Víkurfréttir - 03.10.2019, Side 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Við erum sultuslök
hér suður með sjó,
er það ekki?
RÁÐGJAFI
á sviði starfsendurhæfingar
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður í samvinnu við Verkalýðsfélag
Grindavíkur leitar að ráðgjafa í 100% starf með starfsstöð í Grindavík.
Um er að ræða mjög krefjandi og fjölbreytt starf og einstakt tækifæri til
þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði.
Helstu verkefni
• Ráðgjöf, stuðningur og hvatning við einstaklinga með skerta starfsgetu
• Upplýsingaöflun, skráning og mat samkvæmt gildandi verkferlum
• Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar
eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK
• Vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, fagaðila í
starfsendurhæfingu og vinnustaði
• Samskipti við stéttarfélög og atvinnurekendur
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda, s.s. á sviði
félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar
• Víðtæk reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða
starfsendurhæfingar
• Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
• Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfni og kostnaðarvitund
• Góð þekking á vinnumarkaði
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
• Kostur að vera pólskumælandi
Ráðgjafar VIRK starfa hjá stéttarfélögum samkvæmt samningi við VIRK.
Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekanda á vinnu-
markaði. Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veik-
inda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu.
VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélags-
legum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er
leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar.
Nánari upplýsingar um VLFGRV er að finna á vlfgrv.is og um VIRK á virk.is.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störf.
Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2019.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda ítarlega
ferliskrá á netfangið audur@virk.is
Nánari upplýsingar veita Auður Þórhallsdóttir hjá VIRK og
Hörður Guðbrandsson hjá VLFGRV.
Umferðarsultuþreyta
Fátt hefur verið meira í umræð-
unni undanfarið en umferða-
þunginn á annatíma í Reykjavík
og er það fyrir löngu orðið að
þjóðhagslegu vandamáli. Mikið
hefur breyst frá því ég var aðeins
yngri, bjó í Keflavík og sótti há-
skóla og síðar vinnu í Reykjavík.
Þrátt fyrir að Reykjanesbrautin
hafi hvorki verið tvöföld né upplýst
á þeim tíma, tók það mig svipaðan
tíma að komast til og frá Keflavík í
vesturbæ Reykjavíkur eins og það
tekur mig í dag að komast 8 km
vegalengd, frá Garðabæ í miðbæ
Reykjavíkur á annatíma. Það er
augljóslega eitthvað ekki í lagi
varðandi umferðina í Reykjavík.
Þetta er ekki aðeins bundið við
Reykjanesbrautina, heldur líka
allar aðrar stofnbrautir til og frá
Reykjavík. Íbúar nærliggjandi
sveitarfélaga eru daglega í gíslingu
umferðaröngþveitis Reykjavíkur-
borgar og hafa verið í mörg ár.
Útskýringarnar á þessari auknu um
ferð eru í sjálfu sér einfaldar. Fleiri
Íslendingar á fleiri bílum, fleiri ferða
menn á fleiri bílum, fullt af rútum,
fullt af hótelum, fullt af skólum með
aukna ásókn, uppbygging Landspítala,
þétting byggðar í hjarta borgarinnar,
stórar opinberar stofnanir, fleiri fyrir
tæki – allt í hjarta borgarinnar. Frekar
augljóst.
Á sama tíma hefur svo gott sem ekkert
verið gert til að greiða fyrir bílaum
ferð. Aðgerðir Reykjavíkurborgar
hafa einna helst falist í þeirri for
sjárhyggju að fá fólk til að hætta að
nota einkabíla og nota þess í stað
almenningssamgöngur eða að hjóla í
vinnuna. Allt voða huggulegt og krútt
legt en vandamálið er að einkabíllinn
er og verður alltaf fyrsti valkosturinn.
Íslendingar eru sjálfstæðir í hjarta
sínu og einkabíllinn er framlenging
af sjálfstæði okkar. Við notum ekki
strætó eftir að við erum komin með
bílpróf og hjólreiðar eru innanhúss
íþrótt helminginn af árinu.
Nú virðist hafa orðið einhver vakning
hjá hinu opinbera um þetta sam
gönguvandamál og litið hefur dagsins
ljós samgöngusáttmáli sem á að laga
umferðarsultuna til og frá Reykavík á
aðeins fimmtán árum. Geggjað! Þetta
verður orðið þolanlegt rétt áður en
maður fer á eftirlaun. Forsjárhyggja
er auðvitað nauðsynleg en það þarf
að laga vandamálið strax.
Með því að líta til þess að einka
bíllinn er fyrsta val flestra og með
því að greiða fyrir umferð hans þá
leysast vandamál almenningssam
gangna í leiðinni og við getum sparað
50 milljarða (sem verða líklega 150
milljarðar) með því að sleppa þessari
umtöluðu Borgarlínu. Þetta er ekki
flókið, nokkur mislæg gatnamót,
breikkun stofnbrauta um eina akgrein
og flutningur Landsspítalans, Lands
bankans og annarra mannmargra
ríkisstofnana úr miðbænum. Setjum
svo fasteignirnar og lóðirnar á sölu
og komum út í plús í staðinn fyrir
að almenningur borgi 60 milljarða í
auknum álögum. Verst að geta ekki
kosið í henni Reykjavík sem heldur
mér daglega í umferðargíslingu.
LOKAORÐ
Ingu Birnu Ragnarsdóttur
... og litið hefur dagsins
ljós samgöngusáttmáli
sem á að laga umferðar-
sultuna til og frá Reykavík
á aðeins fimmtán árum.
Geggjað!
F I M M T U D A G S K V Ö L D K L . 2 0 : 3 0 Á H R I N G B R A U T O G V F . I S
magasínS U Ð U R N E S J A
Rúnturinn
Heimsókn
í Þekkingarsetrið
Einnig sjósund og menning
á Garðskaga í þætti vikunna
r!
með Ævari bílasala