Freyja - 22.03.1929, Page 9

Freyja - 22.03.1929, Page 9
FREYJA 9 Máttur vanans. Eftir K. R. G. Browne. Gamli maðurinn með stráhattinn nam staðar við ljóskerið til þess að líta á úrið. Harris fagri, sem hallaði sér upp að grind- verki við höfnina, varð skyndilega glaðlegri á svipinn. Harris fagri var mjög fríður, ung- ur maður, vel vaxinn og með hár og hörund eins og ung stúlka. Hann var likur fullorðn- um engli, og vann fyrir lífinu með þvi að taka hlutina þar sem hann fann fá. Þess vegna var það, að þegar gamli mað- urinn stakk úrinu í vasann og hélt áfram, gekk Harris í hámótið á eftir honum. Og þegar hann gekk fram hjá gamla mannin- um, hrasaði hann, eins og óvart, og rakst allóþyrmilega á hann. Hann bað innvirðulega afsökunar, og gamli maðurinn kinkaði kolli; hann gekk áfram, en úrið dvaldist hjá Harr- is, sem handfjatlaði úrið i vasanum og hélt leiðar sinnar. En hann hafði ekki gengið nema tvö skref, þegar hann heyrði rödd: „Hæ, Harris! Ekki svona hratt!“ Harris fagri sneri sér við, og sá skamt frá sér þann mann, sem hann hafði síst búist við að hitta hér ■— Hobbs að nafni. Því að það var til þess að forðast athygli þessa Hobbs og annara hans líka í Scotland-Yard, sem hann hafði flúið til þessa baðstaðar, sem hann var á. Lögreglan hafði sem sé ver- ið nokkuð nærgöngul i London. Honum brá þvi ekki all-lítið, við að sjá Hobbs, en hann var ekki sá maður sem lét un'drunina fá yfir- höndina. Hann sneri sér á hæl og lagði á rás. Hobbs var ekki siður hissa, því að hann var hér staddur í sumarfríinu og var síst að leita að Harris — en hann beið ekki boð- anna og þaut af stað í eltingaleikinn. Harris flaug með ljóssins hraða inn i dimma hliðargötu. Hann þóttist ekki vera i vandræðum með að hlaupa Hobbs af sér, því að hann var frár á fæti. En þegar hann kom fyrir hornið, staðnæmdist hann skyndi- lega. Lögregluþjónn kom gangandi hægum skrefum í hinum enda götunnar. Harris stóð þar milli tveggja elda, og litaðist um eftir hæli. Þá sá hann bílinn. Það var stór, lok- aður bill, sem stóð tómur við gangstéttina — ekkert fyrirmyndar hæli — en betra en ekki neitt. Þegar Hobbs kom másandi og blásandi fyrir hornið, kúrði Harris fagri þvi inrxi i bilnum. Bíllinn virtist vera eign ein- hvers farandsala, þvi að gluggatjöldin voru dregin fyrir og sætin og botninn voru öll þakin allskonar kvenfatnáði, og stórum hattaöskjum. Það var því lítið pláss fyrir Harris, en honum tókst þó að rýma svo til, að hann gat sest niður. Hann gægðist varlega út um gluggann, og sá þá Hobbs standa nokkru neðar í strætinu i alvarlegum samræðum við lögregluþjóninn. Meðan hann leit á þá, skildu þeir; lögregluþjónninn hélt leiðar sinn- ar en Hobbs hvarf inn í myrkrið við húsin. Inni í bílnum bölvaði Harris og hugsaði sig um á víxl. Hann þorði ekki út strax, en væri hann kyr, átti hann það á hættu, að cigandinn kæmi honum að óvörum. Hvað átti hann að gera? Og þá fékk hann hug- myndina. Skömmu síðar opnuðust dyrnar á bílnum hægt, og Harris fagri steig út og skimaði í allar áttir. En hann var mjög ólíkur þeim Harris, sem hafði farið inn í vagninn fyrir nokkrum mínútum. Hann var nú með ný- tísku rauðan stráhatt og i rósóttum, en ein- földum og klæðilegum silkikjól. í kvöld- myrkrinu mátti ekki sjá annað en að þetta væri ung og fögur stúlka, með drengjavöxt og drengjakoll eins og tiskan krafði. Af fjandmönnum hans var hvorugur sýnilegur, en þegar hann beygði fyrir hornið, rakst hann á annan þeirra. „Fyrirgefið, ungfrú.“ „Ó, það var ekkert,“ sagði Harris fagri með skrækri röddu, og bjóst til þess að ganga leiðar sinnar. En Hobbs hélt honum kurteislega kyrrum: „Fyrirgefið — búið þér í þessari götu, ungfrú?“ „Ó, nei, það er svo óttalega simpil gata,“ sagði Harris. „Svo já?“ spurði Hobbs. „Eg er að leita hér að vini mínum — en eg man ekki hvaða númer er á húsinu hjá honum. Jæja, eg finn hann sjálfsagt, áður en nóttin er úti.“ Hann ræskti sig og sagði: „Leiðindabær, ungfrú?“ „Ó, mér finst bara skemtilegt hér.“ „Já, en eg er hér einn — aleinn i sumar- fríi,“ sagði Hobbs. Hann varð ísmeygilegur á svipinn. „Eruð þér mikið uppteknar á kvöldin, ungfrú — annað kvöld til dæmis?“ „Annað kvöld er saumakvöld hjá prests- frúnni,“ sagði Harris önugur. „Og nú verð eg fara heim, þvi að annars verður mamma óróleg." „Nei, heyrið þér,“ sagði Hobbs, „það er svo snemt ennþá. Klukkan er ekki nema —“ Hann fór að leita að úrinu sínu. Hann varð vandræðalegur á svipinn og gróf árangurs- laust i öllum vösum. Harris fagri hrökk ósjálfrátt við, og þá varð Hobbs litið á hann. Alt i einu æpti hann við, og svifti hattinum af kolli Harris. „Nú þykir mér týra!“ sagði Hobbs. Harris fagri andvarpaði, opnaði lófann og sýndi stórt og sterklegt silfurúr með festi. „Þetta gerir bölvaður vaninn manni,“ sagði hann. „Jæja, Hobbs, eg skal koma með mótþróalaust."

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/1398

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.