Fréttablaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 24
Veislu bakkar að hætti Jóa Fel Skoðið úrvalið í nýrri vefverslun www.joifel.is Makkarónur og annað gott nýtt hjá jóa Fel! Veganbakki ítalSkur Snittubakki grænn bakki Pinnabakki Mörg íslensk fyrir-tæki hafa gripið til svokallaðra stjórn-e n d a r á ð n i n g a , sem oft eru kall- aðar hausaveiðar, til að finna hæft starfsfólk. Ráðgjafi á þessu sviði segir að hér á landi sé leitað meira til hausaveiðara en áður. Fólk sem sinni verkefnum vel og vaxi í starfi veki f ljótt athygli hausaveiðaranna á Íslandi sökum smæðar markaðar- ins. „Það er óhætt að fullyrða að það sé meira um að leitað sé til hausa- veiðara en áður. Það er langoftast gert þegar ráða á forstjóra eða framkvæmdastjóra, jafnvel þó að staðan sé auglýst samhliða. Þá er það oftast stjórnarformaður- inn eða óformleg ráðningarnefnd skipuð einum til þremur stjórnar- mönnum sem fær ráðgjafa til liðs við sig og vinnur málið í nánu sam- starfi þar sem allir safna ábending- um um mögulega kandídata,“ segir Andrés Jónsson, eigandi Góðra samskipta, sem hefur lengi starfað sem ráðgjafi í almannatengslum og stefnumótun í samskiptamálum. Hann segist hafa byrjað að sinna stjórnendaráðningum árið 2012. „Ég hugsa að áhugi minn á fólki sé helsta ástæðan fyrir því að ég leiddist út í þetta. Ég er mjög for- vitinn um fólk og hef mikinn áhuga á hvernig það getur best nýtt eigin- leika sína og reynt sig við sífellt stærri áskoranir,“ segir Andrés. „Svo má líka segja að þetta sé bein af leiðing af því að vera ráð- gjafi í almannatengslum í 15 ár, en sem slíkur verður maður sjálf krafa trúnaðarmaður mjög margra for- ystumanna og -kvenna í atvinnu- lífinu sem þurfa að taka ákvarðanir um hverja skuli ráða í mikilvæg störf,“ segir Andrés í samtali við Markaðinn. Hausaveiðar (e. headhunting) eru notaðar til að finna gott starfs- fólk, oftast stjórnanda, sem er ekki endilega í virkri atvinnuleit. Fyrir- tæki leita þá til ráðgjafa sem vinna bak við tjöldin til að finna öf lugan einstakling. Andrés segir að hausaveiðarar séu í sumum tilfellum fengnir til að fara út á markaðinn, ýta við einstaklingum og fá þá til að sækja um auglýst störf þar sem önnur ráðningafyrirtæki sjá um ferlið. Stundum með þeirra vitneskju en stundum ekki. Í öðrum tilfellum hafi fyrirtæki augastað á ákveðn- um einstaklingum í sama geira en kunni ekki við að nálgast þá beint. Þá sé gott að fá millilið til að annast þau viðkvæmu samskipti. Til hvaða þátta horfa hausaveið- arar í ferlinu? „Það er svona klassískur hausa- veiðarafrasi að það sem við erum að leita að séu „tíur“, það er að segja ef þeim sem koma til greina væri raðað á kvarða frá einum og upp í tíu eftir getu og hæfni. Þetta getur samt misskilist. Þetta er ekki skil- greining á einhverjum meintum ofurmennum eða vinnusjúkling- um eða einu sinni ákveðinn fasti af fólki. Þetta getur verið mjög breytilegur hópur eftir bæði geira og á ólíkum tímum á starfsferl- inum. Þetta er fólk sem á það sam- eiginlegt að vera mjög framarlega á sínu sviði og komið með ákveðna reynslu úr fyrri störfum sem gerir það á þessum tímapunkti hæft til að leiða ákveðin verkefni,“ segir Andrés. „Eins og Hilmar Hjaltason, sem er líklega þekktasti hausaveiðari landsins, segir þegar hann er spurður hvað sé hægt að gera til að vekja athygli hans, þá er svarið bara að standa sig vel í þeim verk- efnum sem þú sinnir hverju sinni og gæta þess að halda áfram að vaxa. Ef þú gerir það þá munum við f ljótlega frétta af þér.“ Lykilatriði í ferlinu er að kort- leggja markaðinn til að hafa yfir- sýn yfir þá sem hafa viðeigandi hæfni og þekkingu. Andrés segist skoða lauslega um 100 til 150 ein- staklinga fyrir hvert starf. Sá hópur sé skorinn niður í 30 til 50 manns og síðan niður í 15-20 sem haft er samband við. Um helmingurinn fari í tvö eða þrjú viðtöl, þreyti próf og leysi verkefni. Markmiðið sé að standa uppi með 2-3 einstaklinga sem allir gætu sinnt starfinu vel. „Ferlið þegar verið er að ráða toppforstjóra er í grunninn eins nema að það þarf að gæta betur að því að þetta er söluferli, jafn mikið og þetta er umsóknarferli. Ferlið er þá oft aðeins meira eins og tvíhliða viðræður sem byrja sem óformlegt spjall. Þá má nefna að það er orðið algengara hér á landi að nota ráðn- ingarferli við val á nýjum stjórnar- mönnum,“ segir Andrés. „Smæð markaðarins gerir það vissulega að verkum að það er létt- ara að hafa yfirsýn yfir markaðinn og vita hverjir koma til greina. Það er kannski ein ástæða þess að stjórnendaleit (e. Executive Search) hefur tekið lengri tíma að ryðja sér til rúms hér á landi.“ Þá skiptir máli hvert fyrirtækið er að stefna og í hvers konar fasa það er. Fyrirtæki í endurskipu- lagningu geti til að mynda þurft öðruvísi stjórnanda en fyrirtæki í sóknarhug. Breytingar í umhverfi fyrirtækisins vegna tækni, laga- ramma eða annarra ástæðna hafi einnig áhrif á ráðninguna. Er munur á hversu algengar hausaveiðar eru eftir því hvort hagkerfið er í uppsveif lu eða niður- sveif lu? „Ég hef reyndar bara reynslu af einni uppsveif lu, þeirri síðustu, en mín tilfinning er sú að það ger- ist mun minna í þessum málum í niðursveif lum. Ekki vegna þess að fyrirtækin þurfi ekki jafn mikið á góðum stjórnendum að halda í niðursveif lu heldur vegna þess að þá ríkir oft meiri óvissa, jafnvel um eignarhald fyrirtækjanna. Ef það er enginn virkur eigandi til staðar þá þýðir að gjarnan að litlar breyting- ar eru gerðar á stjórnendahópnum á meðan,“ segir Andrés. Hausaveiðarar leita að tíum Algengara er að fyrirtæki noti svokallaðar hausaveiðar til að finna hæfa stjórnendur að sögn ráðgjafa. Ráðningar af þessu tagi sveiflist í takt við hagkerfið. Duglegt fólk sem vex í starfi kemst fljótt á radarinn. Fólk er yfirleitt mjög varfærið þegar kemur að því að skipta um vinnu, segir ráðgjafi sem hefur sinnt stjórnendaráðningum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Það er óhætt að fullyrða að það sé meira um að leitað sé til hausaveiðara en áður. Það er langoftast gert þegar ráða á forstjóra eða framkvæmda- stjóra. Andrés Jónsson, eigandi Góðra samskipta 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN 0 9 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 F 8 -9 6 4 4 2 3 F 8 -9 5 0 8 2 3 F 8 -9 3 C C 2 3 F 8 -9 2 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.