Fréttablaðið - 23.10.2019, Page 12

Fréttablaðið - 23.10.2019, Page 12
Við ætlum að fagna vetri á laugardaginn klukkan 20 með dagsk rá þar sem fram koma Guðrún Gunnarsdóttir söng-kona, Bjarni Harðarson bóksali með meiru, ég sjálfur og Karla- kór Hreppamanna undir stjórn Guð- mundar Óla Gunnarssonar,“ segir Bald- ur Þórhallsson stjórnmálafræðingur. Hann er einn þeirra sem hafa unnið að því að gera fjóra hella í landi jarðar- innar Ægissíðu við Hellu, aðgengilega. „Þegar hafa komið hópar og skoðað hellana með leiðsögn og fram undan er röð viðburða,“ lýsir hann, kampakátur. Baldur er nefnilega sveitastrák- ur, fæddur og uppalinn á Ægissíðu á vesturbakka Rangár, þar sem faðir hans býr enn. „Það var mjög gaman að alast upp á þessum slóðum, við k rak karnir voru alltaf að leika okkur í hellunum og við vorum ekki gömul þegar við fórum að sýna ferðafólki þá því þeir voru í f lestum ferðahandbókum á þeim tíma. Við sögðum fólki sögurnar sem afi sagði okkur og forfeður hans höfðu sagt honum.“ Sunnlendingar trúa því að Papar hafi gert hellana og búið í þeim fyrir landnám norrænna manna, að sögn Baldurs. „Hellarnir eru gerðir af miklum hagleik og hafa tæpast verið gerðir  fyrir skepnur upphaf lega. Í enda eins þeirra er kapella með fal- lega höggvinn kross sem  bendir til veru kristinna manna þar.“ Tólf  manngerðir hellar eru á jörð- inni Ægissíðu og milli Hveragerðis og Víkur eru um 200 manngerðir hellar sem vitað er um. „Hellarnir voru nýttir af bændum þar til  þeir gátu farið að byggja sér almennileg hús á 20. öld. Afi geymdi jarðávexti, sultur og saft í einum en eftir að hann hætti að geta haldið inngangi hellanna við, hefur ekki verið hægt að skoða þá fyrr en núna,“ upplýsir Baldur. Hann segir fjóra hella hafa verið gerða sýningarhæfa. „Okkur langar að varðveita þá, gera þá aðgengilega  og erum að undir- búa margs konar menningardagskrá í þeim á næstu misserum, enda hljómar vel í hvelfingum þeirra. Hlöðuhellir er einstakur tónleikastaður, segir mér fólk sem hefur vit á músík.“ gun@frettabladid.is Hljómar vel í hellum Papa  Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur er meðal þeirra sem standa að átaki í að varðveita og standsetja manngerða hella við Hellu og halda þar menningarviðburði. Inngangar hellanna þurfa viðhalds við. Hér er Baldur að vinna í einum. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Helga Jóhanna Kristjánsdóttir Gnoðarvogi 20, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 3. október. Útförin fer fram frá Langholtskirkju 24. okt. kl. 13.00. Kristjana G. Magnúsdóttir Egill Jónsson Erla G. Magnúsdóttir Helgi M. Magnússon Ingunn G. Björnsdóttir Hafdís Magnúsdóttir Hjörleifur L. Hilmarsson Jóna Björg Magnúsdóttir Smári Magnússon Regina Ásdísardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristján Jóhann Kristjánsson Miðvangi 31, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi laugardaginn 19. október. Anna Guðbjörg Erlendsdóttir Anna Karen Kristjánsdóttir Björn H. Arnar Kristína V. Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku eiginmaður minn, pabbi okkar, sonur, bróðir og tengdasonur, Lárus Dagur Pálsson lést laugardaginn 19. október sl. Anna Sif Ingimarsdóttir Páll Ísak Lárusson Ingimar Albert Lárusson Kolfinna Katla Lárusdóttir Páll Dagbjartsson Helga Friðbjörnsdóttir Svanhildur Pálsdóttir Kolbrún Pálsdóttir Helga María Pálsdóttir Ingimar Ingimarsson Kolbrún Ingólfsdóttir Elsku sambýlismaður minn, bróðir, pabbi, tengdapabbi, afi og langafi okkar, Ágúst Svavarsson lést fimmtudaginn 10. október á heimili sínu í Þýskalandi. Að ósk hins látna fór bálför fram í Þýskalandi en útför verður frá Fossvogskirkju 29. október kl. 13.00. Annette Rupp og Adrian Sigrún Sigríður Svavarsdóttir Kristján Orri Ágústsson, Daníel, Bjarki, Karítas og Eva Maren Erla Björk Ágústsdóttir, Kristinn Jóhannsson, Hekla og Vaka Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigrún Jóhanna Jónsdóttir, Kjóalandi 9, Garði, lést þann 4. október. Útför hennar fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 25. október kl. 15. Hafsteinn Á. Ársælsson Ragnar Lövdal Kristín Halldórsdóttir Jóhann Lövdal Inga Þórsdóttir Ólafía Lövdal Sigrún Edda Lövdal Rögnvaldur Ólafsson Ingiberg Baldursson Steinunn Kristinsdóttir Sigurgeir Gunnarsson Ársæll Hafsteinsson Ingveldur Ýr Jónsdóttir Bergþóra Hafsteinsdóttir Ólafur S. Hauksson Klara Guðrún Hafsteinsdóttir ömmu- og langömmubörn. Hannesína Tyrfingsdóttir Sísí Vallarbraut 10, Njarðvík, lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 9. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir yndislega umönnun. Andrés Magnús Eggertsson Eggert Þór Andrésson Guðrún Arthúrsdóttir Sæunn Andrésdóttir Tryggvi Einarsson Þóranna Andrésdóttir Halldór Reinhardtsson Tyrfingur Andrésson Guðríður Kristjánsdóttir Barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Þórður Eydal Magnússon dr. odont. Suðurlandsbraut 62, lést að Vífilsstöðum laugardaginn 19. október síðastliðinn. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 24. október kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Kristín S. Guðbergsdóttir Magnús Þórðarson Kristín Kristjánsdóttir Björn Eydal Þórðarson Dögg Káradóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Þórarinn Brynjar Þórðarson Pósthússtræti 3, Keflavík, lést á Landspítalanum v/Hringbraut sunnudaginn 20. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, fimmtudaginn 7. nóvember kl. 13. Jóhanna Valtýsdóttir Þóranna Þórarinsdóttir Kristmann Klemensson Valdís Þórarinsdóttir Kristján Þórarinsson Erla Sólbjörg Kjartansdóttir Brynjar Þórarinsson Hulda Guðlaug Sigurðardóttir Ásta Þórarinsdóttir Árni Þór Árnason Sigurþór Þórarinsson Inga Sif Gísladóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorleifur Hjalti Þórarinsson lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi þann 16. október sl. Jarðsungið verður frá Háteigskirkju 25.10. 2019 kl. 13.00. Helena Drífa Þorleifsdóttir Atli H. Sæbjörnsson Þórarinn F. Þorleifsson Anna Bára Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 0 -1 0 7 0 2 4 1 0 -0 F 3 4 2 4 1 0 -0 D F 8 2 4 1 0 -0 C B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.