Fréttablaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 23
Fór í ferðaþjónustu eftir átján ár á fjármálamarkaði Styrmir Þór hafði starfað á fjár- málamarkaði í átján ár, meðal annars sem forstjóri MP Banka, áður en hann breytti um stefnu og fjárfesti í ferðaþjónustu árið 2013. „Það var alveg ljóst í mínum huga að ég var kominn að enda- lokum í fjármálageiranum og í kjölfarið fór ég að skoða tækifæri í öðrum atvinnugreinum,“ segir Styrmir sem keypti lítið ferða- þjónustufyrirtæki sem sérhæfði sig í gönguferðum í lok árs 2013 en það sameinaðist síðan Arctic Adventures árið 2015. „Göngufyrirtækið mitt hafði gengið mjög vel og hafði byggt upp góða sjóðsstöðu sem hjálpaði okkur í gegnum fyrstu mánuðina á meðan við vorum að taka til í rekstrinum,“ segir Styrmir. „En það voru margir sem trúðu því varla að ég ætlaði að fara inn í svona lítið fyrirtækið og fara bara á gólfið að pakka niður vörum til að senda í gönguferðir upp á Laugaveg. Þrífa tjöld og græja alls konar hluti. Þetta var bara tveggja manna fyrirtæki og maður óð því í öll verk. Ég hef aldrei verið feiminn við að taka til hendinni. Maður er alinn upp við það.“ En eru þetta ekki ólíkir geirar, það er að segja fjármálamarkað- urinn og ferðaþjónusta? „Jú, en auðvitað snýst þetta allt um það sama á endanum. Þú ert að reka fyrirtæki sem þarf að búa til tekjur og það þarf að passa upp á að kostnaðurinn sé minni en tekjurnar þannig að þetta komi rétt út á endanum.“ Styrmir Þór Bragason segir að frá því að þeir Jón Þór komu inn í Arctic Adventures árið 2015 hafi vantað öflugt fyrirtæki til að keppa við. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK það að þessar sameiningar sem við höfum gengið í gegnum hafi skilað sér. En samruni tekur alltaf tíma og það er ekki ráð nema í tíma sé tekið,“ segir Styrmir en bætir við að opinberar stofnanir þurfi að spýta í lófana til að stytta samrunaferlið þegar rekstrarum- hverfið er erfitt. Vísar hann til fyrirhugaðs samruna hjá hóp- ferðafyrirtækjunum Grayline og Reykjavík Sightseeing sem sendu Samkeppniseftirlitinu samrunatil- kynningu í sumar. „Það að Samkeppniseftirlitið skuli taka allan þennan tíma í þetta mál er stórhættulegt vegna þess að það er alls ekki víst að fyrirtækin lifi það af að bíða eftir niðurstöðu. Þau eru að ráðast í þessar aðgerðir til að bregðast við erfiðleikum og þá þurfa hlutirnir að gerast mjög hratt. Ég fékk spurningu frá Samkeppnis- eftirlitinu um þennan samruna og svaraði einfaldlega að ég væri mjög hlynntur honum og teldi hann alveg nauðsynlegan.“ Arctic Adventures hafði sem kunnugt er náð samkomulagi um kaup á Into the glacier, sem rekur ísgöng í Langjökli, og öðrum ferða- þjónustufélögum í eigu framtaks- sjóðsins Icelandic Tourism Fund. Tilkynnt var um samkomulagið í byrjun árs en óvissa í ferðaþjónustu og fækkun gesta í göngin urðu til þess að kaupin runnu út í sandinn. „Við gengum frá samkomu- laginu með ýmsum fyrirvörum. Síðan verður WOW air gjaldþrota og þá setjumst við niður og tökum ákvörðun um að setja þetta á frost fram á haustið. Á sama tíma voru viðræðurnar í gangi um að selja Arctic Adventures til erlends aðila og það var ekki heppilegt að vera á tveimur vígstöðvum í einu. Það verður síðan að koma í ljós hvort við tökum upp þráðinn að nýju en það eru engar formlegar viðræður á milli félaganna í dag.“ Söluviðræður settar á ís Þá átti fyrirtækið í viðræðum við stórt alþjóðlegt ferðaþjónustu- fyrirtæki á þessu ári um sölu á fyrirtækinu. Söluferlið var á loka- metrunum þegar gjaldþrot ferða- þjónusturisans Thomas Cook setti strik í reikninginn hjá viðsemj- endum Arctic Adventures. „Viðræðurnar hófust snemma í vor og við náðum síðan saman um verðið í júní. Þá fór af stað kost- gæfnisathugun sem fól í sér að þeir réðu erlenda sérfræðinga til að skoða fyrirtækið nánar. Það ferli var komið mjög langt og við töldum að við þyrftum bara að passa upp á að hlutirnir hjá okkur væru í lagi. Allt það sem við skiluðum af okkur stemmdi við það sem við höfðum áður kynnt en síðan fer þetta forn- fræga breska félag Thomas Cook á hausinn. Þá kemur ókyrrð á markaðinn, ekki bara í Bretlandi heldur úti um allt vegna stærðar og umfangs félagsins. Nýleg gjaldþrot í f luggeiranum blikna í samanburði við gjaldþrot Thomas Cook. Þetta gjaldþrot hafði nokkra snertif leti við erlenda félagið og þeir óskuðu eftir því að fresta við- ræðunum um sex mánuði. En það eru miklar hreyfingar á Íslandi og við vorum ekki tilbúnir að binda okkur í svo langan tíma þannig að við höfnuðum en sögðum jafnframt að við gætum spjallað aftur saman eftir sex mánuði ef báðum aðilum hugnaðist. Við erum ekki endilega búnir að útiloka söluna en hún er á ís eins og staðan er í dag.“ Var kaupverðið yfir 10 milljarðar króna? „Ég get ekki beint tjáð mig um það en ég held nú að þeir sem kunna að lesa ársreikninga geti fundið nokk- urn veginn út hvert verðmæti fyrir- tækisins er.“ Tækifæri í óþroskaðri grein Styrmir Þór og Jón Þór Gunnars- son, viðskiptafélagi hans, komu inn í Arctic Adventures árið 2015 og eignuðust þá báðir fjórðungshlut. Þeir höfðu skýra sýn á það hvernig ferðaþjónustan ætti eftir að þróast. „Sumarið 2015 kom Jón Þór til mín og sagði að Arctic Adventures væri í vandræðum. Ég hafði þá verið búinn að skoða félagið utan frá og við sáum tækifæri í því að koma inn og gera róttækar breytingar,“ segir Styrmir. „Ég horfði á ferðaþjónustuna með þeim augum að hún væri dálítið eins og matvörumarkaðurinn var þegar hann skiptist í nýlenduvöru- verslanir, kjötbúðir, fiskbúðir og mjólkurbúðir. Öll fyrirtækin voru lítil og hvert í sínu horni. Markmið- ið var því að gera það sama í ferða- þjónustu og hafði verið gert í öðrum þróaðri atvinnugreinum eins og í sjávarútvegi og verslun, það er að segja, að koma inn með þekkingu á því hvernig eigi að byggja upp öflug fyrirtæki í alþjóðlegu umhverfi. Ferðaþjónustan átti eftir að fara í gegnum ákveðið þroskaferli og við vildum ryðja brautina.“ Hvernig var staðan þegar þið komuð inn? „Fyrirtækið var að velta innan við milljarði og var í dálitlu basli. Staðan var í raun verri en við höfðum áður talið. Við þurftum því að bregðast hratt við og það gerðum við meðal annars með því að leggja niður það sem var ekki að skila neinu og gera meira af því sem var að skila einhverju. Strax í byrjun skárum við niður um það bil 70 prósent af vöruframboði fyrirtækisins. Það var að bjóða upp á mikinn fjölda ferða en aðeins fáar stóðu undir sér,“ segir Styrmir. „Það hafði mikil frumkvöðla- starfsemi átt sér stað í fyrirtækinu og það var með sterkt orðspor. En oft er það þannig þegar stofn- endur fyrirtækis eru frumkvöðlar á ákveðnu sviði, að þá getur mikill vöxtur verið þeim ofviða.“ Ráðist var í mikla vöruþróun í Arctic Adventures og bendir Styrmir á að aðeins tvær af 20 sölu- hæstu vörunum í dag hafi verið til staðar þegar þeir Jón Þór komu inn í fyrirtækið. Þá var strax horft til þess að stækka félagið með yfir- tökum. Arctic Adventures gekk í gegnum 14 yfirtökur á fjórum árum og jókst veltan úr milljarði króna í um sjö milljarða. Vöxt fyrirtækisins má rekja til tveggja þátta, annars vegar eru það yfirtökur og kaup, og hins vegar öflug vöruþróun og innri vöxtur. Hver er lykillinn að farsælum samruna? „Við höfum alltaf haft skýra sýn á það hvernig við förum í samruna. Þetta eru yfirtökur af okkar hálfu. Fyrirtækin koma inn í okkar kúltúr og vinna hlutina eins og við höfum verið að vinna þá, og það hefur virkað mjög vel. Yfirleitt skapast vandamál í sameiningum þegar verið er að reyna að blanda saman tveimur ólíkum kúltúrum þannig að til þess að þetta gangi þarf yfir- tökufélagið að ráða ferðinni.“ Mun betri afköst í Litháen Í byrjun árs opnaði Arctic Advent- ures þjónustuver í Vilníus, höfuð- borg Litháen, til viðbótar við þjónustuverið á Íslandi en einn- ig hugbúnaðarþróunardeild og markaðsdeild. Á erlendu skrif- stofunni starfa nú 40 manns og þar af sex Íslendingar. Til að byrja með átti að flytja starfsemina út í litlum skrefum en þegar í ljós kom að afköstin í Litháen voru miklu betri en hér heima var ákveðið að hraða flutningunum. „Í þjónustuverum á Íslandi er til- tölulega mikil starfsmannavelta. Fólk lítur ekki á þetta starf sem hluta af starfsframa heldur sem tímabundið starf. Þetta var orðið þannig að við gátum ekki fengið Íslendinga í fullt starf í þjónustuver- inu. Fólk var alveg tilbúið að vinna í þjónustuverinu með skóla en það var nánast útilokað að finna ein- hvern sem entist í starfi. Á síðustu árum vorum við því að ráða útlend- inga inn til okkar á sama tíma og íslenski húsnæðismarkaðurinn var sprunginn og mikil óvissa á vinnu- markaði,“ segir Styrmir. Í ljósi þess var tekin ákvörðun um að opna þjónustuverið í Litháen. „Upphaflega ætluðum við að hafa þetta þannig að þegar einhver hætti störfum í þjónustuverinu hér heima myndum við ráða starfsmann í Lit- háen en eftir þrjá mánuði sáum við að afköstin úti voru um 40 prósent- um meiri og gæðin alls ekki síðri en hér heima þrátt fyrir að starfsfólkið úti væri með minni starfsreynslu. Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum og þá ákváðum við að loka þjónustuverinu á Íslandi og færa þessa starfsemi alfarið út.“ Horfa til Kanada Sjáið þið f leiri tækifæri erlendis? „Flutningurinn á þjónustu- og markaðsdeildinni til Litháen sýndi að það gæti verið fjarlægð milli eininga innan fyrirtækisins annars vegar og framkvæmdar ferðanna hins vegar. Það opnaði möguleika á að horfa til annarra landa. Nú höfum við augastað á Kanada sem næsta áfangastað. Þar höfum við skannað markaðinn og fundið tvö fyrirtæki sem við höfum áhuga á að skoða,“ segir Styrmir. „Þegar mest lét komu tvær og hálf milljón ferðamanna til Íslands. Bara fjölgun ferðamanna til Kanada á milli 2017 og 2018 var tvöfalt meiri en það. Þetta er ekki svo ólíkt því sem við sáum á Íslandi fyrir nokkr- um árum. Markaðurinn er fullur af smáum, sérhæfðum fyrirtækjum sem treysta á sölu þriðja aðila. Það eru tækifæri í ferðaþjónustu ann- ars staðar en á Íslandi og við teljum okkur vera eitt af fáum ferðaþjón- Eftir þrjá mánuði sáum við að af- köstin úti voru 40 pró- sentum meiri og gæðin ekki síðri en hér heima þrátt fyrir að starfsfólkið úti væri með minni starfsreynslu. Það að Samkeppnis- eftirlitið skuli taka allan þennan tíma í svona mál er stórhættulegt vegna þess að það er ekki víst að fyrirtækin lifi það af að bíða eftir niðurstöðu. ustufyrirtækjum á Íslandi sem eru í stakk búin til að setja upp starfsemi með sambærilegum hætti í öðrum löndum.“ Hvað er að frétta af fyrirhugaðri skráningu félagsins á aðallista Kauphallarinnar? „Ein af ástæðunum fyrir því að við ákváðum að skrá félagið er sú að skráning gefur okkur tækifæri til að nota hlutabréfin okkar betur sem gjaldmiðil í yfirtökum og samein- ingum. Önnur er að hinn almenni fjárfestir þarf að hafa tækifæri til þess að fjárfesta í stærstu atvinnu- grein landsins og sérstaklega fyrir- tæki sem þjónustar eingöngu ferða- menn sem ferðast til Íslands. Ég held að það sé svigrúm og áhugi fyrir slíku fyrirtæki á markaði. Við vorum búnir að semja við Kviku um að sjá um skráningar- ferlið og það var komið af stað þegar viðræður við erlenda ferða- þjónustufyrirtækið hófust. Nú setjum við stefnuna á að skrá félag- ið á markað 2021. En fyrst viljum við stefna á að koma veltunni yfir tíu milljarða og þess vegna erum við að ræða við önnur ferðaþjónustu- fyrirtæki og athuga hvar tækifærin liggja. Það verður væntanlega nóg að gera á næsta ári,“ segir Styrmir en Arctic Adventures veltir í dag um sjö milljörðum króna á ársgrundvelli. Hefði viljað núllsamning Nú er um hálft ár liðið frá því að skrifað var undir Lífskjarasamn- inginn sem hefur töluverð áhrif á ferðaþjónustuna. Hvernig var niðurstaðan að þínu mati? „Í þessu umhverfi sem við erum í núna hefði verið best fyrir alla að gera svokallaðan núllsamning. Hér hafði átt sér stað gríðarleg kaup- máttaraukning, meiri en hefur nokkurn tímann sést í sögu Íslands eða annars staðar. Ég hefði viljað sjá menn ákveða að halda þessu óbreyttu þangað til rykið settist og við sæjum betur inn í framtíðina. Ég held að við séum að bíta úr nálinni eftir þessa kjarasamninga. Af leiðingarnar eru miklar upp- sagnir þrátt fyrir að kerfið sé að mörgu leyti vel undirbúið fyrir erfiða tíma. Atvinnuleysi er að aukast mjög hratt og fyrirtæki eru að skera niður til að bregðast við því að rekstrarkostnaður og sam- keppnishæfni Íslands er orðin mjög slæm vegna þess að launakostnaður hefur rokið upp langt umfram það sem f lest fyrirtæki geta greitt,“ segir Styrmir. Hann telur að kjara- samningurinn feli í sér f leiri duldar launahækkanir en af er látið. „Það er ekki eingöngu verið að tala um launahækkanir heldur einnig styttingu á vinnutíma. Sumir halda því fram að stytting vinnutíma auki framleiðni en ekki kostnað, en það er ljóst að sam- kvæmt erlendum rannsóknum þá er það ekki rétt þar sem þær sýna fram á aukinn kostnað fyrirtækja.“ Bindið þið vonir við innkomu nýs f lugfélags? „Hvort einhver komi inn á mark- aðinn með eina eða tvær vélar skiptir í raun og veru ekki öllu máli í stóru myndinni. Það sem skiptir máli fyrir ferðaþjónustu á Íslandi er hvernig Icelandair mun takast að halda áfram að reka fyrirtækið, byggja upp nýjar f lugleiðir og auka f lutningsgetu sína. Vandamálið er ekki að áhugi almennings á að koma til Íslands hafi minnkað. Það eina sem hefur minnkað er fram- boð f lugsæta og þar með aðgengi að landinu.“ MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 0 9 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 8 -9 1 5 4 2 3 F 8 -9 0 1 8 2 3 F 8 -8 E D C 2 3 F 8 -8 D A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.