja til auk­ innar niðurfærslu viðskiptakrafna upp á 2.054 millj­ ónir króna, neikvæðra gengisáhrifa vegna erlendra lána upp á 1.989 milljónir króna og minnkandi tekna upp á 854 milljónir króna. Þrátt fyrir fækkun ferðamanna, einkum skiptifar­ þega, varð ekki breyting á mestu álagstímunum á Keflavíkurflugvelli. Þetta setti félaginu þröngar skorður varðandi niðurskurð. Þá þótti félaginu ekki fært annað en að framkvæma reikningshalds­ lega niðurfærslu á ríflega tveggja milljarða kröfu vegna WOW air. „Afkoma Isavia ber þess merki að WOW air varð gjaldþrota í lok mars síðastliðnum,“ segir Svein­ björn Indriðason, forstjóri Isavia. „Ferðamönnum sem fóru um Keflavíkurflugvöll fyrstu sex mánuði þessa árs fækkaði um hátt í 900 þúsund, eða 20,3%, samanborið við sama tímabil í fyrra.“ Við þetta bætast síðan deilur vegna kyrrsetningar á þotu sem WOW air hafði verið með í rekstri. „Ákvörðun Héraðsdóms Reykjaness um að fresta ekki réttaráhrifum úrskurðar um afhendingu þotunnar kom í veg fyrir að kyrrsetningarmálið færi eðlilega leið í dómskerfinu og gerði það að verkum að vélinni umræddu hefur nú verið flogið af landi brott. Við teljum þá ákvörðun héraðsdómara ámælisverða en erum að leita leiða til að koma málinu á ný á æðra dómstig,“ segir Sveinbjörn. Áður hafði Landsréttur úrskurðað félaginu í vil en sá úrskurður var ómerktur af lagatæknilegum ástæðum. „Þó svo að úrskurður Landsréttar hafi verið tæknilega ómerktur þá stendur eftir skoðun dómstólsins,“ segir Sveinbjörn. Rekstrarspá félagsins gerir ráð fyrir að heildar­ afkoma félagsins fyrir árið í heild verði í járnum. Lykiltölur úr hálfsársuppgjöri 2019 Tekjur: 18.162 milljónir króna Rekstrartap: ­942 milljónir króna Heildarafkoma eftir skatta: ­2.524 milljón króna Handbært fé: 4.579 milljónir króna Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum: 1.874 milljónir króna Eigið fé í lok tímabils: 32.744 milljónir króna Eiginfjárhlutfall: 41,6% Á vef Isavia má nálgast uppgjörið í heild sinni. Isavia tapaði 2,1 milljarði króna vegna WOW air Erindi frá Skólum ehf. varðandi stækkun heilsuleikskólans Skógaráss á Ásbrú var tekið fyrir á fundi fræðsluráðs Reykjanesbæjar í síðustu viku. Óskað var eftir viðræðum og samstarfi við Reykjanesbæ um að stækka heilsuleikskólann Skógarás, þar sem mögulega væri hægt að taka inn yngri börn en nú er gert. Í fundargerð fræðsluráðs segir að stefna Reykjanesbæjar er að innan þriggja ára verði hægt að bjóða að lág­ marki öllum átján mánaða börnum og eldri upp á leikskólavist í leikskólum bæjarins. Reykjanesbær stefnir á stækkun leikskóla í bæjarfélaginu í þeim hverfum þar sem öll leikskóla­ pláss eru nýtt, til þess að geta boðið átján mánaða börnum pláss. Fræðsluráð felur fræðslusviði að eiga í viðræðum við Skóla ehf., rekstraraðila leikskólans Skógaráss, um mögulegar leiðir til þess að bjóða átján mánaða börnum leikskólavist. Stækkun heilsuleikskólans Skógaráss til skoðunar Fasteignagjöld lægst í Grindavík en hæst í Keflavík Fasteignagjöld eru lægst í Grinda- vík samkvæmt nýrri úttekt Byggða- stofnunar. Gjöldin eru 259 þúsund krónur en næstlægst, á eftir Grinda- vík, er Bolungarvík með 260 þúsund krónur. Gjöldin eru hins vegar hæst í Keflavík (matið er unnið úr frá byggðakjörnum og er því hér talað um Keflavík en ekki Reykjanesbæ) en þar eru þau 453 þúsund krónur. Gjöldin í Grindavík eru því 57% af gjöldum í Keflavík. Þegar fasteignagjöld eru borin saman milli sveitafélaga er viðmiðunareignin einbýlishús sem er 161,1 m² að grunn­ fleti. Stærð lóðar er 808 m². Fasteignagjöldin eru reiknuð út sam­ kvæmt núgildandi fasteignamati sem gildir frá 31. desember 2018 og sam­ kvæmt álagningarreglum ársins 2019 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi. Án ökuréttinda með vopn og fíkniefni Ökumaður sem ók sviptur ökurétt­ indum í umdæmi lögreglunnar á Suður­ nesjum í vikunni sem leið reyndist hafa fleira óhreint í pokahorninu. Í bifreið sinni var hann með hafnarboltakylfu, piparúða og fjaðurhníf. Maðurinn heimilaði leit á heimili sínu og þar fundust fíkniefni í ísskáp og frysti. Lögregla haldlagði vopnin og efnin auk nær hundrað þúsunda króna, sem voru í vörslu mannsins, vegna gruns um að um ágóða af fíkniefnasölu væri að ræða. Eignaspjöll í Háaleitisskóla Lögreglu barst tilkynning um eigna­ spjöll í Háaleitisskóla í síðustu viku. Í ljós kom að búið var að brjóta tvær rúður, aðra með tvöföldu öryggisgleri, og fjögur útiljós í byggingunni. Stór steinn fannst innandyra framan við eina rúðuna. Drengur á hlaupahjóli í umferðarslysi Ungur drengur varð fyrir bifreið í Sand­ gerði um síðustu helgi. Drengurinn var á hlaupahjóli og mætti bifreið. Hann náði ekki að stöðva hjólið í tæka tíð og hafnaði framan á bifreiðinni, sem ökumaður náði heldur ekki að stöðva. Drengurinn hlaut skrámur og kenndi eymsla. Hann var fluttur á Heilbrigðis­ stofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Ungar í lögreglufylgd á Reykjanesbraut Þau geta verið margvísleg málin sem rekur á fjörur lögreglu eins og eftir­ farandi ber með sér. Vegfarandi tilkynnti lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni sem leið að álft með þrjá unga væri að spássera á Reykjanesbraut og stefndi til sjávar. Var þetta talið geta valdið slysi bæði á mannverum og dýrum. Lögregla stöðvaði því umferð á meðan fuglarnir trítluðu yfir brautina og gekk það allt að óskum. Þá var tilkynnt um tvær landnáms­ hænur sem ekki hefðu skilað sér heim á tilsettum tíma. Þar sem engin tilkynning hafði borist til lögreglu um hænur í óskilum var lítið hægt að aðhafast í málinu annað en að sjá hvort flökku­ fuglarnir skiluðu sér heim sem þeir hafa vonandi gert. Fatnaði stolið úr tösku ferðamanns Flugfarþegi sem var að koma frá New­ ark í vikunni sem leið tilkynnti lög­ reglu í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum um að stolið hefði verið úr ferðatösku sinni. Taskan hafði verið innrituð á Newarkflugvelli en þegar eigandinn sótti hana á færibandið á Keflavíkurflugvelli reyndist hún vera umtalsvert léttari en við innritun ytra. Í ljós kom að búið var að fjarlægja mikið af fatnaði úr henni. Fingralangir myndavélaþjófar Lögreglu barst á dögunum tilkynning um að myndavél hefði verið stolið frá farþega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í myndavélakerfi sást að konan hafði misst litla tösku með myndavélinni án þess að taka eftir því. Skömmu síðar bar að tvo menn sem sáu töskuna, skoðuðu það sem í henni var og hirtu mynda­ vélina. Lögregla hafði upp á hinum fingralöngu sem skömmuðust sín og skiluðu vélinni. Konan brást glöð við þegar hún fékk eign sína aftur í hendur. DAGBÓK LÖGREGLUNNAR 2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. október 2019 // 37. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.