Fréttablaðið - 23.10.2019, Side 14

Fréttablaðið - 23.10.2019, Side 14
453 milljarðar er virði Marels. 24% stofnaðra fyrirtækja á árinu 2005 voru stofnuð af konum. MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Við viljum auðvitað ekki vera á þessum lista, og okkur finnst skömm að því, en ég hef trú á því að við verðum f ljótt tekin af honum,“ segir Unnur Gunnars­ dóttir, forstjóri FME, í samtali við Markaðinn. Ísland er sem kunnugt er komið á gráan lista alþjóðlegu samtakanna FATF vegna ófullnægj­ andi aðgerða gegn peningaþvætti. Vinna íslensk stjórnvöld nú að því að koma því í lag sem FATF hefur sett út á. Unnur segir að Fjármála­ eftirlitið hafi staðið vaktina hvað þetta varðar, þótt alltaf megi gera betur og því verði niðurstaða FATF ekki sérstaklega rakin til aðgerða­ leysis af hálfu stofnunarinnar. „Við getum alltaf gert betur en það er ekkert sem við erum að naga okkur í handarbökin yfir, síður en svo. Við hvílum ágætlega vel í okkar skinni vegna þess að við höfum haft strangt eftirlit með aðgerðum gegn peningaþvætti um langt skeið. Því er þó ekki að neita að ábendingar FATF hafa haft áhrif á vinnu okkar síðustu misseri. Við höfum til að mynda lagt meira í vettvangs athuganir sem beinast sérstaklega að aðgerðum gegn peningaþvætti.“ Unnur var á meðal þeirra fulltrúa íslenskra stjórnvalda sem sóttu fund FATF í París í síðustu viku þar sem ákvörðunin var tekin. Hún segir að mörg ríki hafi sýnt Íslandi skilning. „Mér fannst margir tjá sig um, og gera það af sannfæringu, að Ísland væri ekki ógn við f jármögnun hryðjuverka og peningaþvætti í heiminum, og þetta væru of harðar aðgerðir. Aðrir sögðu að þetta væri einfaldlega niðurstaðan eftir hlut­ lægt mat fagaðila,“ segir Unnur. „Ég held að það hafi ekki verið margir á þessum fundi sannfærðir um að við værum ósamvinnuþýtt ríki í þess­ um efnum, eða að heimsbyggðinni stæði ógn af okkur. En við erum að súpa seyðið af því hvað við komum illa út úr úttektinni 2017.“ Spurð hvort FME þurfi að róa erlendar stofnanir vegna niðurstöð­ unnar svarar Unnur að hún viti ekki til að það sé sérstök þörf á því. „Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum verða af leiðingarnar ekki skelfi­ legar. Það geta komið upp ófyrirséð vandamál á einhverjum sviðum en aðallega hefur þetta að gera með áreiðanleikakannanir þegar stofnað er til viðskipta erlendis. Þá þarf að fara fram svokölluð aukin áreiðan­ leikakönnum sem þýðir að ferlið getur verið fyrirhafnarmeira en ella,“ segir Unnur. -tfh FME hafi ekki ástæðu til að naga sig í handarbökin Unnur Gunnarsdóttir Sterkt og gott samband Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki Ekkert mál hjá Vodafone Það skiptir okkur máli að vera í góðu sambandi 24 tíma sólarhringsins. Ég þarf bara að biðja um það sem þarf og Vodafone sér um restina. Erlendir fjárfestingasjóðir, sem komu margir fyrst inn í hlut­hafahóp Marels í útboði í júní, hafa að undanförnu keypt í félaginu um 22 milljónir hluta að nafnvirði, eða fyrir um 13 milljarða króna miðað við núverandi gengi bréfa. Þetta má lesa út úr gögnum greiningarfyrirtækisins Morning­ star sem heldur utan um eignarhluti erlendra eignastýringarfélaga sem eiga bréf í Marel í gegnum kauphöll­ ina í Amsterdam. Tuttugu stærstu félögin á lista Morningstar áttu samanlagt um 90 milljónir hluta í Marel í lok september en það jafn­ gildir um 12 prósenta eignarhlut. Ekki er hægt að fullyrða hvort þessi aukna fjárfesting sjóðanna í Marel sé á milli mánaða eða nái aðeins lengra aftur í tímann. Á meðal þeirra sem hafa bætt hvað mest við sig í Marel eru sjóðir í stýringu Blackrock en eignastýring­ arrisinn var hornsteinsfjárfestir í útboði félagsins. Aðrir sjóðir í hluta­ hafahópnum eru meðal annars á vegum Investec, SEI Investments, Threadneedle, Baron, BAMCO, Miton, AXA Investment Managers, Vanguard og Janus Henderson. – hae Kaupa í Marel fyrir 13 milljarða  He l m i n g i f æ r r i konur en karlar hafa stofnað nýtt fyrirtæki á síðustu 15 árum en hlut­deild k venna í stofnun fyrirtækja hefur þó vaxið töluvert á tímabilinu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Reykjavík Economics sem var unnin fyrir Íslandsbanka en hún verður kynnt í dag á fundi sem bankinn stendur fyrir. „Hlutdeild kvenna kemur á óvart, sérstaklega í ljósi þess að ferðaþjón­ ustu hefur vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum. Það er fagnaðarefni að  hlutdeild kvenna  sé að vaxa en það má gera enn betur. Stjórn­ völd kynntu á dögunum nýsköp­ unarstefnu sína og má því velta fyrir sér hvort tilefni sé til þess að rannsaka frekar hvaða ástæður geti legið að baki og skoða hvernig fjölga megi konum í sjálfstæðum atvinnurekstri,“ segir Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur Reykjavík Econonimcs, sem tók saman ýmsar tölur sem varpa ljósi á stöðu og þróun nýsköpunar á Íslandi. Á árunum 2005 til 2019 voru stofnuð 79.022 fyrirtæki á Íslandi. Þar af stofnuðu konur 24.775 fyrir­ tæki, eða tæplega þriðjung af heild­ arfjöldanum. Hlutdeild kvenna í stofnun fyrirtækja nam aðeins 24 prósentum á árinu 2005. Á næstu árum óx hún hratt og náði hápunkti í um 35 prósentum árið 2014. Á árunum 2015 til 2017 fór hlutdeildin niður í 32 prósent en tók síðan aftur við sér og nemur hún tæplega 35 prósentum það sem af er árinu 2019. Í skýrslunni er líftími fyrir­ tækja eftir stofnári tekinn saman. Tæplega þriðjungur af þeim fyrir­ tækjum sem voru stofnuð árið 2005 hafaorðið gjaldþrota fram til ársins 2019 en eðli málsins samkvæmt lækkar hlutfallið eftir því sem nær dregur árinu 2019. Frá árinu 2009 hefur rúmlega fimmtungur þeirra fyrirtækja sem voru stofnuð það ár orðið gjaldþrota. „Það er áhugavert að sjá áhættuna af því að stofna fyrirtæki svart á hvítu og kannski má segja sem svo að það séu að minnsta kosti fjórðungslíkur á að fyrirtæki verði gjaldþrota eftir nokkurra ára skeið. Það undirstrikar mikilvægi þess að sýna umburðarlyndi gagnvart fólki sem er að stofna fyrirtæki og reyna að skapa ný tækifæri og störf. Það mistekst í mörgum tilvikum sam­ kvæmt þessum tölum.“ Þá varpar Magnús þeirri spurn­ ingu fram hvort lágvaxtaumhverfið sem Vesturlönd búa við í dag muni stuðla að aukinni fjárfestingu í nýsköpun. „Vextir hafa farið lækkandi úti í heimi og hér á Ísland. Við erum að horfa fram á að hér verði nýtt vaxta­ stig sem ekki hefur þekkst áður. Þá geta lífeyrissjóðir ekki treyst á að fjárfesta bara í ríkisskuldabréfum og íbúðabréfum. Þeir gætu í aukn­ um mæli farið að beina fjármunum í nýsköpun og áhættumeiri fjár­ festingar,“ segir Magnús. „Vandi nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi hefur verið að erfitt er að komast út úr vaxtarfasanum og yfir í næsta fasa. Það krefst jafnan verulegs fjármagns. Ef við tökum tónlistarveituna Spotify sem dæmi þá hefði það fyrirtæki aldrei náð að blómstra hér á landi vegna þess að það reiddi sig á gríðarmikla fjár­ muni til að ná forskoti á markað­ inum. Slíkir peningar hefðu aldrei verið í boði á Íslandi.“ thorsteinn@frettabladid.is Helmingi færri konur stofnuðu fyrirtæki Helmingi færri konur en karlar hafa stofnað fyrirtæki á síðustu 15 árum sam- kvæmt nýrri skýrslu um nýsköpun. Hlutdeild kvenna vaxið töluvert á tíma- bilinu. Reynslan sýnir að fjórðungslíkur eru á að fyrirtæki verði gjaldþrota. Skýrslan verður kynnt á fundi Íslandsbanka um frumkvöðla og nýsköpun í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 0 -1 F 4 0 2 4 1 0 -1 E 0 4 2 4 1 0 -1 C C 8 2 4 1 0 -1 B 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.