Fréttablaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 16
Aðgerða leysi st jór nva lda þegar kemur að rekstrar-umhverfi bankanna getur
orðið til þess að niðursveif la hag-
kerfisins verði dýpri en ástæða er
til. Stjórnvöld geta spornað gegn
niðursveif lunni með því að lækka
skatta hraðar en áform eru um.
Þetta var á meðal þess sem kom
fram í máli Ásdísar Kristjánsdótt-
ur, forstöðumanns efnahagssviðs
Samtaka atvinnulífsins, og Yngva
Arnar Kristinssonar, hagfræðings
Samtaka fjármálafyrirtækja, sem
mættu fyrir efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis í gær.
Þar var rætt um ástæður að baki
verulegum samdrætti í útlánum
banka til fyrirtækja og áhrifin á
þróun í efnahagsmálum. Hrein
ný útlán innlánsstofnana til fyrir-
tækja á fyrstu átta mánuðum árs-
ins drógust saman um 90 milljarða
milli ára, eða um 52 prósent.
„Það er verulegt áhyggjuefni
að sjá svona snarpan viðsnúning
í útlánum bankanna. Ef erfiðara
aðgengi að lánsfé er meginskýring-
in á bakvið þessar tölur þá kemur
það niður á fjárfestingu og þar
með hagvexti. Niðurstaðan getur
því orðið enn dýpri niðursveif la en
kannski ástæða er til,“ segir Ásdís í
samtali við Markaðinn.
„Aðlögunin að þessu sinni er
í auknum mæli að eiga sér stað í
gegnum vinnumarkaðinn. Ólíkt
f lestum þeim niðursveif lum sem
við höfum áður upplifað er aðlög-
unin ekki að koma fram með geng-
isveikingu krónunnar og aukinni
verðbólgu heldur fækkun starfa og
auknu atvinnuleysi.“
Ásdís segir að þegar kemur að
stjórnvöldum geti þau brugðist við
með því að lækka sérstaka skatta á
fjármálafyrirtæki hraðar en áform
eru um en í vor var lækkun banka-
skattsins frestað til ársins 2021.
„Það er að hægja verulega á
útlánavextinum, sem kannski
að hluta má rekja til minni efna-
hagsumsvifa en einnig til annarra
þátta. Það er talsverð áskorun að
reka banka í því rekstrarumhverfi
sem við blasir. Talsverðar kröfur
eru gerðar um eigið fé. Lausafjár-
reglur hafa verið hertar og þessu til
viðbótar eru auk hinna almennu
skatta sem fyrirtæki í landinu
greiða þá eru bankarnir að greiða
bankaskatt, almennan fjársýslu-
skatt af launum og sérstakan fjár-
sýsluskatt af hagnaði.
Áformum stjórnvalda um að
lækka bankaskattinn frá og með
árinu 2021 ber að fagna en þau
áform bæta ekki stöðuna í dag.
Stjórnvöld ættu að huga að því
hvernig unnt er að lækka banka-
skattinn hraðar og meira,“ segir
Ásdís. – þfh
Snarpur samdráttur í útlánum
bankanna verulegt áhyggjuefni
Helgi Magnússon, fjárfestir og stjórnarformaður Bláa lóns-ins, er í hópi stærstu hluthafa
Iceland Seafood Inter national með
1,3 prósenta hlut. Félagið Hofgarðar,
sem er í eigu Helga, á þannig samtals
30 milljónir hluta í sjávarútvegsfyr-
irtækinu að nafnvirði, sem er metinn
á tæplega 300 milljónir króna miðað
við núverandi gengi bréfa félagsins.
Þetta kemur fram í yfirliti yfir
stærstu hluthafa Iceland Seafood
í lýsingu sem birtist í liðinni viku
vegna áforma félagsins um að skrá
fyrirtækið á aðalmarkað Kaup-
hallarinnar samhliða því að selja í
næstu viku í almennu útboði bréf í
félaginu sem jafngildir rúmlega 9,6
prósenta hlut.
Helgi, sem er fyrrverandi stjórnar-
formaður Lífeyrissjóðs verslunar-
manna og sat í stjórn Marels í fjórtán
ár, hóf að fjárfesta í Iceland Seafood
síðastliðið vor, samkvæmt upplýs-
ingum Markaðarins. Ásamt því að
vera stór hluthafi í Bláa lóninu hefur
Helgi að undanförnu fjárfest meðal
annars í Stoðum, Kviku banka auk
þess sem hann keypti í júní síðast-
liðnum helmingshlut í Torgi, útgáfu-
félagi Fréttablaðsins, og tók hann í
kjölfarið sæti í stjórn félagsins.
Stærstu hluthafar Iceland Sea-
food eru félögin Sjávarsýn, fjárfest-
ingafélag Bjarna Ármannssonar,
Nesfiskur, FISK-Seafood og Jakob
Valgeir ehf. sem fara samanlagt með
rúmlega 40 prósenta hlut auk þess að
eiga í sameiningu félagið Solo Hold-
ing sem á 9,7 prósenta hlut í sjávarút-
vegsfyrirtækinu.
Heildarvelta samstæðunnar á
fyrri árshelmingi þessa árs nam
232 milljónum evra, jafnvirði um
31 milljarðs króna, sem var 55 pró-
senta aukning frá fyrra ári. Aðlag-
aður hagnaður Iceland Seafood nam
tæplega 5,5 milljónum evra á tíma-
bilinu. – hae
Helgi meðal stærstu
hluthafa Iceland Seafood
300
milljónir króna er markaðs-
virði hlutar Helga í sjávarút-
vegsfyrirtækinu.
Ef erfiðara aðgengi
að lánsfé er megin-
skýringin þá kemur það
niður á fjárfestingu og þar
með hagvexti.
Ásdís
Kristjánsdóttir,
forstöðumaður
efnahagssviðs SA
Lækningatækjafyrirtækið Nox Medical og systur-félag þess, Fusion Health, sem rekið er í Bandaríkj-unum hafa sameinast undir
merkjum Nox Health. Reiknað er
með að velta fyrirtækisins á þessu
ári verði rúmir fjórir milljarðar
króna. Starfsmenn eru 200, þar af
rúmlega 50 á Íslandi.
„Með sameiningunni verður til
fyrirtæki með lausnaframboð það
víðfeðmt að það á sér ekki hliðstæðu
á markaði fyrir lækningatæki og
lausnir sem notuð eru til greiningar
og meðhöndlunar á svefnvanda,“
segir Pétur Már Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Nox Medical. Sigur-
jón Kristjánsson, einn stofnenda og
framkvæmdastjóri Fusion Health,
verður forstjóri samstæðunnar.
Samhliða sameiningunni var
hlutafé aukið og framtakssjóður í
rekstri Alfa framtaks eignaðist 13
prósenta hlut. Ekki fæst uppgefið
hve mikil hlutafjáraukningin var.
Nýta á aukið hlutafé í markaðssókn,
aukna vöruþróun og samtvinna
rekstur fyrirtækjanna. „Það er okkur
mikils virði að fá Alfa inn í hluthafa-
hópinn. Alfa hefur á að skipa einvala
liði sérfræðinga með mikla reynslu
úr alþjóðlegum rekstri,“ segir Pétur
Már.
Við aðkomu Alfa að félaginu,
verða breytingar á eignarhaldi.
„Einhverjir hluthafar hafa ákveðið
að fara af vagninum á þessum tíma-
mótum, sumir þeirra hafa verið með
okkur í þessu verkefni í meira en tíu
ár. Eftir sem áður er sameinað félag
enn að meirihluta til í eigu stofnenda
og lykilstjórnenda þess,“ segir hann.
Kvika Securities, dótturfélag
Kviku banka í Bretlandi, kom að
fjármögnun og skipulagningu verk-
efnisins fyrir hönd Nox og Fusion.
„Það hefur verið stórkostlegt að
vinna með Gunnari Sigurðssyni og
hans fólki í þessu verkefni. Reynslan
og þekkingin sem þar er að finna
gerði okkur kleift að vinna okkur í
gegnum tiltölulega flókið ferli við að
sameina þessar rekstrareiningar í eitt
fyrirtæki, kynna fjárfestum vaxtar-
sögu Nox Health og hjálpa okkur að
velja réttu fagfjárfestana að verk-
efninu með okkur,“ segir Pétur Már.
Pétur Már segir að Nox Medical
hafi keypt 20 prósenta hlut í Fusion
Health árið 2014. „Markmiðið með
fjárfestingunni var að fyrirtækin
myndu vinna nánar saman að
tæknilausnum,“ segir hann.
Upphaf fyrirtækjanna beggja
má rekja til Flögu sem stofnuð var
árið 1994 af Helga Kristbjarnarsyni
lækni en Flaga var í lok síðustu aldar
leiðandi í að þróa vörur fyrir svefn-
sérfæðinga til að greina svefn með
aðstoð tölvutækninnar. Stofnendur
fyrrnefndra fyrirtækja störfuðu hjá
Flögu þar til starfsemi hennar var
flutt úr landi árið 2005.
„Nox Medical byggði að hluta til
á grunni Flögu en hugmyndin með
stofnun Nox var að þróa næstu kyn-
slóð lækningatækja til greiningar
á svefni. Nox komst f ljótt á skrið
vegna þess að starfsmenn höfðu
mikla reynslu og þekkingu til þess
frá fyrri störfum. Nox hefur verið
rekið með hagnaði frá því að það
fyrst seldi sínar framleiðsluvörur
árið 2009 sem er ástæðan fyrir því
að Nox hefur ekki þurft að sækja
fjármagn til vaxtar.
Um svipað leyti og Nox lagði upp
í sína vegferð fór Sigurjón vestur um
haf til Atlanta og stofnaði Fusion
Health ásamt f leirum með það
fyrir augum að aðstoða fyrirtæki
við að draga úr kostnaði við heil-
brigðisþjónustu vegna undirliggj-
andi svefnvandamála starfsmanna
þeirra. Fusion Health hefur þróað
hugbúnaðarlausnir, aðferðafræði
og sérþjálfað starfsfólk til að takast
á við svefnvandamál, með því að
greina þau og meðhöndla,“ segir
Pétur Már.
Hann segir að rekstur Fusion
Health hafi gengið vel á síðasta ári.
Eftir miklar fjárfestingar í þróun hafi
félagið skilað jákvæðri EBITA-niður-
stöðu. „Fusion Health hefur vaxið
hratt á undanförnum árum. Nú er
veltan um tveir milljarðar króna.
Það var meðvituð ákvörðun að fjár-
festa ríkulega í innviðum og tækni-
lausnum á þessu tímabili. Það eru því
tvö öflug fyrirtæki að sameinast.
Eftir sameininguna er sameinað
félag algerlega skuldlaust, rekið
með hagnaði og jákvæðu veltufé
frá rekstri. Þessi sterka staða gefur
fyrirtækinu mikið frelsi til að sækja
hratt fram, takast á við ný tækifæri
á markaðnum og bregðast við breyt-
ingum.
Við höfum samhliða sameining-
unni ákveðið að sinna dreifingu á
vörum okkar í Bandaríkjunum sjálf-
ir en hingað til höfum við unnið með
dreifingaraðila sem hefur annast alla
okkar markaðsfærslu þar í landi,“
segir Pétur og nefnir að ávinningur-
inn af því sé aukin nálægð við við-
skiptavini sem geti eflt þjónustuna
og við það fangi fyrirtækið stærri
hlut í virðiskeðjunni sem auki fram-
legð.
Verður fyrirtæki án hliðstæðu í svefni
Nox Medical og Fusion Health hafa sameinast í Nox Health. Sameinað fyrirtæki veltir rúmlega fjórum milljörðum og er skuldlaust.
Sjóður í rekstri Alfa framtaks kemur inn í hluthafahópinn. Nox Medical átti fyrir sameininguna 20 prósenta hlut í Fusion Health.
Pétur Már segir að samhliða sameiningunni muni Nox Health annast dreifingu eigin vara í Bandaríkjunum í stað dreifingaraðila. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
0
9
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
8
-9
6
4
4
2
3
F
8
-9
5
0
8
2
3
F
8
-9
3
C
C
2
3
F
8
-9
2
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K