Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.10.2019, Page 10

Víkurfréttir - 03.10.2019, Page 10
Sjálfstraust og gott tengslanet skapa störf framtíðar Heimurinn er að breytast og það hratt. Það er eins gott að vera opinn og sveigjanlegur því gera má ráð fyrir því að sífellt fleiri verði að byggja upp eigin atvinnutækifæri í fram- tíðinni. Forsenda þess er fyrst og fremst gott sjálfstraust og öflugt tengslanet. Hansína B. Einarsdóttir er með putt- ana á púlsinum hvað þetta varðar og rekur ásamt eiginmanni, Jóni Rafni Högnasyni, fyrirtækið Skref fyrir skref á Suðurnesjum en meginverk- efni þess er að sinna ýmsu námskeiða- haldi, fullorðinsfræðslu, rannsóknum og nýsköpunarverkefnum, bæði hér- lendis og erlendis. Þetta er ekki það eina sem þau hjónin hafa fengist við og muna sjálfsagt margir eftir Hansínu og Jóni Rafni frá þeirri tíð þegar þau byggðu upp og ráku Hótel Glym í Hvalfirði sem þau gerðu með stæl, svo eftir var tekið. Við fengum að fylgjast með Hansínu að störfum einn dag en þá stóð hún fyrir alþjóðlegri ráðstefnu á Light- house Inn í Garðinum sem teygði anga sína alla leið til Bessastaða þar sem forsetafrúin tók á móti hópnum. En afhverju að flytja til Suðurnesja? „Ég er reyndar ættuð héðan af Suður- nesjum, amma Hansína Einarsdóttir og afi Guðmundur Jóhannesson, bjuggu í Flekkuvík á Vatnsleysuströnd en þau hættu búskap upp úr 1960 og talsvert af fólki mínu er búsett hér á þessu svæði. Mér er afar minnis- stætt að alla bernsku okkar var farið í Flekkuvík á vorin og þá var alltaf jafn spennandi að vita hversu langt við kæmust á bílnum, hversu langt var fært á bíl en annars var gengið restina. Á leiðinni niður eftir var farið í kríueggjaleit og svo var haldið beina leið í fjöruna þar sem mikilvægt var að skoða rekaviðinn sem við nýttum til leikja. Við systkinin, tíu talsins, erum alin upp í Kópavogi og var alltaf talað um að fara suður eftir en við ólumst upp við hugtakið Suðurnesjamenn. Mér þykir því afar ánægjulegt að eiga svo heima hér á Suðurnesjum í dag, ég átti reyndar í nokkru basli með að telja eiginmanninum trú um að hér gæti verið gott að eiga heima en hann er frá Norðfirði. Það tókst loks og við fluttum í Sandgerði fyrir sjö árum og líkar mjög vel hérna. Við kunnum vel að meta kyrrðina, sjóinn og hina mögnuðu náttúru sem um- lykur okkur hér á Suðurnesjum. Alltaf þegar við getum þá ökum við djúpu leiðina heim, Ósabotnaleiðina, sem er dásamlega kyrrlát, ósnortin og falleg leið, eins og að aka í gegnum 50 ára tímabil þar sem lítið hefur breyst. Þetta er partur af lífsgæð- unum sem fylgir því að vera búsett hér. Við erum örstutt frá höfuðborgar- svæðinu, ekkert mál að koma með eða að sækja barnabörnin. Hér er al- þjóðaflugvöllurinn en verkefni okkar tengjast því meðal annars að taka á móti erlendum gestum og síðan þurfum við sjálf að sinna verkefnum okkar erlendis,“ segir Hansína glöð í bragði. Alþjóðlegt fyrirtæki Hansína B. Einarsdóttir stundaði m.a. nám í Noregi, Þýskalandi og Svíþjóð á níunda áratugnum, hún er menntuð sem afbrotafræðingur, mannauð- stjórnandi og með leiðtogaþjálfun frá Konstembaum Institude USA. Hún hefur umtalsverða reynslu af stjórnun, hönnun og framkvæmd fjölda stórra rannsóknar- og kennslu- verkefna hérlendis og á vegum ESB. „Fyrirtækið Skref fyrir skref ráð- gjöf var stofnað fyrir þrjátíu árum og hefur staðið fyrir allmörgum námskeiðum og ráðstefnum hér á svæðinu síðan við hjónin fluttum hingað fyrir sjö árum. Enable ráð- stefnan sem var haldin hér dagana 4. til 7. september síðastliðinn hafði það að markmiði að fjalla um kon- ur í atvinnurekstri. Þátttakendur í verkefninu voru frá Íslandi, Eistlandi, Litháen, Danmörku og Finnlandi en allt eru þetta starfsþróunarfyrirtæki. Öll eiga þau það sameiginlegt að þróa kennsluefni, halda námskeið og fyrir- lestra í eigin heimalandi sem og á alþjóðavettvangi. Fyrirtækin eru mis- stór, sum eru einkafyrirtæki en önnur eru opinber eins og háskólar eða sérgreinaskólar. Fyrirtæki okkar og einnig hin fyrirtækin hafa öll reynslu af alþjóðaverkefnavinnu og þekkja vel til nýsköpunar, fræðslumála og námskeiðahalds. Verkefnið er styrkt 80% af NordPlus en þátttökufyrir- tækin í hverju landi greiða um 20% af kostnaði. Starfsþróunarfyrirtæki okkar hjóna, Skref fyrir skref ráðgjöf, sér um íslenska hluta verkefnisins. Við höfum þrjátíu ára reynslu á sviði starfsþróunarverkefna hérlendis sem og erlendis og höfum stýrt stórum verkefnum fyrir NordPlus og Erasmus undanfarin ár,“ segir Hansína. Löng skólaganga ekki lengur ávísun á atvinnu Þegar blaðamaður Víkurfrétta sat ráðstefnuna í Garðinum, þá snérist umfjöllunin um það hvernig hægt væri að finna leiðir til að tengjast fleiri frumkvöðlum og hjálpa þeim að verða sýnilegri. Markhópurinn sem fjallað er um í verkefninu ENABLE eru konur, eldri borgarar, fatlaðir, innflytjendur og ungt fólk. „ENABLE-verkefnið snýst um að hvetja fólk til nýsköpunar. Í vest- rænum samfélögum framtíðar má gera ráð fyrir að sífellt fleiri verði að byggja upp eigin atvinnutækifæri og forsenda þess er fyrst og fremst gott sjálfstraust og öflugt tengslanet. Það er vaxandi samkeppni um hvert starf sem nú þegar er til, fjölmörg störf eru að hverfa og ný að verða til vegna tækni-, lífstíls- og neyslu- breytinga. Þessi framtíðarsýn þýðir breytingar og krefst annarra eigin- leika og annars undirbúnings. Löng skólaganga og formleg próf eru alls ekki lengur örugg forsenda atvinnu. Í framtíð þarf sveigjanleika, aðferða- fræðilega kunnáttu, tækniþekkingu, frumkvæði, gott tengslanet og sjálfs- traust til að komast af,“ segir Hansína með áherslu og nefnir í þessu tilliti nýlegar OECD-skýrslur. Stuðningur við frumkvöðla „Síðastliðin ár hafa OECD-skýrslur fjallað talsvert um þessar breytingar sem við stöndum frammi fyrir og hvað þurfi að gera til þess að takast á við þær. Samkvæmt niðurstöðum þeirra þarf að leggja sérstaka áherslu á frumkvæði og getu til þess að stofna og reka eigin fyrirtæki, hrinda hug- myndum sínum í framkvæmd. Í þessu samhengi er sérstaklega bent á erfiða samkeppnisstöðu hinna ýmsu minni- hlutahópa til þess að geta bjargað sér sjálfir í eigin rekstri. OECD tilgreinir sérstaklega ungt fólk vegna skorts á reynslu, eldri borgara 55 plús sem er afar stór hópur sem er að detta út af vinnumarkaði og virðist hafa litla trú á því að geta stofnað eigið fyrirtæki. Þeir benda einnig á fatlaða sem oft, vegna ímyndar í samfélagi, hafa lélegt sjálfstraust og lítið tengslanet. Inn- flytjendur eru einnig í þessum minni- hlutahópi vegna lélegs tengslanets og lítillar tungumálaþekkingar sem leiðir oft til skorts á skilningi á innra skipulagi samfélagsins sem þau búa í. Konur eru einnig taldar upp en aðeins rétt 30% kvenna stofna og reka eigið fyrirtæki.“ Konur sem frumkvöðlar Á fundinum hér á Íslandi var áherslan lögð á konur sem frumkvöðla en Han- sína var með erindi á ráðstefnunni um þennan málaflokk. Hansína hefur talsverða þekkingu á þessu sviði en auk þess að hafa ávallt rekið eigin fyrirtæki, stofnaði hún ásamt öðrum konum FKA, Félag kvenna í atvinnu- rekstri, árið 1999 og sat í fyrstu stjórn þess. Farið var í heimsókn á ýmsa staði með ráðstefnuhópinn þar sem íslenskar konur voru kynntar sem hafa haslað sér völl sem frumkvöðlar. „Ég kynnti fyrir ráðstefnugestum Höllu sem rekur hjá Höllu í Grinda- vík, Bergrúnu Írisi barnabókahöfund og Dagný Magnúsdóttur sem rekur einstakan veitingastað í Þorlákshöfn. Markmið mitt er einnig að kynna Mar ta Eiríksdóttir marta@vf.is VIÐTAL Mér þykir því afar ánægju- legt að eiga svo heima hér á Suðurnesjum í dag, ég átti reyndar í nokkru basli með að telja eiginmann- inum trú um að hér gæti verið gott að eiga heima ... ER BÍLLINN BEYGLAÐUR? Hann verður eins og nýr hjá okkur Við vinnum fyrir öll tryggingafélög! Smiðjuvöllum 6 - Reykjanesbæ Sími 421-3500 – retting@simnet.is Hansína B. Einarsdóttir. Ráðstefnugestir fóru m.a. í heimsókn á Bessastaði. 10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.