Fréttablaðið - 09.10.2019, Side 23
Fór í ferðaþjónustu eftir átján ár á fjármálamarkaði
Styrmir Þór hafði starfað á fjár-
málamarkaði í átján ár, meðal
annars sem forstjóri MP Banka,
áður en hann breytti um stefnu og
fjárfesti í ferðaþjónustu árið 2013.
„Það var alveg ljóst í mínum
huga að ég var kominn að enda-
lokum í fjármálageiranum og í
kjölfarið fór ég að skoða tækifæri
í öðrum atvinnugreinum,“ segir
Styrmir sem keypti lítið ferða-
þjónustufyrirtæki sem sérhæfði
sig í gönguferðum í lok árs 2013
en það sameinaðist síðan Arctic
Adventures árið 2015.
„Göngufyrirtækið mitt hafði
gengið mjög vel og hafði byggt
upp góða sjóðsstöðu sem
hjálpaði okkur í gegnum fyrstu
mánuðina á meðan við vorum
að taka til í rekstrinum,“ segir
Styrmir.
„En það voru margir sem trúðu
því varla að ég ætlaði að fara
inn í svona lítið fyrirtækið og
fara bara á gólfið að pakka niður
vörum til að senda í gönguferðir
upp á Laugaveg. Þrífa tjöld og
græja alls konar hluti. Þetta var
bara tveggja manna fyrirtæki
og maður óð því í öll verk. Ég hef
aldrei verið feiminn við að taka
til hendinni. Maður er alinn upp
við það.“
En eru þetta ekki ólíkir geirar,
það er að segja fjármálamarkað-
urinn og ferðaþjónusta?
„Jú, en auðvitað snýst þetta
allt um það sama á endanum. Þú
ert að reka fyrirtæki sem þarf
að búa til tekjur og það þarf að
passa upp á að kostnaðurinn sé
minni en tekjurnar þannig að
þetta komi rétt út á endanum.“
Styrmir Þór Bragason segir að frá því að þeir Jón Þór komu inn í Arctic Adventures árið 2015 hafi vantað öflugt fyrirtæki til að keppa við. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
það að þessar sameiningar sem
við höfum gengið í gegnum hafi
skilað sér. En samruni tekur alltaf
tíma og það er ekki ráð nema í
tíma sé tekið,“ segir Styrmir en
bætir við að opinberar stofnanir
þurfi að spýta í lófana til að stytta
samrunaferlið þegar rekstrarum-
hverfið er erfitt. Vísar hann til
fyrirhugaðs samruna hjá hóp-
ferðafyrirtækjunum Grayline og
Reykjavík Sightseeing sem sendu
Samkeppniseftirlitinu samrunatil-
kynningu í sumar.
„Það að Samkeppniseftirlitið
skuli taka allan þennan tíma í þetta
mál er stórhættulegt vegna þess að
það er alls ekki víst að fyrirtækin
lifi það af að bíða eftir niðurstöðu.
Þau eru að ráðast í þessar aðgerðir
til að bregðast við erfiðleikum og þá
þurfa hlutirnir að gerast mjög hratt.
Ég fékk spurningu frá Samkeppnis-
eftirlitinu um þennan samruna og
svaraði einfaldlega að ég væri mjög
hlynntur honum og teldi hann alveg
nauðsynlegan.“
Arctic Adventures hafði sem
kunnugt er náð samkomulagi um
kaup á Into the glacier, sem rekur
ísgöng í Langjökli, og öðrum ferða-
þjónustufélögum í eigu framtaks-
sjóðsins Icelandic Tourism Fund.
Tilkynnt var um samkomulagið í
byrjun árs en óvissa í ferðaþjónustu
og fækkun gesta í göngin urðu til
þess að kaupin runnu út í sandinn.
„Við gengum frá samkomu-
laginu með ýmsum fyrirvörum.
Síðan verður WOW air gjaldþrota
og þá setjumst við niður og tökum
ákvörðun um að setja þetta á frost
fram á haustið. Á sama tíma voru
viðræðurnar í gangi um að selja
Arctic Adventures til erlends aðila
og það var ekki heppilegt að vera
á tveimur vígstöðvum í einu. Það
verður síðan að koma í ljós hvort
við tökum upp þráðinn að nýju en
það eru engar formlegar viðræður á
milli félaganna í dag.“
Söluviðræður settar á ís
Þá átti fyrirtækið í viðræðum við
stórt alþjóðlegt ferðaþjónustu-
fyrirtæki á þessu ári um sölu á
fyrirtækinu. Söluferlið var á loka-
metrunum þegar gjaldþrot ferða-
þjónusturisans Thomas Cook setti
strik í reikninginn hjá viðsemj-
endum Arctic Adventures.
„Viðræðurnar hófust snemma í
vor og við náðum síðan saman um
verðið í júní. Þá fór af stað kost-
gæfnisathugun sem fól í sér að þeir
réðu erlenda sérfræðinga til að
skoða fyrirtækið nánar. Það ferli
var komið mjög langt og við töldum
að við þyrftum bara að passa upp á
að hlutirnir hjá okkur væru í lagi.
Allt það sem við skiluðum af okkur
stemmdi við það sem við höfðum
áður kynnt en síðan fer þetta forn-
fræga breska félag Thomas Cook
á hausinn. Þá kemur ókyrrð á
markaðinn, ekki bara í Bretlandi
heldur úti um allt vegna stærðar og
umfangs félagsins. Nýleg gjaldþrot í
f luggeiranum blikna í samanburði
við gjaldþrot Thomas Cook.
Þetta gjaldþrot hafði nokkra
snertif leti við erlenda félagið og
þeir óskuðu eftir því að fresta við-
ræðunum um sex mánuði. En það
eru miklar hreyfingar á Íslandi og
við vorum ekki tilbúnir að binda
okkur í svo langan tíma þannig að
við höfnuðum en sögðum jafnframt
að við gætum spjallað aftur saman
eftir sex mánuði ef báðum aðilum
hugnaðist. Við erum ekki endilega
búnir að útiloka söluna en hún er á
ís eins og staðan er í dag.“
Var kaupverðið yfir 10 milljarðar
króna?
„Ég get ekki beint tjáð mig um það
en ég held nú að þeir sem kunna að
lesa ársreikninga geti fundið nokk-
urn veginn út hvert verðmæti fyrir-
tækisins er.“
Tækifæri í óþroskaðri grein
Styrmir Þór og Jón Þór Gunnars-
son, viðskiptafélagi hans, komu
inn í Arctic Adventures árið 2015 og
eignuðust þá báðir fjórðungshlut.
Þeir höfðu skýra sýn á það hvernig
ferðaþjónustan ætti eftir að þróast.
„Sumarið 2015 kom Jón Þór til
mín og sagði að Arctic Adventures
væri í vandræðum. Ég hafði þá verið
búinn að skoða félagið utan frá og
við sáum tækifæri í því að koma inn
og gera róttækar breytingar,“ segir
Styrmir.
„Ég horfði á ferðaþjónustuna með
þeim augum að hún væri dálítið
eins og matvörumarkaðurinn var
þegar hann skiptist í nýlenduvöru-
verslanir, kjötbúðir, fiskbúðir og
mjólkurbúðir. Öll fyrirtækin voru
lítil og hvert í sínu horni. Markmið-
ið var því að gera það sama í ferða-
þjónustu og hafði verið gert í öðrum
þróaðri atvinnugreinum eins og í
sjávarútvegi og verslun, það er að
segja, að koma inn með þekkingu á
því hvernig eigi að byggja upp öflug
fyrirtæki í alþjóðlegu umhverfi.
Ferðaþjónustan átti eftir að fara í
gegnum ákveðið þroskaferli og við
vildum ryðja brautina.“
Hvernig var staðan þegar þið
komuð inn?
„Fyrirtækið var að velta innan
við milljarði og var í dálitlu basli.
Staðan var í raun verri en við
höfðum áður talið. Við þurftum
því að bregðast hratt við og það
gerðum við meðal annars með því
að leggja niður það sem var ekki
að skila neinu og gera meira af því
sem var að skila einhverju. Strax í
byrjun skárum við niður um það
bil 70 prósent af vöruframboði
fyrirtækisins. Það var að bjóða upp
á mikinn fjölda ferða en aðeins fáar
stóðu undir sér,“ segir Styrmir.
„Það hafði mikil frumkvöðla-
starfsemi átt sér stað í fyrirtækinu
og það var með sterkt orðspor.
En oft er það þannig þegar stofn-
endur fyrirtækis eru frumkvöðlar
á ákveðnu sviði, að þá getur mikill
vöxtur verið þeim ofviða.“
Ráðist var í mikla vöruþróun
í Arctic Adventures og bendir
Styrmir á að aðeins tvær af 20 sölu-
hæstu vörunum í dag hafi verið
til staðar þegar þeir Jón Þór komu
inn í fyrirtækið. Þá var strax horft
til þess að stækka félagið með yfir-
tökum. Arctic Adventures gekk í
gegnum 14 yfirtökur á fjórum árum
og jókst veltan úr milljarði króna í
um sjö milljarða. Vöxt fyrirtækisins
má rekja til tveggja þátta, annars
vegar eru það yfirtökur og kaup, og
hins vegar öflug vöruþróun og innri
vöxtur.
Hver er lykillinn að farsælum
samruna?
„Við höfum alltaf haft skýra sýn
á það hvernig við förum í samruna.
Þetta eru yfirtökur af okkar hálfu.
Fyrirtækin koma inn í okkar kúltúr
og vinna hlutina eins og við höfum
verið að vinna þá, og það hefur
virkað mjög vel. Yfirleitt skapast
vandamál í sameiningum þegar
verið er að reyna að blanda saman
tveimur ólíkum kúltúrum þannig
að til þess að þetta gangi þarf yfir-
tökufélagið að ráða ferðinni.“
Mun betri afköst í Litháen
Í byrjun árs opnaði Arctic Advent-
ures þjónustuver í Vilníus, höfuð-
borg Litháen, til viðbótar við
þjónustuverið á Íslandi en einn-
ig hugbúnaðarþróunardeild og
markaðsdeild. Á erlendu skrif-
stofunni starfa nú 40 manns og þar
af sex Íslendingar. Til að byrja með
átti að flytja starfsemina út í litlum
skrefum en þegar í ljós kom að
afköstin í Litháen voru miklu betri
en hér heima var ákveðið að hraða
flutningunum.
„Í þjónustuverum á Íslandi er til-
tölulega mikil starfsmannavelta.
Fólk lítur ekki á þetta starf sem
hluta af starfsframa heldur sem
tímabundið starf. Þetta var orðið
þannig að við gátum ekki fengið
Íslendinga í fullt starf í þjónustuver-
inu. Fólk var alveg tilbúið að vinna
í þjónustuverinu með skóla en það
var nánast útilokað að finna ein-
hvern sem entist í starfi. Á síðustu
árum vorum við því að ráða útlend-
inga inn til okkar á sama tíma og
íslenski húsnæðismarkaðurinn var
sprunginn og mikil óvissa á vinnu-
markaði,“ segir Styrmir. Í ljósi þess
var tekin ákvörðun um að opna
þjónustuverið í Litháen.
„Upphaflega ætluðum við að hafa
þetta þannig að þegar einhver hætti
störfum í þjónustuverinu hér heima
myndum við ráða starfsmann í Lit-
háen en eftir þrjá mánuði sáum við
að afköstin úti voru um 40 prósent-
um meiri og gæðin alls ekki síðri en
hér heima þrátt fyrir að starfsfólkið
úti væri með minni starfsreynslu.
Þetta fór fram úr okkar björtustu
vonum og þá ákváðum við að loka
þjónustuverinu á Íslandi og færa
þessa starfsemi alfarið út.“
Horfa til Kanada
Sjáið þið f leiri tækifæri erlendis?
„Flutningurinn á þjónustu- og
markaðsdeildinni til Litháen sýndi
að það gæti verið fjarlægð milli
eininga innan fyrirtækisins annars
vegar og framkvæmdar ferðanna
hins vegar. Það opnaði möguleika
á að horfa til annarra landa. Nú
höfum við augastað á Kanada sem
næsta áfangastað. Þar höfum við
skannað markaðinn og fundið tvö
fyrirtæki sem við höfum áhuga á að
skoða,“ segir Styrmir.
„Þegar mest lét komu tvær og hálf
milljón ferðamanna til Íslands. Bara
fjölgun ferðamanna til Kanada á
milli 2017 og 2018 var tvöfalt meiri
en það. Þetta er ekki svo ólíkt því
sem við sáum á Íslandi fyrir nokkr-
um árum. Markaðurinn er fullur af
smáum, sérhæfðum fyrirtækjum
sem treysta á sölu þriðja aðila. Það
eru tækifæri í ferðaþjónustu ann-
ars staðar en á Íslandi og við teljum
okkur vera eitt af fáum ferðaþjón-
Eftir þrjá mánuði
sáum við að af-
köstin úti voru 40 pró-
sentum meiri og gæðin ekki
síðri en hér heima þrátt fyrir
að starfsfólkið úti væri með
minni starfsreynslu.
Það að Samkeppnis-
eftirlitið skuli taka
allan þennan tíma í svona
mál er stórhættulegt vegna
þess að það er ekki víst að
fyrirtækin lifi það af að bíða
eftir niðurstöðu.
ustufyrirtækjum á Íslandi sem eru í
stakk búin til að setja upp starfsemi
með sambærilegum hætti í öðrum
löndum.“
Hvað er að frétta af fyrirhugaðri
skráningu félagsins á aðallista
Kauphallarinnar?
„Ein af ástæðunum fyrir því að
við ákváðum að skrá félagið er sú að
skráning gefur okkur tækifæri til að
nota hlutabréfin okkar betur sem
gjaldmiðil í yfirtökum og samein-
ingum. Önnur er að hinn almenni
fjárfestir þarf að hafa tækifæri til
þess að fjárfesta í stærstu atvinnu-
grein landsins og sérstaklega fyrir-
tæki sem þjónustar eingöngu ferða-
menn sem ferðast til Íslands. Ég held
að það sé svigrúm og áhugi fyrir
slíku fyrirtæki á markaði.
Við vorum búnir að semja við
Kviku um að sjá um skráningar-
ferlið og það var komið af stað
þegar viðræður við erlenda ferða-
þjónustufyrirtækið hófust. Nú
setjum við stefnuna á að skrá félag-
ið á markað 2021. En fyrst viljum
við stefna á að koma veltunni yfir
tíu milljarða og þess vegna erum við
að ræða við önnur ferðaþjónustu-
fyrirtæki og athuga hvar tækifærin
liggja. Það verður væntanlega nóg
að gera á næsta ári,“ segir Styrmir en
Arctic Adventures veltir í dag um sjö
milljörðum króna á ársgrundvelli.
Hefði viljað núllsamning
Nú er um hálft ár liðið frá því að
skrifað var undir Lífskjarasamn-
inginn sem hefur töluverð áhrif
á ferðaþjónustuna. Hvernig var
niðurstaðan að þínu mati?
„Í þessu umhverfi sem við erum
í núna hefði verið best fyrir alla að
gera svokallaðan núllsamning. Hér
hafði átt sér stað gríðarleg kaup-
máttaraukning, meiri en hefur
nokkurn tímann sést í sögu Íslands
eða annars staðar. Ég hefði viljað
sjá menn ákveða að halda þessu
óbreyttu þangað til rykið settist og
við sæjum betur inn í framtíðina.
Ég held að við séum að bíta úr
nálinni eftir þessa kjarasamninga.
Af leiðingarnar eru miklar upp-
sagnir þrátt fyrir að kerfið sé að
mörgu leyti vel undirbúið fyrir
erfiða tíma. Atvinnuleysi er að
aukast mjög hratt og fyrirtæki eru
að skera niður til að bregðast við
því að rekstrarkostnaður og sam-
keppnishæfni Íslands er orðin mjög
slæm vegna þess að launakostnaður
hefur rokið upp langt umfram það
sem f lest fyrirtæki geta greitt,“
segir Styrmir. Hann telur að kjara-
samningurinn feli í sér f leiri duldar
launahækkanir en af er látið.
„Það er ekki eingöngu verið að
tala um launahækkanir heldur
einnig styttingu á vinnutíma.
Sumir halda því fram að stytting
vinnutíma auki framleiðni en ekki
kostnað, en það er ljóst að sam-
kvæmt erlendum rannsóknum þá
er það ekki rétt þar sem þær sýna
fram á aukinn kostnað fyrirtækja.“
Bindið þið vonir við innkomu nýs
f lugfélags?
„Hvort einhver komi inn á mark-
aðinn með eina eða tvær vélar
skiptir í raun og veru ekki öllu máli
í stóru myndinni. Það sem skiptir
máli fyrir ferðaþjónustu á Íslandi
er hvernig Icelandair mun takast
að halda áfram að reka fyrirtækið,
byggja upp nýjar f lugleiðir og auka
f lutningsgetu sína. Vandamálið
er ekki að áhugi almennings á að
koma til Íslands hafi minnkað. Það
eina sem hefur minnkað er fram-
boð f lugsæta og þar með aðgengi
að landinu.“
MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
0
9
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
8
-9
1
5
4
2
3
F
8
-9
0
1
8
2
3
F
8
-8
E
D
C
2
3
F
8
-8
D
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K